Íþróttablaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 44
Happaþrennan! — Vésteinn, Pétur og Sigurður, til sigurs á HM!!
STERKIR
OG
STINNIR!
Þrír af sterkustu, en jafnframt liprustu,
mönnum landsins, VÉSTEINN HAF-
STEINSSON, SIGURÐUR EINARSSON
ogPÉTUR GUÐMUNDSSON verða í
sviðsljósinu eftir nokkra daga — á
Heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum sem
hefst í Svíþjóð 4. ágúst.
Það var fremur létt yfir kringlu-
kastaranum, spjótkastaranum og
kúluvarparanum þegar tíðindamað-
ur ÍÞRÓTTABLAÐSINS kom að þeim
í sólbaði í Alabama í Bandaríkjunum
fyrir skömmu en þeir höfðu þá ný-
lokið við að kasta tólunum út og suð-
ur. Æfingarnar skila sér vonandi
þegar þeir keppa á Heimsmeistara-
mótinu í Svíþjóð en þá dugar ekki
eingöngu að sóla á sér kroppinn! En
hverjir eru þessi jötnar sem fórna
hugsanlega rúmlega þriðjungi ævi
sinnar í að æfa flesta daga vikunnar
og fórna sér gjörsamlega fyrir íþrótt-
irnar. Kíkjum á gripina!
VÉSTEINN
KRINGLUKASTARI
Hann kastaði fyrst kringlu 6 ára
gamall og keppti á sínu fyrsta móti
fyrir tæpum 30 árum. „Maður verður
Texti og myndir:
Magnea Guðmundsdóttir
að geta séð framtíðina fyrir sér 14 ára
gamall og má ekki láta neitt koma í
veg fyrir að draumarnir rætist. Þegar
ég var 14 ára gekk ég um götur Selfoss
og ímyndaði mér að hver einasti
kjaftur vissi að ég væri að kasta
kringlu. Á sama tíma var ég valinn í
unglingalandsliðið í körfubolta en ég
sendi bréf til landsliðsþjálfarans og
afþakkaði gott boð vegna þess að ég
ætlaði að verða heimsklassa kringlu-
kastari.
Síðan ég útskrifaðist frá háskólan-
um í Alabama vorið 1986 hef ég ým-
ist verið búsettur í Svíþjóð eða
Bandaríkjunum. Ég keppi vanalega á
20 mótum yfir sumarið í liðlega 12-17
löndum. Ég hef tileinkað lífið íþrótt-
inni og fyrir vikið er ég eignalaus
maður."
Unnusta Vésteins er sænsk og heit-
ir Anna Ostenberg. „Það er þjóðar-
rembingur í okkur báðum. Mig lang-
arað vera á íslandi en hana í Svíþjóð.
Það þarf þolinmóða konu til að sætta
sig við að ég skuli vera á ferðalögum
6-7 mánuði á ári. Við bíðum bæði
eftirtækifæri til að fara í frí án þess að
hafa kringluna með. Við reynum að
vera ekki lengur hvort frá öðru en í
6-8 vikur í senn. Þar sem Kaup-
mannahöfn er ekki í nema tveggja
tíma fjarlægð frá heimili okkar milli-
lendi ég þar stundum og við náum að
borða saman en síðan er ég rokinn."
44