Íþróttablaðið - 01.08.1995, Page 51
MUre
absöhjle.performmce
Keppnin í 3. deiidinni het'ur
verið jöfn og spennandi í sumar. Til
þess að meta stöðuna aðeins nánar
bað íþróttablaðið þá Sigurð Lárus-
son, þjálfara Völsungs, og Bjarna
Sveinbjörnsson, þjálfara og leik-
mann Dalvíkur, að spá í framhald-
Siguróur Lárusson:____________
Sigurður sagði að keppnin í sumar
hefði verið nokkuð jöfn. Hann sagði
reyndar að 3 efstu liðin væru í nokk-
uð öruggum sætum. „Ég hef trú á að
önnur lið séu að koma upp. Annars
hafa liðin oft sýnt mjög góð tilþrif,
enda hefur deildin spilast nokkuð
vel."
Hvað með framhaldið?
„Ég er bjartsýnn fyrir hönd míns
liðs. Við höfum spilað mjög vel að
undanförnu.
Þetta er búið að vera spennandi og
skemmtileg keppni. Það verður mik-
I slagur um sætin í 2. deild og auð-
vitað ætlum við okkur alla leið upp."
Bjarni Sveinbjörnsson:
Hvernig finnst þér deildin hafa
verið í sumar?
„Mér finnst hún hafa verið mjög
jöfn og reikna með svo verði áfram.
Það er öruggt að það mun ekki ráðast
fyrr en í síðustu umferðunum hvaða
lið fara upp. Völsungur hefur spilað
mjög vel í sumar og það er helst það
sem veldur því að þeir eru að stinga
hin liðin af. Dalvík, Leiknir, Þróttur
Neskaupstað, Ægir og Selfoss eiga
eftir að berjast um hitt sætið. En ég
býst við að hin liðin verði í fallbarátt-
unni."
Þetta er fyrsta ár þitt í 3. deildinni
og því er rétt að spyrja hvað þér
finnst um styrkleikaihennar?
„Deildin er þokkaleg erfið, ég
hefði varla getað trúað því að hún
væri svona erfið."
Frá leik Hauka og Leiknis.
3.deildin
Texti: Eggert Þór Aðalsteinsson
ULTIMAX
PKEMIf R LEAGUE
51