Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is Heyrnarhlíf með Bluetooth® tengimöguleika við 2 síma, útvarpi og umhverfishljóðnema. Hægt er að hlusta á tónlist sem og taka handfrjáls símtöl í mjög hávaðasömu umhverfi þar semmíkrafónnin útilokar allan umhverfishávaða. Tengist við smáforrit í síma. Heyrnarhlíf PeltorWS Alert XPI Bluetooth ® Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Óhætt er að áætla að tjón í desem- beróveðrinu og kostnaður við það sé að minnsta kosti vel á annan milljarð króna, samkvæmt athugun blaðsins. Gæti orðið mun meiri þegar öll kurl eru komin til grafar og þá skipt millj- örðum. Stofnanir, sveitarfélög, trygginga- félög og fleiri eru að safna saman upplýsingum um tjón í veðurhamför- unum í desember. Þá er starfshópur forsætisráðherra að safna saman upplýsingum og funda með fulltrúum fyrirtækja og sveitarfélaga. Mesta tjónið varð á Norðurlandi, eins og kunnugt er og eins og sést á meðfylgjandi grafi eru stærstu töl- urnar þar skemmdir á flutningskerfi og dreifikerfi raforku og afleiðingar þess fyrir einstaklinga og fyrirtæki, ekki síst bændur. Vilja flýta framkvæmdum Landsnet áætlar að kostnaður við viðgerðir á flutningskerfinu verði rúmar 300 milljónir kr. Inni í þeirri tölu er áætlaður kostnaður við við- gerðir á Laxárlínu og Fljótsdalslínu 4 sem enn hefur ekki verið ráðist í. Rarik áætlar að heildarkostnaður vegna viðgerða á dreifikerfinu á Norðurlandi geti numið um 200 millj- ónum króna. Tryggvi Þór Haralds- son forstjóri tekur fram að ekki sé búið að ákveða hvernig staðið verði að síðustu viðgerðunum. Verið sé að meta hvort hagkvæmara sé að flýta framkvæmdum við að leggja tiltekn- ar línu í jörð, frekar en að ljúka fulln- aðarviðgerðum á loftlínum. Þetta á meðal annars við um línur í Hörg- árdal og Svarfaðardal. Náttúruhamfaratrygging hefur fengið um 20 tjónstilkynningar og er áætlað að heildartjón sem fellur inn- an vátryggingaverndar hennar nemi á bilinu 20 til 40 milljónum króna. Einkum er um að ræða tjón á hafn- armannvirkjun og tjón á fasteignum á nokkrum stöðum vegna sjávar- flóða. Almennu tryggingafélögin hafa fengið á fjórða hundrað tilkynningar um tjón. Í flestum tilvikum er til- kynnt um skemmdir á húsum og bíl- um, að því er fram kom í frétt Rík- isútvarpsins í fyrrakvöld, og er áætlað að heildartjónið hlaupi á hundruðum milljóna króna. Dýr snjómokstur Sveitarfélögin hafa orðið fyrir tjóni og þurft að leggja í aukinn kostnað. Nefna má sem dæmi að í Húnaþingi vestra urðu skemmdir á sjóvörnum, olíukostnaður vegna bil- unar veitna stórjókst, dælur vatns- veitu biluðu vegna rafmagnstruflana og skemmdir urðu á slökkvibíl og fleiri tækjum. Þá hefur orðið mikill aukakostnaður við snjómokstur og kostnaður vegna aukavinnu starfs- manna veitna og sveitarfélagsins til að halda samfélaginu gangandi. Áætlað er að kostnaður vegna snjó- moksturs í Sveitarfélaginu Skaga- firði hafi að lágmarki verið 20 millj- ónir kr. í desember, mun meiri en í venjulegu ári. Áætlað er að viðbótarkostnaður Vegagerðarinnar vegna snjómokst- urs hafi verið um 180 milljónir. Að auki er tjón á hafnarmannvirkjum og sjóvörnum um 190 til 210 milljónir kr., gróft áætlað. Tjón varð í fyrirtækjum og hjá ein- staklingum, vegna rafmagnsleysis og erfiðleika með samgöngur. Nefna má áhrif á flugfélögin vegna röskunar á flugi og ferðaþjónustuna. Icelandair gefur ekki upp aukakostnað sinn. Afurðatjón er að koma fram Mesta tjónið hjá einstaklingum er þó vafalaust í sveitunum, hjá bænd- um. Talið er að liðlega 100 hross hafi drepist á Norðurlandi vestra. Einnig varð afurðatjón hjá kúabændum. Þeir þurftu að hella niður mjólk sem ekki var hægt að kæla í rafmagns- leysinu. Samkvæmt upplýsingu Auð- humlu, samvinnufélags mjólkur- framleiðenda, minnkaði innvegin mjólk í samlög í óveðursvikunni um 43 þúsund lítra. Kom það aðallega fram í Húnaþingi og Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslu. Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri segir að þegar ekki sé hægt að mjólka kýrnar um tíma tapi þær nyt og hætta á júg- urbólgu aukist. Þetta afurðatap komi fram á lengri tíma. Erfitt sé að sjá það á tölum um innvegna mjólk því mjólkurframleiðslan sé að aukast á þessum tíma árs. Gripa- og afurðatjón hleypur væntanlega á tveimur eða fleiri tug- um milljóna. Bændur geta ekki tryggt sig gegn því. Til dæmis tekur sameiginleg rekstrarstöðvunar- trygging Auðhumlu og bænda ekki til tapaðrar framleiðslu vegna raf- magnsleysis. Bjargráðasjóði er ætlað að bæta tjón á girðingum sem talið er mikið. Það kemur hins vegar ekki í ljós fyrr en snjóa leysir. Til að gefa hugmynd um stærðargráðu tjónsins má nefna að Bjargráðasjóður greiddi 120 millj- ónir vegna tjóns í veðurhamförunum á Norðausturlandi 2012. Kostnaður vel á annan milljarð  Mesta tjónið í veðurhamförunum í desember varð á raforkukerfinu og af afleiðingum þess  Sveitar- félög og stofnanir eru að taka saman tjón og kostnað  Mesta tjónið hjá einstaklingum varð í sveitum Dæmi um tjón og kostnað í desemberveðrinu Landsnet Flutningskerfi raforku 300 milljónir króna Vegagerðin Tjón á hafnarmann- virkjum og sjóvörnum 200 milljónir króna Rarik Dreifi kerfi raforku 200 milljónir króna Náttúruhamfaratrygging Íslands Hafnarmannvirki o.fl . 20-40 milljónir króna Vegagerðin Aukinn kostnaður við snjómokstur 180 milljónir króna Bændur Gripir, afurðir, girðingar 100 milljónir króna 325 tilkynn-ingar um skemmdir á eignum hjá tryggingafélögum 22.560 klst. vinna hjá björgunarsveitunum Bændasamtök Íslands óskuðu eftir því við forsætisráð- herra að átakshópur sem skipaður var til tiltekinna verkefna í kjölfar óveðursins fjalli einnig um leiðir til að mæta því tjóni sem bændur urðu fyrir í óveðrinu. Einkum er átt við tjón sem varð vegna afurðataps hjá kúabændum af völdum rafmagnsleysis. Einnig þurfi að taka tillit til gripatjóns í óveðrinu og tjóns á girðingum. Tekið er fram að bændur geti ekki tryggt sig á al- mennum markaði fyrir þessu tjóni. Bent er á í bréfinu að við sambærilegar aðstæður hafi stjórnvöld jafnan brugðist sérstaklega við, til dæmis með sérstökum fjár- veitingum til Bjargráðasjóðs. Getið er um tjón vegna eldgosanna á Suðurlandi á árunum 2010 og 2011, fjárskaða vegna óvenjulegs tíðarfars árið 2012 og stórfellt tjón vegna kals í túnum á árinu 2016. BÆNDASAMTÖK ÍSLANDS Guðrún Tryggvadóttir Átakshópur stjórnvalda fjalli einnig um tjón hjá bændum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta hefur gengið betur en bjart- sýnustu menn þorðu að vona,“ segir Kjartan M. Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Í gær var tilkynnt að Reykjanes- bær væri laus undan sérstöku eftir- liti eftirlits- nefndar með fjármálum sveit- arfélaga, tveimur árum fyrr en upphaflega var stefnt að. „Við þurfum áfram að sýna að- hald í rekstri og láta áætlanir standast en þetta sparar okkur tíma, skriffinnsku og fleira,“ segir Kjartan í samtali við Morgunblaðið. Í framhaldi af þessum tíðindum mun bæjarstjórn leggjast yfir fram- tíðaráætlanir bæjarfélagsins að sögn Kjartans. Hann segir að ýmis stór verkefni hafi mátt sitja á hak- anum og íbúar hafi þurft að taka á sig auknar álögur. „Nú geta bæjarfulltrúar farið að horfa á þætti sem áður voru negldir mjög fast niður. Við vorum til dæmis bundin af því að skila ákveðinni upp- hæð í formi fasteignaskatts. Nú ætti að vera tækifæri til að lækka álögur á íbúa ef árferðið versnar ekki mik- ið,“ segir Kjartan. Íbúar Reykjanesbæjar hafa síð- ustu ár mátt bera þyngri byrðar en flestir aðrir vegna fjárhagsörðug- leika sveitarfélagsins. Umræddur fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði var þegar mest lét 0,5% en var svo lækkaður í þrepum. Samkvæmt fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár var skatturinn lækkaður úr 0,36% í 0,32%. Sveitarfélagið fékk auk þess heimild til að setja aukaálag á útsvar um hríð. Í stað 14,52% hámarks- útvars eins og víða er máttu íbúar sætta sig við 15,05% útsvar. Þessar auka álögur voru dregnar til baka fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2018. „Við erum mest að horfa til fast- eignaskattsins enda hefur fasteigna- verð og fasteignamat hækkað svo mikið hér. Ég er sannfærður um að fasteignaskatturinn verður lækkað- ur á næsta ári,“ segir Kjartan. Vonast til að geta lækkað skattana  Reykjanesbær laus undan eftirliti Kjartan Már Kjartansson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.