Morgunblaðið - 10.01.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
ALLAR VÖRUR
50%
AFSLÁTTUR
Úlpukápa
kr. 14.990
kr. 7.490
Gerið verðsamanburð
með 50% afsl.
DÚNDUR ÚTSALA!
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, hafnar því að lífskjarasamning-
arnir eigi þátt í auknu atvinnuleysi.
Skýringarnar á því séu fjölþættari
og liggi m.a. í gjaldþroti WOW air og
samdrætti í ferðaþjónustu. Þeir
þættir séu ótengdir samningunum.
„Það er ábyrgðarlaust að ætla að
skella skuldinni á kjarasamninginn
sem slíkan þegar við vitum að ástæð-
urnar eru allt allt aðrar,“ segir
Ragnar Þór um stöðuna.
Tilefnið er samtal við Halldór
Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu
í gær um horfur í efnahagslífinu.
Taldi Halldór Benjamín vísbend-
ingar um að náttúrulegt atvinnuleysi
kynni að verða meira til frambúðar á
Íslandi. Þó væri of snemmt að full-
yrða nokkuð í því efni.
„Það birtist í að aðlögun að lakari
efnahagsaðstæðum fari fram í gegn-
um raunstærðir í stað verðbólgu og
gengislækkunar, sem í þessu tilviki
felur í sér aukið atvinnuleysi. Bæði
Samtök atvinnulífsins og Seðlabank-
inn vöruðu við því í aðdraganda
kjarasamninga, með mjög skilmerki-
legum hætti, að aðlögun hagkerf-
isins myndi fara fram í gegnum
raunstærðir, fyrst og fremst í gegn-
um atvinnuleysi, og það er að ganga
eftir,“ sagði Halldór Benjamín.
Fjölgaði um 3.000 milli ára
Samkvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar voru um 4.600 manns að
jafnaði án vinnu í nóvember 2018.
WOW air sagði svo upp hundruðum
starfsmanna í desember 2018 vegna
endurskipulagningar félagsins.
Lífskjarasamningarnir voru
undirritaðir í aprílbyrjun í fyrra,
nokkrum dögum eftir fall WOW air.
Samkvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar voru að jafnaði 5.962 á at-
vinnuleysisskrá í mars 2019. Þeir
voru 7.600 í nóvember sl. en það var
fjölgun um 3.000 milli ára. Ragnar
Þór segir fall WOW air og samdrátt í
ferðaþjónustu hafa kostað nokkur
þúsund störf. Sú þróun sé óháð
kjarasamningunum.
Koma til móts við fyrirtækin
„Það má færa rök fyrir því að
margt í þessum lífskjarasamningi
hafi komið til móts við aukinn kostn-
að fyrirtækja við samninginn sem
slíkan. Mælingar sýna að með smá-
vægilegum breytingum á trygginga-
gjaldi, kjarabótum í gegnum skatt-
kerfisbreytingar og lægri vexti af
íbúðalánum heimila og fyrirtækja,
sem skulda meira en almenningur,
séum við að koma til móts við at-
vinnulífið. Sömuleiðis ættu auknar
ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa
minnst úr að spila að leiða af sér ein-
hvers konar innspýtingu í verslun og
neyslu. Sömuleiðis ætti lægri fram-
færslukostnaður að auka kaupgetu
fólks,“ segir Ragnar Þór.
Þá hafi það markmið gengið eftir
að auka ráðstöfunartekjur lág-
tekjufólks. Launaskrið hafi ekki
gengið upp allan stigann eins og í
undanförnum kjarasamningum.
„Verðbólga er að sama skapi mjög
lág og þrýstingur á vaxtalækkun er
meiri en hækkun, þannig að ég held
að okkur hafi að mörgu leyti tekist
mjög vel að verja samninginn. Ég
get ekki tekið undir að hann ýti und-
ir aukið atvinnuleysi þótt hægt sé að
benda á nokkur dæmi.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, taldi ekki tilefni til að
bregðast við ummælum Halldórs
Benjamíns. Þau væru sem véfrétt.
Morgunblaðið/Hari
Vorið 2019 Halldór, Ragnar Þór og fleiri undirrita lífskjarasamninginn.
Lífskjarasamn-
ingar hafa ekki
aukið atvinnuleysi
Formaður VR hafnar kenningu SA
Ragnar Þór
Ingólfsson
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Atvinnuleysi meðal erlendra ríkis-
borgara jókst mun meira í fyrra en
meðal íslenskra ríkisborgara. Jafn-
framt jókst það fyrr meðal erlendra
ríkisborgara. Er atvinnuleysi í pró-
sentustigum meðal erlendra ríkis-
borgara nú álíka mikið og 2013.
Þetta má lesa úr greiningu Analytica
á tölum VMST og Hagstofunnar.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir athyglisvert að atvinnuleysi
meðal erlendra ríkisborgara hafi
aukist meira í prósentustigum talið
en meðal íslenskra ríkisborgara. Ein
skýringin kunni að vera brottflutn-
ingur íslenskra ríkisborgara.
Eykst jafnan á undan
Athyglisvert sé að atvinnuleysi
meðal erlendra ríkisborgara virðist
hafa tilhneigingu til að aukast áður
en það eykst meðal Íslendinga.
„Þannig gæti verið unnt að álykta
um ókomið atvinnuleysi meðal Ís-
lendinga á grunni upplýsinga um
breytingar á atvinnuleysi erlendra
ríkisborgara,“ segir Yngvi.
Þá hafi atvinnuleysi erlendra
ríkisborgara verið meira en meðal
íslenskra ríkisborgara í uppsveifl-
unni. Munurinn hafi hins vegar verið
orðinn lítill í ársbyrjun 2017 þegar
erlent verkafólk missti vinnu í sjó-
mannaverkfallinu. Síðan hafi fleiri
erlendir ríkisborgarar en íslenskir
misst vinnu í niðursveiflunni. Um
7.600 manns voru án vinnu í nóv. sl.,
þar af 3.300 erlendir ríkisborgarar.
Missa störf í niðursveiflunni
Atvinnuleysi erlendra ríkisborgara svipað og árið 2013
Atvinnuleysi eftir ríkisfangi
Erlendir ríkisborgarar og Íslendingar, frá janúar 2005 til nóvember 2019
14%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
'05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19
Heimild: Vinnumálastofnun,
Hagstofa Íslands, Analytica
1,7%
2,6%
7,7%
3,1%
13,8%
9,2%
Erlendir ríkisborgarar
Íslenskir ríkisborgarar
Tölur eru árstíðaleiðréttar