Morgunblaðið - 24.01.2020, Síða 36
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leiðsögn Hrafnhildur Shoplifter sagði Degi B. Eggertssyni borgarstjóra
og öðrum gestum frá hinu flókna og skrautlega verki sínu í gærkvöldi.
Á opnun Hildur B. Bæringsdóttir, Guðrún Ó. Kristinsdóttir, Katrín Guð-
mundsdóttir, Anna B. Árnadóttir, Dagmar Haraldsdóttir, Sandra Ýr Dungal.
Feneyjatvíæringsverk Hrafnhildar Shoplifter til sýnis í Hafnarhúsi
»Chromo Sapiens, innsetning Hrafnhildar Arnardótt-
ur/Shoplifter sem var framlag Íslands á Feneyjatvíær-
ingnum í fyrra, er nú komin í Listasafn Reykjavíkur í Hafnar-
húsi og fór opnun fram í gærkvöld. Hljómsveitin HAM samdi
tónverk sem hljómar í verkinu og lék sveitin við opnunina í gær
og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarpaði gesti og opnaði
sýninguna. Í innsetninguna notaði Hrafnhildur einkennisefni-
við sinn, litríkt gervihár, og í verkinu eru gestir leiddir í gegn-
um þrjú ólík rými, fyrst drungaleg hellakynni, Primal Opus, þá
Astral Gloria og loks hið himneska Opium Natura.
Litasprengja Gestir í
loðnum miðhelli hins
umfangsmikla og litríka
verks Hrafnhildar.
Innyflanudd Hljómsveitin
HAM tróð upp á opnuninni.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2020
Ljósvaki // Æther 1.0.1. nefnist sýn-
ing sem opnuð verður í BERG Con-
temporary, Klapparstíg 16, í dag kl.
17. Á henni má sjá verk Selmu
Hreggviðsdóttur og Sirru Sigrúnar
Sigurðardóttur sem beina sjónum að
sögu og eiginleikum kristalla, nánar
tiltekið hins íslenska silfurbergs.
„Samhliða kristöllum sínum stilla
þær upp einstakri silfurbergskúlu
sem fengin hefur verið að láni frá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Kúlan
var formuð og slípuð af Bjarna
Ólafssyni frá Brimnesgerði í því
skyni að senda hana á heimssýn-
inguna í Chicago 1892,“ segir m.a. í
tilkynningu en frekari upplýsingar
má finna á bergcontemporary.is.
Silfurbergskúla
á samsýningu
Ljósvaki Kynningarmynd sýningarinnar.
Organistinn
Kristján Hrannar
Pálsson frum-
flytur í kvöld kl.
20 loftslagsverkið
+2,0°C á Klais-
orgel Hallgríms-
kirkju. Rithöf-
undurinn Andri
Snær Magnason
mun halda stutta
ræðu á undan
flutningnum. Tónleikarnir eru hluti
af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar
og rennur allur ágóði af miðasölu til
Votlendissjóðs. Kristján er fastráð-
inn organisti við Óháða söfnuðinn í
Reykjavík og stýrir tveimur kórum.
Frumflytur lofts-
lagsverkið +2,0°C
Kristján Hrannar
Pálsson
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER
SÖGUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Leikstjóri: Clint Eastwood
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
11
HHHHH
Rás 2
HHHHH
FBL