Morgunblaðið - 14.03.2020, Qupperneq 47
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
„JÆJA FRÚ MÍN GÓÐ, NÚ SKALTU HALDA
FYRIR VINSTRA AUGAÐ.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila sömu
markmiðum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
STUNDUM VELTI ÉG ÞVÍ FYRIR
MÉR … ER ÞETTA ALLT OG
SUMT?
… ER EITTHVAÐ
MEIRA?
GAUR, Í ALVÖRU.
ÉG VÆRI TIL Í
ÁBÓT.
ÓKEI, ÓKEI!
DROTTINN MINN! SÝNDU MISKUNN! STRÁKAR, SKILJIÐ SKÍTUGU SKÓNA EFTIR VIÐ DYRNAR!
Fjölskylda
Kona Gunnars er Hilda Gunnvör
Guðmundsdóttir, f. 22.10. 1940, hús-
móðir. Þau gengu í hjónaband 30.3.
1963 og eru búsett í Reykjavík. For-
eldrar hennar voru hjónin Guð-
mundur Breiðfjörð Pétursson, stýri-
maður, f. 28.8. 1914, d. 13.4. 1980 og
Lydia Guðmundsdóttir, húsmóðir, f.
17.10. 1920, d. 23.5. 1993.
Börn Gunnars og Hildu eru 1) Guð-
mundur Örn, f. 6.1. 1963, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Garðabæ.
Maki: Dóra Kristín Sigurðardóttir
framhaldsskólakennari. Barnabörn:
a) Friðrik Kristjánsson, f. 1983, b)
Sigurður Orri, f. 1989, c) Hilda
Hrönn, f. 1991; 2) Ágúst Felix, f. 6.4.
1964, bakari, búsettur í Boston í
Bandaríkjunum. Maki: Rósella
Mosty, hönnuður. Barnabörn: a) Est-
er Eva Hall, f. 1988, d. 2017, b) Aníta
Mist, f. 2000; c) Tanya Líf, f. 2003; 3)
Harpa Lydía, f. 29.6. 1968, skrif-
stofumaður, búsett í Reykjavík.
Bræður Gunnars: Hörður Felix-
son, f. 25.10. 1931, d. 29.8. 2018, skrif-
stofustjóri Tryggingamiðstöðv-
arinnar hf., bjó á Seltjarnarnesi, og
Bjarni Felixson, f. 27.12. 1936, fyrr-
verandi íþróttafréttamaður, býr í
Reykjavík.
Foreldrar Gunnars voru hjónin
Felix Pétursson, f. 7.2. 1900, d. 3.9.
1987, bókari í HF Hamri, og Ágústa
Bjarnadóttir, f. 2.8. 1900, d. 3.10.
1978, húsmóðir.
Úr frændgarði Gunnars Felixsonar
Gunnar
Felixson
Sigurður Sigurðsson
b. í Ásmúla í Holtum,
af Bergsætt
Sigríður Sigurðardóttir
húsfr. í Sandhólaferju og í Rvík
Bjarni Filippusson
b. í Sandhólaferju í Holtum
Ágústa Bjarnadóttir
húsfreyja í Rvík
Filippus Jónsson
b. í Sandhólaferju
Guðmundur
Guðmunds-
son kaup-
maður og
bæjarfulltr. í
Rvík
Ágúst
Guðmunds-
son verkam.
í Rvík
Svava
Ágústsd.
cand.
phil. og
húsfr.
Sigurður Einarsson
lögfr., forstj. Ísfélags
Vestmannaeyja og
form. bæjarráðs þar
Ágúst
Einarsson
fyrrv.
prófessor,
rektor og
alþm.
Ólöf Einarsdóttir
prófessor við
Kaliforníuháskóla
Guðrún Pétursdóttir
húsmóðir í Keflavík
Agnes Jóhannsdóttir
leikkona
Ágúst
Ólafur
Ágústsson
alþingis-
maður
Margrét Jónsdóttir
vinnukona í Eystri-Tungu í Landeyjum
Felix Ásbjörnsson
vinnum. á Stóru-Vatnsleysu
Agnes Felixdóttir
húsfr. í Stóru-Vatnsleysu
og í Hafnarfirði
Pétur Jóakimsson
sjómaður í Stóru-
Vatnsleysu og í Hafnarfirði
Felix Pétursson
bókari í Hamri hf. í Rvík
Guðrún Erlendsdóttir
húsfr. á Auðnum
Jóakim Ámundason
b. á Auðnum á Vatnsleysuströnd
Guðný Guðmundsdóttir
húsfreyja í Ásmúla
Guðmundur
Guðmundss.
b. í Gröf í
Ytri-Hreppi
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Guðspjalli hér greinir frá.
Grind, sem neti fest er á.
Erfitt löngum er að ná.
Eignarhaldi lýsa má.
Eysteinn Pétursson spyr, hvort
ekki sé mark takandi á þessari:
Rita guðspjall Markús mátti.
Í marki einatt bolti lá.
Settu marki sumir ná.
Sauðfé markaðist þeim er átti.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Markús guðspjallið á spjaldið þá reit.
Spyrna oft liðin í markið fótbolta.
Marki að ná erfitt er margur það veit.
Markið er stúfrifa á báðum á Golta.
Svona vill lausnin vera hjá Helga
R. Einarssyni í þetta skiptið:
Í Mark. er Máríá.
Marki sótt er frá.
Því erfitt er að ná.
Eyrnamark ég á.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Mikið vatn í Mark., 5:1.
Í marki stendur Katrín Ósk
og náði marki settu, sveitt.
Sýlt bar markið rollan þrjósk.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Mark, hér guðspjall Markúsar.
Mark er grind með neti á.
Marki erfitt oft að ná.
Eyrnamark um ræðir þar.
Þá er limra:
Ódæll var Eyjólfur Markan,
um eðli hans vitnaði harkan
og ör, sem hann bar,
hann vínsvelgur var
og vitaskuld ekkert að mark’ann.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Ef á fáu virðist völ,
sem vekur glens og hlátur,
þá er ágæt dægradvöl
að dvelja um stund við gátur:
Sjór á milli eyja er.
Innst má finna hann í tré.
Rák, sem hross á baki ber.
Á blálandskeisaranum sé.
Helgi R. Einarsson yrkir um
„Kosti og galla“:
Áfengið það léttir lund,
líf og fjör ei heftir,
gefur okkur gull í mund,
sem gleymist daginn eftir.
Og hér spyr Helgi: „Of trygg eig-
inkona ?“:
Með bónda sínum bjó ’ún,
í blíðu og stríðu hló ’ún.
Er karl fékk nó(g),
kvaddi og dó,
á sömu strengi sló ’ún.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af mér marka ég margan
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla