Morgunblaðið - 14.03.2020, Side 48
KÓRÓNUVEIRAN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þjóðfélagið í heild er smám saman
að leggjast í dvala vegna kórónu-
veirunnar og um leið verður bók-
staflega ekkert um að vera á íþrótta-
sviðinu næstu fjórar vikurnar hið
minnsta.
Í kjölfarið á samkomubanninu
sem sett var á hér á landi í gær og
tekur formlega gildi seint annað
kvöld verða íþróttaviðburðir aðeins
háðir fyrir luktum dyrum. Stærstu
samböndin hættu allri leikjadagskrá
strax í gær, nema hvað körfuknatt-
leikssambandið lauk 21. og næstsíð-
ustu umferð hjá körlum í gærkvöld
og verður með einn úrvalsdeild-
arleik kvenna í dag.
Hér er yfirlit yfir það helsta sem
ákveðið var í gær:
Innanlands:
Körfuknattleikssamband Ís-
lands ákvað að leikir gærkvöldsins
og dagsins í dag í efstu deildum
karla og kvenna skyldu fara fram.
Keppni í neðri deildum og yngri
flokkum var aflýst. Í dag verður tek-
in frekari ákvörðun um framhaldið í
efstu deildunum, en þar er keppni á
lokastigi og úrslitakeppnir áttu að
hefjast innan skamms.
Handknattleikssamband Ís-
lands ákvað á fundi síðdegis í gær að
fresta öllum leikjum og mótum frá
og með klukkan 17 í gær. Fram hefði
getað tryggt sér deildarmeistaratitil
kvenna í gærkvöld en leik liðsins við
Stjörnuna var frestað ásamt leikjum
í 1. deildum karla og kvenna, og
leikjum í Olísdeildum kvenna og
karla sem hefðu getað farið fram í
dag og á morgun.
Knattspyrnusamband Íslands
aflýsti samstundis öllum leikjum á
sínum vegum frá og með gærdeg-
inum og næstu fjórar vikurnar. Ís-
landsmótið á að hefjast 22. apríl og
engin breyting hefur verið gerð á því
að svo stöddu.
Bikarhelginni í blaki hefur verið
frestað, en leika átti til undanúrslita
hjá körlum og konum í Digranesi í
Kópavogi í dag og leika úrslitaleik-
ina á morgun.
Úrslitaeinvígi Íslandsmóts
karla í íshokkí milli SA og Fjölnis
hefur verið frestað fram yfir páska.
Íslandsmeistaramóti Karate-
sambands Íslands í kata fullorðinna
sem fram átti að fara í dag hefur
verið frestað.
Fimleikasamband Íslands hefur
frestað öllu sínu mótahaldi.
Erlendis:
Fyrsta risamóti ársins í golfi hjá
körlum, Masters-mótinu í Augusta í
Bandaríkjunum sem átti að hefjast
9. apríl, hefur verið frestað.
Keppni á Players-meistara-
mótinu í golfi sem hófst á Flórída í
fyrrakvöld var aflýst eftir fyrsta
hringinn en til stóð að leika seinni
þrjá hringina án áhorfenda.
Undankeppni handboltans fyrir
Ólympíuleikana í Tókýó sem leika
átti í mars og apríl, hjá konum og
körlum, hefur verið frestað fram í
júní.
Hlaupinu með ólympíueldinn
um Grikkland var hætt í gær, sólar-
hring eftir að hann var tendraður í
Ólympíu, þar sem það dró að sér
mun fleiri áhorfendur en búist hafði
verið við. Eldinum verður skilað til
skipuleggjenda Tókýó-leikanna í
Aþenu 19. mars eins og upphaflega
var ráðgert.
Lundúnamaraþoninu sem fram
átti að fara 26. apríl hefur verið
frestað til 4. október.
Öll íþróttastarfsemi leggst í dvala
Körfuboltafólk á ferð í dag en síðan ákveðið með framhaldið Fram gat ekki tryggt
sér deildarmeistaratitil í gærkvöld Hlaupið með ólympíueldinn stöðvað vegna áhuga
Morgunblaðið/Íris
Bíða Fram fékk ekki tækifæri til að tryggja sér deildarmeistaratitil í gær.
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
Svíþjóð
Kristianstad – Önnered ...................... 37:21
Teitur Örn Einarsson skoraði 2 mörk
fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð-
mundsson lék ekki vegna meiðsla.
Helsingborg – Sävehof ........................30:30
Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í
marki Sävehof.
Staðan:
Alingsås 48, Malmö 47, Kristianstad 46,
Skövde 46, Ystad IF 36, Sävehof 35, IFK
Ystad 33, Lugi 31, Redbergslid 29, Hallby
25, Önnered 16, Guif 15, Helsingborg 13,
Varberg 10.
Lokaumferðin verður leikin á þriðjudag.
Ef ekki verður hægt að leika úrslitakeppn-
ina verður sigurlið deildarinnar krýnt sem
sænskur meistari í vor.
Skuru – Sävehof .................................. 23:31
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði ekki fyr-
ir Skuru.
Lokastaðan:
Höör 40, Skuru 38, Sävehof 34, Lugi 25,
Skara 23, Västerås 21, Heid 18, Kungälv 18,
Skövde 18, Önnered 17, Boden 6, Söder 6.
Ef ekki verður hægt að leika úrslita-
keppnina verður lið Höör krýnt sem
sænskur meistari í vor.
Dominos-deild karla
Þór Ak. – Grindavík.............................. 89:86
Keflavík – Þór Þ.................................... 78:63
Staðan:
Stjarnan 21 17 4 1915:1743 34
Keflavík 21 16 5 1880:1675 32
Tindastóll 21 14 7 1829:1727 28
KR 21 14 7 1807:1742 28
Njarðvík 21 13 8 1832:1653 26
Haukar 21 11 10 1834:1799 22
ÍR 21 11 10 1782:1883 22
Grindavík 21 8 13 1784:1839 16
Þór Þ. 21 7 14 1678:1747 14
Valur 21 7 14 1698:1812 14
Þór Ak. 21 6 15 1808:1997 12
Fjölnir 21 2 19 1752:1982 4
1. deild karla
Álftanes – Vestri................................... 81:76
Staðan:
Höttur 22 20 2 1912:1614 40
Hamar 22 19 3 2172:1930 38
Breiðablik 22 18 4 2213:1826 36
Vestri 22 14 8 1951:1780 28
Álftanes 23 12 11 1952:2018 24
Selfoss 21 8 13 1628:1706 16
Skallagrímur 23 3 20 1871:2179 6
Sindri 19 2 17 1538:1766 4
Snæfell 22 2 20 1731:2149 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Snæfell......... L17.30
1. deild kvenna:
Mustad-höll: Grindavík b – Fjölnir....... L16
Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Keflavík b S16
UM HELGINA!
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Keflavík og Þór Akureyri unnu í gær-
kvöld mikilvæga sigra í 21. og næst-
síðustu umferð Dominos-deildar
karla í körfubolta. Keflavík á enn
veika von um að verða deildar-
meistari eftir sannfærandi 78:63-
heimasigur á Þór Þorlákshöfn. Kefla-
vík þarf enn að treysta á að fallnir
Fjölnismenn vinni topplið Stjörn-
unnar í lokaumferðinni og þá verður
Keflavík að vinna ÍR á sama tíma.
Eins og oft áður var það Dominykas
Milka sem skaraði fram úr hjá Kefla-
vík og skoraði hann 24 stig og tók 18
fráköst. Þá fiskaði hann sjö villur.
Ljóst er að Þór fer ekki í úr-
slitakeppnina og hefur liðið tapað sjö
af síðustu átta leikjum sínum, sem
eru mikil vonbrigði þar á bæ.
Þórsarar enn á lífi
Sigur Keflavíkur var mikilvægur
en sigur Þórs Akureyrar á Grindavík
á heimavelli, 89:86, var lífsnauðsyn-
legur, þar sem Þórsarar hefðu fallið
með tapi. Flest benti til þess framan
af þar sem Grindavík náði 18 stiga
forskoti snemma leiks. Þórsarar neit-
uðu að gefast upp og tryggðu sér
ótrúlegan sigur í blálokin. Kólumb-
íumaðurinn Hansel Atencia var sann-
arlega betri en enginn og skoraði 28
stig og gaf sjö stoðsendingar. Þá
skoraði hann úr tveimur vítum í blá-
lokin og gulltryggði sigurinn. Grind-
víkingar rétt sluppu inn í úrslita-
keppnina, ekki endilega af því að þeir
áttu það skilið, heldur voru þeir
heppnir að liðin fyrir neðan stóðu sig
ekki betur en raun ber vitni.
Eina baráttan sem eftir er í deild-
inni er fallbaráttan, því núna er ljóst
að Stjarnan, Keflavík, Tindastóll og
KR verða með heimaleikjarétt í úr-
slitakeppninni og mæta þau Njarð-
vík, Haukum, ÍR og Grindavík. Á að-
eins eftir að koma í ljós hvaða lið
mætast.
Samkvæmt áætlun er ein umferð
eftir af deildinni og á hún að fara
fram 19. mars næstkomandi. Hvort
hún fari svo fram er önnur spurning
því KSÍ, HSÍ og mörg önnur íþrótta-
sambönd hafa sett keppni á ís vegna
kórónuveirunnar. Pressan á að KKÍ
geri slíkt hið sama eykst með hverj-
um deginum og eflaust einhverjir
sem velta því fyrir sér hvers vegna
leikir gærkvöldsins fóru fram á með-
an hvorki var leikið í handknattleik
né knattspyrnu. Þá þykir sérstaklega
ólíklegt að spiluð verði úrslitakeppni.
Úrslitin ráðast í
lokaumferðinni
Þórsarar geta enn haldið sér uppi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Deildarmeistari Stjarnan eða Keflavík verður deildarmeistari.
FIFA sendi í gærkvöld frá sér yfir-
lýsingu þess efnis að fresta ætti öll-
um landsleikjum í mars og apríl, þar
á meðal umspilsleik Íslands við Rúm-
eníu sem á að vera spilaður 26. mars
næstkomandi. Vegna kórónuveir-
unnar telur FIFA að ekki sé öruggt
fyrir leikmenn að ferðast í landsliðs-
verkefni og þá vill sambandið einnig
koma í veg fyrir að sum landslið séu
með sína bestu leikmenn á meðan
önnur yrðu án lykilleikmanna.
UEFA mun væntanlega taka fyrir
frestun umspilsleikjanna á fundi á
þriðjudaginn kemur.
FIFA vill fresta
EM umspilinu
Morgunblaðið/Eggert
Frestað Leik Íslands og Rúmeníu í
umspili EM verður líklegast frestað.
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu og leikmaður
enska úrvalsdeildarfélagsins Ever-
ton, er kominn í sóttkví eftir að liðs-
félagi hans fann fyrir einkennum
kórónuveirunnar. Þjálfarateymi fé-
lagsins er einnig í sóttkví og þá hef-
ur heimavelli Everton sem og æf-
ingasvæðinu verið lokað.
„Everton staðfestir hér með að
félagið hefur gripið til varúðarráð-
stafana og sent alla leikmenn að-
alliðs félagsins í sóttkví að læknis-
ráði,“ segir í tilkynningu frá
félaginu.
Gylfi og félagar
sendir í sóttkví
AFP
Sóttkví Gylfi Þór Sigurðsson verð-
ur í sóttkví næstu tvær vikurnar.
ICQC 2020-2022
Meistaraflokkur
karla hjá Stjörn-
unni í handbolta
er kominn í
sóttkví eftir að
meðlimur í þjálf-
arateymi liðsins
smitaðist af kór-
ónuveirunni.
Ekki er vitað
hvaða þjálfari
smitaðist, en ljóst
er að fleiri innan handknattleiks-
hreyfingarinnar gætu verið smit-
aðir þar sem Stjarnan lék þrjá leiki
á átta dögum; gegn ÍBV, Aftureld-
ingu og Fram og fóru tveir af þeim
fram í Laugardalshöll. Verða allir
leikmenn Stjörnunnar í sóttkví
næstu tvær vikurnar vegna smits-
ins.
Þá var leik Selfoss og Sindra í 1.
deild karla í körfubolta frestað í
gær vegna gruns um kórónuveiru-
smits hjá leikmanni Selfoss. Kenn-
ari við Fjölbrautaskóla Suðurlands
hefur greinst með veiruna og leik-
maðurinn sótti tíma hjá viðkomandi
kennara. Það gerðu einnig nem-
endur í körfuboltaakademíu hjá
Selfossi. Er leikmaðurinn ekki í
sóttkví.
Þjálfari
Stjörnunnar
smitaður
Rúnar
Sigtryggsson