Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stóru bankarnir þrír kanna nú hvort þeir muni lækka vexti í kjölfar vaxta- lækkunar Seðlabankans. Meginvextir lækkuðu í gær um hálft prósentustig í annað sinn á einni viku og eru nú komnir í 1,75%. Eins og sýnt er á grafinu hér til hliðar hafa vextirnir lækkað nokkuð stöðugt síðustu misseri. Meginvextir voru 5,75% í ágúst 2016 en hafa síðan lækkað um fjögur prósentustig. Til að setja þessar tölur í sam- hengi býður lífeyrissjóðurinn Birta nú 1,69% breytilega vexti af verð- tryggðum lánum. Samkvæmt upp- lýsingavefnum Aurbjörg.is voru það lægstu íbúðalánavextirnir sem voru í boði um hádegisbilið í gær. Þá bauð Birta 3,85% breytilega vexti af óverðtryggðum íbúðalánum sem einnig voru lægstu vextirnir. Hjá Íslandsbanka fékkst það svar að það liggi ekki fyrir hvort bankinn lækki vexti í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabankans. Það sé í skoðun. Svar Arion banka varðandi sama atriði var að viðbrögð bankans ættu að liggja fyrir á næstu dögum. Hjá Landsbankanum fékkst það svar að bankinn myndi „taka vaxta- ákvörðun mjög fljótlega“. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það hafa valdið vonbrigð- um hversu seint og illa vaxtalækk- anir Seðlabankans hafi skilað sér til einstaklinga og fyrirtækja eftir að lífskjarasamningarnir voru undirrit- aðir í apríl í fyrra. Á því geti verið skýringar. Til dæmis að Arion banki hafi verið að skera niður efnahags- reikninginn. Lækki vextina meira Ragnar Þór kveðst aðspurður hafa væntingar um að bankarnir lækki vexti af íbúðalánum, í kjölfar síðustu vaxtalækkunar Seðlabankans, „tölu- vert meira en undanfarið“. Það muni svo aftur þrýsta á vaxtalækkanir hjá lífeyrissjóðunum. Sjóðirnir hafi enda fáa fjárfestingarkosti. „Þeir verða að fylgja í kjölfarið með einhverju móti til að koma sínum peningum í vinnu,“ segir Ragnar Þór. Þá telur hann að vaxtalækkanir og aðrar boðaðar aðgerðir, ekki síst áform um hlutdeildarlán, sem eru einnig nefnd eiginfjárlán, muni örva fasteignamarkaðinn. Það vanti heila kynslóð á fasteignamarkaðinn; ungt fólk og þá sem hafa lent utan kerfis. Með nýju lánunum komist þessir hópar á fasteignamarkaðinn. Meta svigrúmið til vaxtalækkana  Stóru bankarnir meta stöðuna eftir enn eina vaxtalækkun Seðlabanka Íslands  Meginvextir Seðla- bankans hafa lækkað um 4% frá ágúst 2016  Formaður VR kallar eftir vaxtalækkun lífeyrissjóða Morgunblaðið/Golli Á niðurleið Vextir íbúðalána á Íslandi hafa lækkað að undanförnu. Vextir Seðlabankans Frá ársbyrjun 2016 6% 5% 4% 3% 2% 1% '16 '17 '18 '19 '20 5,75% 1,75%Heimild: Seðlabanki Íslands Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þær leiðir sem boðaðar eru í stjórn- arfrumvarpi um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og greiðslu hlutabóta á móti skertu starfshlutfalli, sæta gagnrýni í um- sögnum sem borist hafa til velferð- arnefndar Alþingis í gær og fyrra- dag. ,,Að óbreyttu mun Alþýðusambandið ekki geta mælt með því við félagsmenn aðildar- félaga sinna að þeir taki á sig skerð- ingu á starfshlutfalli með þeirri tekjuskerðingu sem núverandi frum- varp felur í sér,“ segir í umsögn ASÍ. Þar er því haldið fram að frum- varpið víki í veigamiklu atriði frá því sem áður hafi verið kynnt. Er það sérstaklega ákvæðið um að laun frá atvinnurekanda og atvinnuleysis- bætur geti aldrei numið hærri fjár- hæð en 80% af meðaltali heildar- launa launamanns og að hámarksþakið verði 650 þúsund kr. ,,Fyrir einstakling á lægstu launum þýðir þetta að heildartekjur fyrir skatta fara úr 317.000 í tæplega 254.000 kr. á mánuði og fyrir ein- stakling með 400.000 kr. laun á mán- uði í 320.000. Þessir hópar geta ekki tekið á sig slíka lækkun tekna,“ segir í umsögn ASÍ. Krefst ASÍ þess að fallið verði frá 80% ákvæðinu og vill líka að skilyrði um starfshlutfall verði rýmkað og það miðist að lágmarki við 25% starfshlutfall í stað 50% eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Þá sé 650 þúsund kr. hámarkið of lágt. ,,Mik- ilvægt er að aðgerðin fangi fólk með meðallaun á íslenskum vinnumark- aði. Það þýðir að hámarki fari í 800.000 kr.“ BSRB tekur í sama steng og vill að samanlagðar greiðslur launa- greiðanda og bæturnar miðist við 100% meðaltal heildarlauna. Þá eigi hámarksfjárhæðin að vera 800 þús- und en ekki 650 þúsund. Félag íslenskra atvinnuflugmanna mótmælir einnig 650 þúsund kr. há- markinu, sem mismuni stórum hópi millitekjufólks. ,,Launafólk undir 800 þúsundum í heildarlaun fær full- ar bætur. Ráðstöfunartekjur þess fólks munu haldast óskertar. Sá hóp- ur sem hefur yfir 800 þúsund í heild- arlaun skerðist hratt og við 1.300 þúsund krónur og yfir nýtur fólk engra bóta frá ríkinu,“ segir FÍA. Stúdentaráð HÍ bendir á frum- varpið grípi ekki þá stúdenta sem missa starfshlutfall eða störf vegna kórónuveirunnar. Margir náms- menn vinni með námi en séu í litlu starfshlufalli eða undir 40%. BHM lýsir stuðningi við frum- varpið en falla verði m.a. frá 650 þús- und kr. hámarkinu á greiðslur launa og bóta. Hanna þurfi líka sérsniðna lausn fyrir sjálfstætt starfandi ein- staklinga sem verði fyrir miklum tekjumissi um þessar mundir. Frumvarp um hlutabætur gagnrýnt  ASÍ mælir að óbreyttu ekki með að félagsmenn taki á sig skert starfshlutfall Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Störf Gagnrýnt er að 80% þak sé sett á samanlögð laun og bætur. Ferðaþjónustufyrirtækið GoNorth er að verða fyrir gríðarlegu höggi þessa dagana. Þetta segir Unnur Svavarsdóttir, eigandi GoNorth, í umsögn við stjórnarfrumvarp um hlutabætur í atvinnuleysi. ,,Frá því síðastliðinn sunnudag hafa okkur eingöngu borist afbókanir, nú er búið að afbóka allar ferðir með ferðadagsetningum 15. mars til og með 6. apríl og viðbúið að afbók- anir ferða út apríl og jafnvel lengur berist á næstu dögum. Þetta þýðir að skrifstofan verður tekjulaus þetta tímabil, […],“ segir hún. Unnur segir í umsögninni gríðar- lega mikilvægt að falla frá 80% þakinu í frumvarpinu. Ferðaþjón- ustan sé ekki hálaunastétt og regl- an valdi 20% tekjuskerðingu launa- manna. „Það má jafnvel leiða að því líkum að skerðing launa við 80% þakið valdi tregðu launamanna til að fallast á þessa lausn, og þrýsti vinnuveitanda þar með út í upp- sagnir.“ omfr@mbl.is Eingöngu afbókanir á síðustu dögum Jón Magnús Kristjánsson, yfirlækn- ir á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi, spáir því að kórónu- veirusmit hér á landi verði orðin rúmlega 700 um næstu mánaðamót. Þetta kemur fram í færslu sem hann birti á Facebook í gær. „Eftirfarandi er sett fram til fróð- leiks með fyrirvara um að þar er ein- göngu verið með stærðfræðilegum aðferðum að reyna að rýna í mögu- legan fjölda smita næstu tvær vikur miðað við fjölda smita frá 28. febrúar til 17. mars. Eingöngu er um stærð- fræðilega spá að ræða. Vonandi nær samkomubannið að draga úr aukn- ingu smita,“ skrifar Jón Magnús þar sem hann setur fram yfirlit um hvað gæti gerst næstu tvær vikur ef okk- ar tekst ekki að hemja smit. Sam- kvæmt því verða smit orðin 701 hinn 1. apríl næstkomandi. „Ég hvet því alla til að fara að öllu eftir tilmælum sóttvarnalæknis. Við verðum í sam- einingu að ná að stöðva þennan far- aldur,“ skrifar Jón Magnús. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veiruspá Yfirlæknirinn telur að smitum muni fjölga talsvert næstu daga. Telur smit hér verða um 700 hinn 1. apríl  Eingöngu stærðfræðileg spá Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 FRÍ HEIMSENDING! Opið: Mán-fös: 13-18 lau: 11-15 VOR 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.