Morgunblaðið - 19.03.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.03.2020, Qupperneq 10
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is QASHQAI 4X4 SJÁLFSKIPTUR NISSAN Gríptu einn nýjan Nissan Qashqai með sjálfskiptingu og hinu fullkomna Nissan Intelligent fjórhjóladrifi. Nissan Qashqai er einn best útbúni sportjeppinn á markaðnum. Honum fylgir fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti, 7" upplýsingaskjár með samþættingu við snjallsíma, bakkmyndavél, 17" álfelgur og margt fleira. NÝR QASHQAI ACENTA VERÐ: 5.340.000 KR. VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR BL hefur gengið til samstarfs við samfélagssjóðinn Kolvið til að kolefnisbinda notkun allra nýrra bíla sem seldir eru til einstaklinga.www.bl.is/kolefnisjofnun BLkolefnisbindurnotkunnýrrabíla E N N E M M / S ÍA / N M 9 8 1 0 5 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hraðskákmót verður á chess.com í kvöld og hefst það klukkan 19.30. Þetta er fjórða skákmótið á netinu síðan samskiptabann vegna kór- ónuveirunnar var sett á um helgina. Gunnar Björnsson, forseti Skák- sambands Íslands, segir að skák- hreyfingin hafi ákveðið að draga sig ekki í hlé vegna ástandsins í sam- félaginu heldur tefla til sóknar á net- inu. Reynt verði að líkja eftir mótum sem annars hefðu verið haldin og nefnir hann í því sambandi að hrað- skákmót KR, sem séu á mánudögum, hafi verið haldið með sama fyrir- komulagi á chess.com og tekist vel með 44 þátttakendum. Þar á meðal hafi verið tíu titilhafar og Helgi Áss Grétarsson hafi fagnað sigri. Þriðju- dagsmót TR hafi verið með sama hætti, Arenamót hafi verið í gær- kvöldi og annað verði í kvöld. „Við ákváðum að leggjast í sókn en ekki vörn,“ segir Gunnar. Hann bætir við að skákmenn hafi góða reynslu af því að tefla á netinu. Skákskólinn hafi fært kennsluna yf- ir á netið og sama eigi við um aðra skákkennslu. „Sókn er besta vörnin er okkar slagorð,“ segir hann. Bridsmót á netinu Fleiri hafa nýtt sér tæknina, þar á meðal bridshreyfingin. Í fyrrakvöld hófst fjögurra kvölda butler- tvímenningur hjá Bridgefélagi Reykjavíkur (bridgebase.com). Spilað verður kl. 19-20.45 á þriðjudagskvöldum, 2x14 spila tví- menningur á kvöldi, alls átta mót, og gilda fimm bestu til verðlauna. Morgunblaðið/Ómar Skák og mát Helgi Áss Grétarsson sigraði í fyrsta netskámóti vikunnar. Teflt og spilað til sóknar á netinu  Hraðmót í skák og brids í nýju ljósi Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum með ágæta bókunarstöðu fyrir Grænland í sumar og væntum þess að hægt verði að koma öllu í gang á ný fyrir þann tíma,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Air Iceland Connect. Í gær var kynnt sú ákvörðun grænlensku heimastjórnarinnar að allt flug í landinu legðist af frá og með miðnætti á föstudag. Er þetta gert til að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Áður hafði verið tilkynnt að landamærum landsins væri lokað öllum öðrum en dönskum ríkisborgurum. Ljóst er að flug Air Iceland Connect til og frá Grænlandi er komið í biðstöðu. „Þessi ákvörðun á föstudag, að landamærum Grænlands væri lokað fyrir alla nema danska ríkisborgara, hafði strax áhrif. Hún þýddi einfald- lega að ekki væru forsendur fyrir okkar flugi þangað. Því vorum við búin að taka flug úr sölu og tilkynna farþegum sem áttu bókað síðar að þeir yrðu að nýta flug í þessari viku,“ segir Árni. „Okkar farþegar þangað eru að uppistöðu erlendir ferða- menn, um það bil 85-90%,“ segir hann ennfremur. Stór matarsending í gær Air Iceland Connect hefur flogið til þriggja áfangastaða á Grænlandi, til Nuuk, Kulusuk og Ilulissat. Síð- asta flugið var til Kulusuk í gær. Að- eins einn farþegi flaug með til Græn- lands en vélin var full af farþegum á bakaleiðinni. Hins vegar voru tæp- lega þrjú tonn af matvælum og hand- sápu flutt til Kulusuk. Árni viðurkennir að þessi ákvörð- un sé bagaleg fyrir flugfélagið. „Þó erum við ekki núna með háönnina í Grænlandsfluginu en þetta eru þrír áfangastaðir. Auðvitað er vont að þurfa að hætta við það flug en það má segja að eftirspurn eftir flugi í heiminum fari minnkandi. Menn eru meira og minna að loka landamær- um. Eina leiðin til að bregðast við því er að leggja flugið af tímabundið.“ Sóknarfæri í innanlandsflugi Má ekki búast við því að fólk verði ragara við utanlandsferðir í sumar og reiði sig meira á innanlandsflug? „Við getum mögulega séð fram á að það verði aukin ferðalög innan- lands. Að fólk velji frekar þann kost að ferðast innanlands. Það gæti komið að einhverju leyti á móti þeim samdrætti sem er fyrir hendi í ferða- þjónustunni.“ Binda vonir við að flog- ið verði á ný í sumar  Grænlandi lokað  Þrjú tonn af mat og sápu flutt í gær Síðasta ferðin Vél Air Iceland Connect var hlaðin matvælum og sápu á leið til Kulusuk í gær. Grænlandsflugið hefur verið lagt af næstu vikurnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.