Morgunblaðið - 19.03.2020, Side 46

Morgunblaðið - 19.03.2020, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Fullt af nýjungum í grænmetis- og vegan vörulínunni okkar Kynntu þér málið hjá söludeild okkar Veisluþjónustur Skólar • Mötuneyti Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is „Vissulega var aðdragandi en á þeim tíma var ég ekki að kveikja á því að ég væri að stefna í kulnun hratt og örugglega. Minn aðdragandi var langur eins og bókin mín fjallar um, en rétt áður en allt hrundi hjá mér voru ýmis einkenni að koma fram sem ég tengdi kannski ekki við kuln- un. Ég var farin að fara mjög hratt, hugsa hratt og hreyfa mig hratt sem kom til dæmis fram í því að ég var orðin mikill slysarokkur. Ég fleytti mér áfram á stanslausri spennu sem ég áttaði mig ekki á. Ég átti orðið erfitt með að sofa og hvíla mig og fannst fátt sem ég gerði nægilega gott, allt varð að vera fullkomið,“ segir Inga Dagný þegar hún er spurð að því hvort einhver aðdrag- andi hafi verið að veikindum hennar. Þegar hún er spurð að því hvernig henni hafi liðið mánuðina á undan segir hún að það hafi ýmislegt geng- ið á. „Minn vinnustaður var í miklu breytingaferli um þessar mundir og í ótrúlega mörg horn að líta. Eftir á að hyggja virðist mér sem maður fari í einhverslags ofurgír og hrein- lega bræði úr sér að lokum. Bæði andleg og líkamleg geta klárast og þegar slíkt gerist er leiðin löng upp á við aftur. Auðvitað hefur fólk mis- jafnlega mikið þol í svona aðstæðum en af ýmsum ástæðum, s.s. e.t.v. fyrri sögu, var þetta endapunkt- urinn hjá mér,“ segir hún. Inga Dagný þekkti hugtakið kuln- un á þessum tíma en tengdi ekki sér- staklega við það. „Ég gerði það vissulega, bæði sem hjúkrunarfræðingur og yfirmaður á vinnustað en mér datt bara aldrei í hug að ég sjálf gæti lent í kulnun. Ég hélt að ég væri ósigrandi en það var ég sannarlega ekki.“ Fjársjóður í dagbókum Konan sem datt upp stigann er að hluta til byggð á dagbókum Ingu Dagnýjar. „Bókin um konuna sem datt upp stigann varð til í kringum dagbæk- urnar sem ég hélt þegar ég var sem veikust í byrjun. Seinna meir fór ég að velta fyrir mér öllu sem ég náði í um slíka kulnun og örmögnun og skoða orsakir og afleiðingar í mínu tilviki og annarra. Ég sendi þessar hugmyndir á Forlagið/JPV og þar á bæ var áhugi fyrir að vinna þetta áfram og frábært fyrir mig að hafa verðugt verkefni í minni endurhæf- ingu þegar ljóst var að ég var ekki á leið til vinnu,“ segir hún. Hvað lærðir þú af þessu ferli? „Ég lærði að mér var lífs- nauðsynlegt að hægja á og gangast við því hvar ég væri stödd. Ég er enn að læra á hverjum degi að glíma við afleið- ingar kulnunar, s.s. streitu, lítið álagsþol og kvíða og hef not- að þá samlíkingu að stundum eru dag- arnir eins og að reyna að klæða kött í föt. Kötturinn hvæsir og sýnir klærnar og maður þarf að vanda sig. Því býður hver einasti dagur upp á nýjan lærdóm og nýja vitneskju um sjálfa mig. En ég lærði líka hversu dýrmætt lífið er og hvað það er sem skiptir mig raun- verulega máli.“ Hvernig breytti það lífi þínu að komast á þennan stað? „Það breytir lífinu mjög mikið að geta ekki lengur unnið fasta vinnu, maður þarf að endurmeta alla hluti og skoða frá nýju sjónarhorni. Fjár- hagsstaða verður önnur og maður þarf að skoða vandlega eigin huga og heilsu. Ég á gott líf í dag en það er vissulega öðruvísi en áður.“ Hvað getur fólk gert til þess að komast hjá því að upplifa kulnun? „Ég held að álag og hraði sé sam- félagslegt vandamál ekki síður en einstaklingsbundið, og það er erfitt að gangast við því að maður sé á leið í kulnun. En það er hægt að komast hjá erfiðum veikindum með því að þekkja sjálfan sig vel, læra að þekkja einkenni kvíða og streitu og setja sjálfan sig í forgang. Maður þarf að hvílast, passa svefn og and- lega heilsu og ætlast ekki til þess af sjálfum sér að komast yfir alla hluti. Anda djúpt og læra af reynslunni.“ Hvað hefðir þú til dæmis getað gert öðruvísi? „Ég hefði þurft að þekkja mörkin mín og virða þau. Þá hefði verið von til þess að ég hefði áttað mig á því hvert stefndi og gefið sjálfri mér leyfi til að draga úr álaginu. Þegar maður stígur af hringekjunni rifjast upp að maður þarf ekki endalaust að eiga, fara eða gera til að vera ham- ingjusamur. Það getur verið nóg bara að vera.“ „Ég hélt að ég væri ósigrandi“ Inga Dagný Eydal er höf- undur bókarinnar, Kon- an sem datt upp stig- ann, sem nýlega kom út hjá JPV. Hún er hjúkr- unarfræðingur að mennt og var yfirmaður á sínum vinnustað þeg- ar hún upplifði sjálf kulnun 2016. Hún hélt að manneskja eins og hún væri algerlega ósigrandi. Unsplash Upplifði kulnun Inga Dagný Eydal hjúkr- unarfræðingur hnaut ekki um að hún væri sjálf að fara í kulnunar- ástand þótt hún þekkti til einkennanna. Ný og fersk Konan sem datt upp stigann kom út á dög- unum hjá JPV. Líður þér öðruvísi en venjulega? Kulnun getur verið mjög lúmsk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.