Morgunblaðið - 19.03.2020, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Ferðalög á
Jón Örn Guðbjartsson
sjonorn@hi.is
Helga Kristín lætur ekki bara hér við
sitja í vísindamiðlun því hún mun
halda með hópi göngufólks á vegum
Ferðafélags barnanna og Háskóla
Íslands á Helgafell við Hafnarfjörð
innan skamms þar sem hún mun lýsa
tilurð þess sem fyrir augu ber í jarð-
fræðilegum skilningi. Gangan er liður
í samstarfsverkefni HÍ og FÍ sem
ber heitið Með fróðleik í fararnesti.
Með fróðleik í fararnesti er sam-
starfsverkefni Ferðafélags Íslands og
Háskóla Íslands þar sem mörg þús-
und manns, ungir og aldnir, hafa
gengið í borgarlandinu og hlotið
þrennt: góða útivist, fína hreyfingu
og fróðleik í fararnesti frá vísinda-
mönnum Háskólans.
Helgafell er einstakur
móbergshryggur
Það er einstakt að ganga á Helga-
fell enda aðgengilegt fjall í útjaðri
borgarlandsins og mikið útsýni af há-
bungunni yfir Reykjanes og Faxa-
flóa. Það er ekki verra að fá leiðsögn
um eldvirkni og allt sem ber fyrir
augu úr frá jarðfræðilegum pæl-
ingum. Á Íslandi eru fjölbreytt merki
um eldvirkni, stórar eldstöðvar, fjall-
garðar sem mynduðust í sprungu-
gosum og hér er líka mikill jarðhiti
sem tengist eldvirkninni. Jarð-
hitasvæði eru víða á Reykjanesi og
sjást reykirnir frá þeim af efstu þúf-
um Helgafells.
Það sem bætist ofan á eldvirknina
hér eru allir jöklarnir okkar. Þar til
fyrir tíu til ellefu þúsund árum var
landið nánast alhulið ísaldarjökli, sem
bráðnaði svo á örfáum árþúsundum.
Þótt jöklar hopi núna höfum við
nokkur stór jökulhvel uppi á hálend-
inu. Jöklar eru auðvitað víða um heim
en það eru ekki margir staðir þar
sem samspil jökla og eldvirkni er
jafnmikið og fjölbreytt og hér. Þess
vegna er jarðfræði hér einstök og við
höfum jarðfræðifyrirbæri eins og
móbergshryggi sem myndast við
sprungugos undir jökli. Helgafell er
einmitt móbergshryggur. Það verður
án vafa mjög gaman að ganga með
Helgu Kristínu, sem er eins og al-
fræðiorðabók um samspil jökla og
eldfjalla.
Vísindamiðlari á Instagram
Það er gaman að fylgjast með
Helgu Kristínu á Instagram, en þar
heldur hún jafnvel uppi prófum sem
eru notendum reyndar einungis til
skemmtunar en sýna engu að síður
hvar hver og einn er staddur í
„sjálfsnáminu“ hjá doktorsnem-
anum.
„Framan af var þetta einungis
mér sjálfri til skemmtunar,“ segir
Helga Kristín um þetta sjálfsprottna
verkefni sitt á samfélagsmiðlinum.
„Hugmyndin að Instagram-síðunni
kviknaði frekar snemma, þ.e. að deila
myndum sem ég tek á ferðalögum
mínum ásamt fróðleik um jarðfræði.
Ég tek mikið af ljósmyndum, bæði á
venjulega myndavél en líka á dróna.“
Viðbrögðin hafa verið mögnuð, en
Helga Kristín hefur á ótrúlega
skömmum tíma safnað hátt á sjötta
þúsund fylgjendum og ekki er óal-
gengt að hátt í þúsund manns setji
„læk“ við hverja færslu hjá henni og
bæti inn tugum athugasemda.
„Fólki finnst þetta mjög áhugavert
og ég fæ fullt af fallegum skila-
boðum. Það er virkilega gaman þeg-
ar fólk kann að meta efnið sem ég bý
til og deilir með mér áhuga á jarð-
fræði. Það fylgir þessu líka að maður
fær stundum áhugaverð skilaboð, t.d.
fólk sem vill að ég ráði það í vinnu
eða geri heimavinnuna fyrir það,“
segir Helga Kristín og hlær.
Með vísindin í blóðinu – prófaði
geimbúning á Vatnajökli
Helga Kristín segist alltaf verið
„svaka nörd“ og haft mikinn áhuga á
vísindum og náttúru, alveg frá því að
hún var smábarn. „Ég tengi mikið
við hvaða vísindagrein sem er og áð-
ur en ég uppgötvaði ástríðu mína fyr-
ir jarðfræði stefndi ég á læknisfræði.
Ég hef líka mikinn áhuga á útivist,
ævintýrum og ljósmyndun. Jarð-
fræðin sameinar alla þessa þætti.“
Að vissu leyti fékk Helga Kristín
útrás fyrir þetta allt síðastliðið sum-
ar, kannski ekki síst ævintýraþrána,
þegar hún prófaði geimbúning sem
áformað er að NASA noti við ferðir
til reikistjörnunnar Mars. Hún próf-
aði búninginn við Grímsvötn í Vatna-
jökli, en áformað er að senda mannað
geimfar til Mars eftir rétt tíu ár.
Helga Kristín hefur auðvitað mik-
inn áhuga á öllu sem viðkemur
geimnum, enda fæst aukinn skiln-
ingur á eðli alheimsins með rann-
sóknum í jarðvísindum.
Rannsakar Öræfajökul – og
Beerenberg á Jan Mayen
Núna vinnur Helga Kristín að
rannsóknum á eldstöðinni í Öræfa-
jökli ásamt eldfjallinu Beerenberg á
Jan Mayen.
„Þótt valið hafi verið erfitt valdi ég
að fara í eldfjalla- og bergfræði í
meistaranáminu,“ segir hún. „Í
meistaranáminu vann ég rannsóknir
tengdar Öræfajökli. Afrakstur þeirra
rannsókna var mikið magn af gögn-
um sem nýtist áfram í þeim rann-
sóknum sem ég stunda nú í dokt-
orsnáminu.“
Með því að rannsaka þessi tvö eld-
fjöll vonast hún til að greina kviku-
hólfin undir þessum tveimur eld-
fjöllum. „Markmiðið er að sjá hvernig
þau hafa þróast í tímans rás og
hversu margir kvikupokar liggja
undir þeim. Hugsanlega hefur þynn-
ing jökulsins á Beerenberg getað
hleypt eldgosum af stað. Við það að
þessu fargi var lyft af jöklinum er
mögulegt að þrýstingi hafi verið létt
af kvikupokunum og það hafi komið
gosum af stað. Það verður áhugavert
hvort rannsóknir mínar geti leitt lík-
ur að þessari kenningu. Þessar upp-
lýsingar gætu verið mikilvægar á
komandi árum í kjölfar hamfarahlýn-
unar og áhrifa hennar á jökla, enda
eru stærstu eldstöðvar Íslands undir
jökli.“
Jarðskjálftahrina varð í Öræfajökli
árið 2017 og mældust þá uppleyst
efni í Kvíá sem rennur undan jökl-
inum. Að sögn Helgu Kristínar gefur
það vísbendingar um að kvikuinnskot
hafi valdið þessu á fremur litlu dýpi í
jarðskorpunni undir jöklinum. Askja
jökulsins seig þá um rösklega tuttugu
metra. Einnig urðu skjálftar í fjallinu
árið 2018. Öræfajökull er gríðarleg
eldkeila í syðsta hluta Vatnajökuls
með myndalegri jökulhettu sem fyllir
stóra öskju efst á fjallinu.
„Það eru aðeins tvö þekkt eldgos í
Öræfajökli frá landnámi sem við þó
vitum að voru mannskæð. Með því að
rannsaka eldstöðina frá sjónarhóli
jarðfræðinnar getum við gert okkur í
hugarlund hvernig þetta hættulega
eldfjall hegðar sér. Það getur nýst
okkur í undirbúningi fyrir hugsanleg
eldsumbrot í framtíðinni. Ef eldfjöll
eru mikið rannsökuð og við þekkjum
þau vel, eins og t.d. Heklu, getum við
nánast spáð fyrir um gos með nokk-
urra mínútna fyrirvara í ákveðnum
tilvikum.“
Áhuginn kemur manni langt
Helga Kristín segir að dokt-
orsverkefnið hafi eðlilega leitt sig til
Jan Mayen en þangað fór hún í ágúst
síðastliðnum og svaf þá í minnsta
húsi í heimi að henni fannst en
jarðvísindafólk er sjaldnast með
lúxus þegar það vinnur að sínum
mikilvægu rannsóknum.
„Í þeirri ferð náði ég að safna sýn-
um frá allavega sautján mismunandi
eldgosum úr Beerenberg. Með grein-
ingu á efnasamsetningu kristallanna
úr þessum hraunsýnum reikna ég út
á hvaða dýpi þeir mynduðust, sem
gefur vísbendingar um tilurð kviku-
poka þar undir. Aldursgreining á gíg-
um fjallsins mun einnig gefa okkur
vísbendingar um gossögu Bee-
renberg og þar af leiðandi þróun
kvikukerfis fjallsins.“
Helga Kristín er gríðarlega ánægð
með námið í Háskóla Íslands og
hversu samheldinn sá hópur varð
sem hóf með henni nám í jarðfræð-
inni. „Árgangurinn minn í grunn-
náminu var mjög góður hópur og við
tókum öll mikinn þátt í félagslífinu.
Við hittumst enn reglulega. Mér
fannst námið aldrei sérstaklega erf-
itt, þótt það hafi verið krefjandi á
köflum, enda kemur áhuginn manni
langt!“
Leiðir fólk
um fjöll
Doktorsnemi í eldfjalla- og bergfræði
Helga Kristín Torfadóttir stundar doktorsnám í
eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands en hún
hefur vakið feiknaathygli fyrir vísindamiðlun á eigin
Instagram-síðu undanfarin misseri. Þar deilir hún
fróðleik á mannamáli um ótrúlegustu undur sem
snerta jarð- og jöklafræði.
Ljósmynd/Michael Lye
Ævintýraþrá Helga Krístin prófaði
geimfarabúning sem verður notaður
til Marsferða en mönnuð geimför
verða send þangað í nánustu framtíð.