Morgunblaðið - 18.04.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
HVÍTAR
GÆÐA
INNIHURÐIR
Á GÓÐU VERÐI
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Sérkennilegt er að fylgjast meðumræðum um kjaramál þessa
dagana og sérstaklega um samn-
ingana sem kallaðir hafa verið lífs-
kjarasamningar.
Verkalýðsfor-ystan, að
minnsta kosti
hluti hennar, tal-
ar á þann veg að
þessum samn-
ingum verði ef til
vill sagt upp ef
eitthvað vanti
upp á loforð sem
ríkisstjórnin gaf
í tengslum við
samningana.
Þetta er sérkennileg hótun, efhótun skyldi kalla.
Á mbl.is mátti í gær lesa frétt umað atvinnuleysi hefði aukist úr
5% í febrúar í rúm 9% í mars og
stefndi í 17% í þessum mánuði.
Þegar lífskjarasamningarnirvoru gerðir fyrir rúmu ári var
atvinnuleysið hins vegar um og inn-
an við 3%.
Augljóst er að hefði atvinnuleys-ið þá verið á svipuðu róli og nú
hefði ekki verið samið á þeim nótum
sem þá var gert. Hefði atvinnuleys-
ið verið svipað og það er nú hefðu
engar forsendur verið fyrir þeim
miklu kjarabótum sem samið var
um.
Verkalýðsforystan gerir umbjóð-endum sínum engan greiða
með því að hóta samningsslitum.
Það sem hún þarf að gera nú er að
reyna að verja kaupmáttinn en taka
um leið tillit til gjörbreyttra að-
stæðna. Launþegar þurfa síst á því
að halda að verkalýðsforystan bæti
í ískyggilegt atvinnuleysið.
Hótun?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Látinn er í Reykjavík á
95. aldursári Páll Sig-
urðsson, læknir og fv.
ráðuneytisstjóri. Páll
fæddist 9. nóvember
1925 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru hjónin
Sigurður Jónsson sjó-
maður og Ingibjörg
Pálsdóttir húsmóðir.
Páll lauk stúdents-
prófi frá MR 1946,
læknaprófi frá HÍ 1952
og sérnámi í bækl-
unarskurðlækningum í
Svíþjóð 1956. Hann
varð þá sérfræðingur á slysavarð-
stofunni og á Landakoti auk þess
sem hann rak læknastofu í Reykjavík
um árabil. Veturinn 1969-70 stundaði
Páll nám í lýðheilsufræðum við
Bristolháskóla og lauk þaðan DPH-
prófi vorið 1970.
Páll var skipaður fyrsti ráðuneyt-
isstjóri heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins 1970 og gegndi
því embætti til starfsloka 1995. Vet-
urinn 1982-83 var hann ráðgjafi hjá
Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar í Kaupmannahöfn
og 1973-80 var hann yfirlæknir hjá
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfs-
bjargar, með leyfi ráðherra, svo unnt
yrði að opna stofnunina.
Páll gegndi fjölmörgum trún-
aðarstörfum, sat m.a. í stjórn
Læknafélags Reykjavíkur og var for-
maður Skurðlækna-
félags Íslands. Hann
var borgarfulltrúi Al-
þýðuflokksins í
Reykjavík 1966-70 og
sat í ýmsum nefndum
hjá borginni. Þá var
hann formaður
stjórnarnefndar Rík-
isspítala 1973-83 og átti
sæti í eða var formaður
fjölda opinberra nefnda
um heilbrigðis- og al-
mannatryggingamál.
Páll skrifaði fjölda
greina um heilbrigðis-
og almannatryggingamál í íslensk og
erlend blöð og tímarit. Eftir starfslok
gaf Páll út bókina Heilsu og velferð,
þætti úr sögu heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins 1970-1995.
Hann var sæmdur hinni íslensku
fálkaorðu 1978 og var Paul Harris
Fellow frá 1988. Þá var hann kjörinn
heiðursfélagi í Læknafélagi Íslands.
Páll kvæntist 19. ágúst 1949 Guð-
rúnu Jónsdóttur geðlækni, f. 1926,
sem lést 27. nóvember sl. Börn þeirra
eru tvíburarnir Jónína tannlæknir og
Ingibjörg lyfjafræðingur, f. 1949,
Dögg hæstaréttarlögmaður, f. 1956,
og tvíburarnir dr. Sigurður Páll geð-
læknir og Jón Rúnar hæstaréttar-
lögmaður, f. 1960. Barnabörnin eru
níu og barnabarnabörnin eru 17.
Útför Páls verður 24. apríl nk. kl.
13. Streymt verður frá athöfninni.
Andlát
Páll Sigurðsson
Vinna við hreinsun á götum og stíg-
um Reykjavíkur eftir veturinn er haf-
in af krafti. Byrjað var nokkru fyrir
páska, en veður setti strik í reikning-
inn því götusópar geta ekki unnið
þegar hitastig er við frostmark. Unn-
ið var á skírdag og annan í páskum til
að vinna upp þá daga sem féllu út.
Björn Ingvarsson, stjórnandi hjá
þjónustumiðstöð borgarlandsins, seg-
ir á vef borgarinnar að fjölförnustu
leiðirnar verði hreinsaðar fyrst. Á það
við um helstu göngu- og hjólastíga,
sem og stofnbrautir og tengigötur.
„Þessar meginleiðir liggja þvert
um borgarlandið og njóta því for-
gangs, en að lokinni hreinsun þeirra
verður farið hverfaskipt í húsagötur
og gangstéttar, sem verða sópaðar og
þvegnar,“ segir Björn.
Á vef Reykjavíkurborgar – reykja-
vik.is/hreinsun – má sjá verkáætlun
vegna hreinsunar og geta íbúar séð
hvenær farið er í þeirra götu.
Björn segir að athugulir vegfar-
endur eigi til að gera athugasemdir
við þrifin og benda á að ekki sé nógu
vel þrifið. Hann biður fólk um að at-
huga að fyrsta sópun sé oft gróf-
sópun. Víða þurfi að taka mikinn sand
upp af götum og stígum, en síðar
verði farið í yfirferð og götuþvott.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Þrif í borginni Götusópari er hér að
störfum í Þingholtunum.
Hreinsun hafin á götum og stígum
Fjölförnustu leiðirnar hreinsaðar fyrst Síðan taka húsagöturnar við