Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 18.04.2020, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2020 Þ að má ganga að því vísu að við mannskepn- urnar höfum aldrei áð- ur upplifað okkur sem jafn samhangandi heild. Við erum meðvituð um ógn sem steðjar að og verður ekki sigr- uð með altæku vopni í eitt skipti fyrir öll – –eins og margir vildu vona. Varnarbaráttan við „ósýni- legan“ óvin er sameiginlegt verk- efni allra – þvert á þjóðir, uppruna, tungumál, kyn, aldur, stétt og stöðu. Það má vera að í heiminum finn- ist samfélag sem hefur ekki orðið fyrir áhrifum af Covid-19, en ég ætla samt að leyfa mér að nota orðið „við“ um mannskepnuna al- mennt – við eins og í manneskjur með tilfinningar og þrár, líkama og sál. Við erum undursamleg sköpun – tengslaverur sem þrífast best í samfélagi; í senn huggandi og um- hyggjusöm eins og foreldrar en forvitin og hvatvís, þyrst í áskor- anir eins og börn. Hvílíkt ævintýri að fá að vera til! Hverju erum við ekki tilbúin til að fórna fyrir það? Hvert mannsbarn þráir að upp- lifa öruggi, hafa vissu um fyrir- sjáanlega framtíð. Vanlíðan og ótti plagar því marga í dag og sprettur af tilfinningu fyrir því að geta búist við hverju sem er. Eins og í stríði. Þó virðast stríð samtímans ekki jafn miskunnar- og tilgangslaus og þetta ástand: Á rúmum mánuði hafa yfir 100.000 manns látist á Vesturlöndum – Bandaríkjunum og Evrópu. Það er meiri tollur í mannslífum talið en þau stríð sem við höfum getað eða viljað fylgjast með. Hvorki mannfallið né aðgerð- ir stjórnvalda og ráðamanna eru leyndarmál eða einkamál þjóða – þótt einstaka þjóðar- leiðtogar skynji það ekki. Þetta er veru- leiki sem við stöndum í saman. Sítengd. Heilbrigðar mann- eskjur vilja upplýs- ingar sem hægt er að treysta. Mikil huggun felst því í að geta varpað áhyggjum yfir ástandinu á for- ystufólk sem virðist vita hvað það er að gera. Við hlýðum ráð- leggingum þess. Við þráum yfirsýn og andlegt jafnvægi en erum vissulega undir sömu lögmál seld og allir aðrir þegar svona hörmungar dynja yfir. Margir spá því að viðbrögðin við faraldrinum og al- þjóðlegu efnahags- og samfélagstjóni muni breyta hugarfari okk- ar til framtíðar. Mannkynið þurfi að endurmóta menningu sína og laga að nýjum veruleika sem byggi á meðvitund um ábyrgð okkar í nær- samfélaginu. Tengsl á milli upp- lýstra ákvarðana okkar og vel- ferðar annarra eru sýnilegri en fyrr. En er það nóg? Kjarkurinn til að gera rétt Vísindi og upplýsingagjöf hafa öðlast nýjan sess í sviðsljósi fjöl- miðla, en á sama tíma hafa miðl- unarmöguleikarnir aldrei verið jafn fjölbreyttir, ólíkir og opnir til túlkunar. Við getum raunar hvorki treyst því sem við sjáum, heyrum né lesum, nema vera stöðugt meðvituð um heildarmyndina. Það verður lífsnauðsyn að temja sér vizku, innsæi og dómgreind. Skiln- ing. Yrði það ekki stór- brotinn áfangi í mann- kynssögunni ef ávöxtur þessarar guðs- voluðu pestar yrði samkennd þjóða? Þótt maður óski þess að heimur vaxi í vizku og náð þá er engu að treysta. Guð gefi manni þó æðruleysið sem til þarf, svo sætta megi sig við það sem maður fær ekki breytt. Það væri vonarrík blessun. Um leið verðum við þó að biðja um kjark til að breyta því sem við fáum breytt í þreng- ingunni miðri. Getum við beðið fyrir mótefni gegn sálfræðilegum og félagslegum sjúkdóm- um sem plaga þjóðir og samfélög? Vörn gegn afskiptaleysi, sjálfhverfu og sjálfs- upphafningu? Við viljum í raun hvorki að græðgi né ótti stjórni líf- um okkar. Við viljum elska, vona og virða og þráum að gera það sem er rétt. Yfirstandandi ástand hefur sett okkur í ítrustu aðstæður, þar sem við gerum okkur grein fyrir því að það er í eðli okkar að líða betur þegar við gerum það sem er rétt. Það er falleg staðreynd. Upprisa! – Er þetta þá komið? Í sálrænu genamengi okkar býr upprisutrú, vissa um að þrenging- unum linni og að lífið verði aftur fyrirsjáanlegt með einhverjum hætti. Heimspekingar og hugs- uðir keppast við að boða þá von, rétt eins og vísindamennirnir sem við leggjum allt traust á um þessar mundir. Sú trú á aftur á móti rætur sínar í heimsmynd sem byggir á hinum kristna arfi og boðskap. Lífið sigrar dauðann og betri tímar eru í nánd, ef sam- staða og ábyrgð okkar heldur í þágu gilda sem koma fleirum til góða en aðeins okkur sjálfum. Upprisutrúin gegnsýrir menn- ingu okkar með boðskapnum um að Jesú hafi sigrað dauðann, átt samfélag með lærisveinum sín- um, fært þeim kjark til að lifa samkvæmt nýjum gildum, og á erindi inn í aðstæður okkar í dag. Og trúin á betri heim, annað líf og önnur gildi, staðfestir að hug- arfarsbreytingin er ekki bara möguleiki heldur nauðsynleg for- senda þess að þroskast, dafna og jafnvel blómstra á komandi tím- um. Það er ekki bara fegurð sem býr að baki þeirri hugsjón heldur sannleikur sem er hvorki leynd- armál né einkamál. Það eru vísindi á bak við þann veruleika að trúin breytir okkur þegar hún er sönn þótt hún sé leyndardómsfull í eðli sínu. En það er ekki nóg að Kristur rísi upp – því leyndardómurinn felst í að vonin umbreyti lífum okkar. Guð gefi þér rými til að um- faðma upprisutrúna, því í henni felst staður lífs og fyrirheiti um að við munum taka gleði okkar í sameiningu á ný; Guðs góða sköpun, uppreistar manneskjur. Kirkjan til fólksins Kristin trú „Í sálrænu genamengi okkar býr upprisutrú, vissa um að þreng- ingunum linni og að lífið verði aftur fyrirsjáanlegt með einhverjum hætti. “ Er þetta þá komið? Hugvekja Eftir Arnald Mána Finnsson Arnaldur Máni Finnsson Við munum sem mannkyn þurfa að endur- móta menningu okkar til að laga hana að nýjum veru- leika sem byggir á meðvitund um ábyrgð okk- ar í nærsam- félaginu. Höfundur er prestur á Staðastað, Snæfellsnesi. arnaldur.fi@kirkjan.is Sveitarfélög landsins hafa um langt árabil barist fyrir því að gerð verði breyting á lögum um virðisaukaskatt í þá veru að sveitarfélög fái 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna fráveituframkvæmda. Einnig hafa sveitar- félögin óskað eftir því að breytingin taki til virðisaukaskatts sem sveitarfélögin sannanlega greiddu vegna slíkra framkvæmda eftir að stuðningur samkvæmt lögum nr. 53/ 1995 féll niður árið 2009, í tíð um- hverfisráðherra sem þá eins og nú kom úr röðum Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs. Stuðn- ingurinn sem gilti þá var um 20% af framkvæmdakostnaði sveitarfélag- anna - ígildi afnáms virðisauka- skatts. Uppsöfnuð viðhaldsþörf fráveitu sveitarfélaga var varlega áætluð 60- 100 milljarðar króna á núvirði árið 2017 af félagi ráðgjafarverkfræð- inga og Samtökum iðnaðarins. Virðisaukaskattur af slíkum fram- kvæmdakostnaði er í dag um 12-20 milljarðar króna. Aprílgabb umhverfisráðherra? Umhverfisráðherra birti grein í Morgunblaðinu þann 1. apríl sl. undir yfirskriftinni „Ríkið styður við fráveituframkvæmdir“. Þar til- kynnti ráðherra að nú ætlaði hann að gera gangskör í fráveitumálum og um leið að efla atvinnulífið með auknum framkvæmdum og hnýtti við – „á tímum þar sem ekki væri vanþörf á“. Upphæðin sem ráðherra ætlar að leggja í púkkið til eflingar og viðspyrnu atvinnulífsins er 200 milljónir króna á þessu ári. Til sam- anburðar voru árleg framlög ríkis- ins til fráveituframkvæmda sveitar- félagana á árunum 1996 til 2008 að meðaltali um 450 milljónir króna á verðlagi dagsins í dag. Lægst voru framlögin 250 milljónir króna og hæst urðu þau árið 2002 – 700 millj- ónir króna á núvirði. Ráðherra tilkynnti einnig að unn- ið væri að nánari útfærslu stuðn- ingsins þó að Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfé- laga landsins, hefði ítrekað bent á einföldustu leiðina – að afnema virðisaukaskatt af fráveitufram- kvæmdum. Í stað þess að fara ein- földu leiðina situr ráðherra nú við smíðar lagabreyt- ingabálks með upp- talningu á öllum þeim gerðum fráveitufram- kvæmda sem ekki verða styrkveitingar- hæfar, þar gengur ráðherra rösklega til verks – listinn er langur. Enn fremur kom fram í tilkynningu ráðherra að hann myndi leggja áherslu á að stuðningur ríkis- ins yrði enn meiri á næstu árum. Upphæðin þetta árið, 200 milljónir króna, 0,2% af fjárfestingarþörfinni, gefur ekki góð fyrirheit um fram- haldið. Mín von er sú að um saklaust aprílgabb hafi verið að ræða hjá ráðherranum geðþekka og að hann muni leiðrétta tilkynninguna sem fyrst. Það er aftur á móti fagnaðar- efni ef rétt er að ráðherra sé að komast til meðvitundar um að frá- veitumál séu eitt mikilvægasta um- hverfismál sveitarfélaga. Ég hvet því umhverfisráðherra til að halda fast í núvitund sína og feta veg skynsamlegra lausna á nærum- hverfisvandanum. Umhverfismál á að nálgast á grundvelli almannasjónarmiða um vernd umhverfisgæða, ekki sem uppsprettu skattstofna. Ríkið á að hvetja sveitarfélögin til að vinna á nærumhverfisvandanum og standa myndarlega við bakið á þeim svo þau geti uppfyllt lagalegar skyldur sínar ásamt því að hvetja þau sér- staklega til að auka hreinsun skolps svo draga megi úr mengun vatns og sjávar hvar nær öll okkar matvæla- framleiðsla á sitt upphaf og endi. Hvatinn blasir við - afnema þarf án tafar virðisaukaskatt af öllum frá- veituframkvæmdum sveitarfélaga. Viðspyrna fyrir Ísland – aprílgabb umhverfisráðherra? Eftir Tómas Ellert Tómasson »Mín von er sú að um saklaust apríl- gabb hafi verið að ræða hjá ráðherranum geð- þekka og að hann muni leiðrétta tilkynninguna sem fyrst. Tómas Ellert Tómasson Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg, varaformaður bæjarráðs og formaður eigna- og veitunefndar. tomasellert@midflokkurinn.is 0 100 200 300 400 500 600 700 2008200720062005200420032002200120001999199819971996 Stuðningur ríkisins við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga árin 1996-2008 -uppfært mv. byggingarvísitölu í apríl 2020- Árlegt framlag ríkisins 1996-2008 Meðaltal framlaga árin 1996-2008 Boðað árlegt framlag umhverfisráðherra Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.