Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 22
Helgi Björnsson söng sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar í þáttunum Heima með Helga, en í kvöld hefjast þættirnir Það er komin Helgi með örlitlum áherslubreytingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég er nú bara rétt að byrja,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson aðspu rðu r u m hvort hann sé nú ekki að fara að hægja á sér.
Helgi hefur, sem oft áður, í nógu að
snúast, en um helgina verða frum
sýndar tvær þáttaraðir sem hann
fer með hlutverk í, auk þess sem
hann ásamt félögum sínum stofn
aði nýlega Félag sjálfstætt starfandi
tónlistarmanna.
„Þegar maður er orðinn rúmlega
sextugur þarf að skipuleggja sig
betur, skipuleggja orkuna betur,“
segir Helgi. „Maður er kannski ekki
jafn mikið að spreða orkunni í eitt
hvað sem maður var til í áður. Það er
aðeins minni gelgja í manni. Maður
á samt nóg inni!“
Gjafakörfur á tröppunum
Þegar kófið lagðist yfir þjóðina með
tilheyrandi samkomubönnum tók
Helgi upp á því að bjóða lands
mönnum á tónleika í heimahúsi
í þáttunum Heima með Helga.
Íslendingar létu ekki segja sér það
tvisvar og þættirnir fengu met
áhorf.
„Auðvitað átti ég von á því að
þetta fengi eitthvað áhorf í ljósi
aðstæðna, en kannski ekki að það
yrðu svona margir að horfa.“ Hug
myndin að þáttunum kom til þegar
faraldurinn skall á Ítalíu, en Helgi
og fjölskylda bjuggu þar skömmu
fyrir aldamótin.
„Við eigum stóran og góðan vina
hóp þarna úti, svo við fylgdumst
grannt með hvernig hlutirnir voru
að þróast þar og hvernig fólk brást
við þessum aðstæðum,“ segir Helgi.
„Það var óneitanlega kveikjan að
þáttunum, en þegar við sáum í hvað
stefndi á Íslandi þurftum við að gera
eitthvað fljótt.“
Stórskotalið íslenskra tónlistar
manna mætti til að syngja með
Helga í stofunni, en meðal gesta
voru Björn Jörundur, KK og Salka
Sól. „Það var aldrei neitt mál að fá
fólk til að koma í þáttinn. Kannski
ekki furða í ljósi þess að flestir voru
í hálfgerðu straffi og höfðu lítið að
gera. Flestir tóku tækifærinu fagn
andi.“
Viðtökur landsmanna fólust þó
ekki einungis í miklu áhorfi, en
Helgi lýsir því hvernig viðbrögð
fólks úti á götu hafi verið. „Þetta
var alveg hreint ótrúlegt. Fólk kom
til okkar og þakkaði fyrir að við
hefðum haldið sér á lífi og jafnvel
bjargað þjóðinni. Þetta var meira
að segja orðið þannig að við fund
um gjafir á tröppunum fyrir utan
hjá okkur. Körfur með alls konar
fíneríi, kökur og fleira til. Þetta var
fallegt og hjartahlýjandi, og maður
fór eiginlega bara hjá sér.“
Íslenski fjársjóðurinn
Auk tónlistaratriðanna var fastur
dagskrárliður ljóðalestur Vilborgar
Halldórsdóttur, leikkonu og eigin
konu Helga. „Við spurðum okkur
hvernig við myndum hafa þetta
heima hjá okkur,“ segir Helgi.
„Þegar faraldurinn fór af stað
voru samin ýmis ljóð sem áttu upp
sprettu sína í faraldrinum og á sam
félagsmiðlum birtust ýmis ljóð sem
töluðu beint inn í ástandið. Við vild
um líka gefa þessu ákveðna kjöl
festu – sýna að við værum öll í þessu
saman með því að sækja í þennan
sameiginlega tónlistararf. Það sést í
svona ástandi hvað fólk leitar mikið
í þennan íslenska fjársjóð af lögum
og textum sem við eigum, sem er
svo sameinandi fyrir þjóðina. Þessi
kvöldvökustemmning.“
Í kvöld hefja svo göngu sína
þættirnir Það er komin Helgi sem
eru beint framhald af Heima með
Helga. Þrátt fyrir að þeir séu teknir
upp í myndveri segir Helgi að það
sé mikilvægt að halda heimilislegri
stemmningu. „Hitt spratt eiginlega
bara upp úr ástandinu, en þegar við
vildum halda áfram þá ákváðum
við að gera smá áherslubreytingar.
Við gátum heldur ekki lagt það á
heimilið að vera alltaf heima,“ segir
hann og hlær.
„Við breytum vissulega leik
myndinni og forminu aðeins – en
samt ekki. Hljómsveitin verður
áfram á sínum stað að leika af
fingrum fram og svo koma gestir í
heimsókn til að sprella með okkur.
Það eru ýmsir möguleikar sem
við eigum eftir að skoða betur
þegar fram líða stundir. Það verða
einhverjar nýjungar, og einhver
skemmtilegheit sem voru ekki í
hinum þáttunum. Mjög svipað allt
saman, en eitt skref upp á við.“
Ekki tókst að veiða upp úr Helga
hvaða gestum má búast við í þætt
inum, en hann segir dulúðina hluta
af sjarmanum. „Við ætlum nú bara
að leyfa þessu að koma í ljós. Það er
svo gaman að hafa hlutina óvænta.
Við heyrðum til dæmis að fólk hefði
verið með getraunir og verðlaun
í kringum það hverjir yrðu gestir
hvaða kvöld, sem er náttúrlega frá
bær stemmning. Við höldum bara
áfram að hafa þetta hulið.“
Hverfum aftur í kvöldvökurnar
Helgi Björnsson hefur í nógu að snúast. Hann tekur þátt í tveimur sjónvarpsþáttum sem eru frumsýndir um
helgina, sinnir formennsku í félagi sjálfstætt starfandi tónlistarmanna og stefnir á veitingarekstur á Hótel Borg.
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas@frettabladid.is
MAÐUR ER KANNSKI EKKI
JAFN MIKIÐ AÐ SPREÐA
ORKUNNI Í EITTHVAÐ SEM
MAÐUR VAR TIL Í ÁÐUR.
ÞAÐ ER AÐEINS MINNI
GELGJA Í MANNI. MAÐUR
Á SAMT NÓG INNI!
Framhald á síðu 24
1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð