Fréttablaðið - 19.09.2020, Síða 40

Fréttablaðið - 19.09.2020, Síða 40
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 30 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við- skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Helstu verkefni og ábyrgð: • Uppbygging á aðferðarfræði eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviði og fjarskiptafyrirtækja. • Framkvæmd úttekta á öryggisskipulagi aðila og gerð prófana á grundvelli fjarskiptalaga og NIS-laga. • Rannsókn á alvarlegum atvikum (netárásum) sem verða í net- og upplýsingakerfum eftirlitsskyldra aðila. • Þátttaka í uppbyggingu á samhæfingarhlutverki PFS og samvinna við önnur eftirlitsstjórnvöld við framkvæmd eftirlits. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða sambærilegu. • Reynsla á sviði öryggismála net- og upplýsingakerfa, t.a.m. framkvæmd prófana og/eða úttekta, svo sem á grundvelli staðla, er kostur. • Þekking á stafrænum innviðum og stafrænni þjónustustarfsemi er kostur. • Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi. • Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum. • Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin. Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings við eftirlit með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og fjarskiptafyrirtækja Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja, stafrænna grunnvirkja og veitenda stafrænnar þjónustu í samræmi við fjarskiptalög og ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-laga). Þá gegnir stofnunin ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart öðrum eftirlitsstjórnvöldum í því skyni að stuðla að sam- ræmdri framkvæmd eftirlits á sviði netöryggis. PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Umsjón með starfinu hefur Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, fagstjóri samhæfingar net- og upplýsingaöryggis, tölvupóstur: unnur@pfs.is. Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Þjóðskrá Íslands leitar að framsæknum og reyndum leiðtoga til að stýra skrifstofu forstjóra. Undir sviðið heyrir innleiðing stefnu stofnunarinnar, mannauðsmál, fjármál, rekstur, gæða- og öryggismál og persónuverndarmál. Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri til að móta stefnu og skipulag, sem og þróa og innleiða nýja ferla. Sviðsstjóri skrifstofu forstjóra Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur • Marktæk stjórnunar- og rekstrarreynsla er skilyrði • Marktæk reynsla af stefnumótun, markmiðasetningu og innleiðingu stefnu • Marktæk reynsla af fjármálastjórnun og áætlanagerð • Marktæk reynsla af opinberum rekstri og þekking á lögum um opinber fjármál • Reynsla af mannauðsstjórnun er kostur • Reynsla af straumlínustjórnun er kostur • Þekking á ISO27001 og persónuverndarlöggjöf er kostur • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Góðir skipulagshæfileikar, leiðtogahæfni, framsýni og drifkraftur í starfi • Metnaður, skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti Helstu verkefni og ábyrgð: • Stjórnun og skipulagning sviðsins • Áætlunargerð, stefnumótun og framkvæmd á stefnu stofnunarinnar • Samstarf og stuðningur við önnur svið stofnunarinnar er varða ábyrgðarsvið sviðsins • Tengiliður við ráðuneyti og önnur stjórnvöld www.skra.is www.island.is Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfsviðs Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat og umsjón með útgáfu vegabréfa. Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum og nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að gera betur í dag en í gær. Við hvetjum öll kyn til að sækja um. ÁREIÐANLEIKIVIRÐING SKÖPUNARGLEÐI Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2020. Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar í Alfreð ráðningarkerfi. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Margrét Hauksdóttir, forstjóri, netfang mh@skra.is. Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á báðum stöðum. 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.