Fréttablaðið - 19.09.2020, Qupperneq 40
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti
og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti
og tengd mál. Hjá PFS starfa 30 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við-
skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Uppbygging á aðferðarfræði eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviði
og fjarskiptafyrirtækja.
• Framkvæmd úttekta á öryggisskipulagi aðila og gerð prófana á grundvelli fjarskiptalaga
og NIS-laga.
• Rannsókn á alvarlegum atvikum (netárásum) sem verða í net- og upplýsingakerfum
eftirlitsskyldra aðila.
• Þátttaka í uppbyggingu á samhæfingarhlutverki PFS og samvinna við önnur eftirlitsstjórnvöld
við framkvæmd eftirlits.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða
sambærilegu.
• Reynsla á sviði öryggismála net- og upplýsingakerfa, t.a.m. framkvæmd prófana og/eða
úttekta, svo sem á grundvelli staðla, er kostur.
• Þekking á stafrænum innviðum og stafrænni þjónustustarfsemi er kostur.
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi.
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum.
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin.
Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings við eftirlit með öryggi
net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og fjarskiptafyrirtækja
Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja, stafrænna grunnvirkja og veitenda stafrænnar þjónustu í samræmi við fjarskiptalög og ný lög um
öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-laga). Þá gegnir stofnunin ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart öðrum eftirlitsstjórnvöldum í því skyni að stuðla að sam-
ræmdri framkvæmd eftirlits á sviði netöryggis.
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Umsjón með starfinu hefur Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, fagstjóri samhæfingar net- og upplýsingaöryggis, tölvupóstur: unnur@pfs.is.
Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs.
Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Þjóðskrá Íslands leitar að framsæknum og reyndum leiðtoga til að stýra skrifstofu forstjóra. Undir sviðið heyrir innleiðing stefnu
stofnunarinnar, mannauðsmál, fjármál, rekstur, gæða- og öryggismál og persónuverndarmál. Um er að ræða spennandi starf þar sem
viðkomandi gefst tækifæri til að móta stefnu og skipulag, sem og þróa og innleiða nýja ferla.
Sviðsstjóri skrifstofu forstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
• Marktæk stjórnunar- og rekstrarreynsla er skilyrði
• Marktæk reynsla af stefnumótun, markmiðasetningu og innleiðingu stefnu
• Marktæk reynsla af fjármálastjórnun og áætlanagerð
• Marktæk reynsla af opinberum rekstri og þekking á lögum um opinber fjármál
• Reynsla af mannauðsstjórnun er kostur
• Reynsla af straumlínustjórnun er kostur
• Þekking á ISO27001 og persónuverndarlöggjöf er kostur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar, leiðtogahæfni, framsýni og drifkraftur í starfi
• Metnaður, skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Stjórnun og skipulagning sviðsins
• Áætlunargerð, stefnumótun og framkvæmd á stefnu stofnunarinnar
• Samstarf og stuðningur við önnur svið stofnunarinnar
er varða ábyrgðarsvið sviðsins
• Tengiliður við ráðuneyti og önnur stjórnvöld
www.skra.is
www.island.is
Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks
og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga
um réttindi þeirra og eignir. Við sinnum því með
því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um
fólk, mannvirki og landeignir. Innan starfsviðs
Þjóðskrár Íslands er rekstur fasteignaskrár og
þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat
og umsjón með útgáfu vegabréfa. Við leggjum
ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða
samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu.
Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við
okkur þá sem vilja starfa í anda gilda okkar um
virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika. Við
kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni
og hraða í vinnubrögðum og nýtum aðferðir
straumlínustjórnunar til að gera betur í dag en í
gær. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
ÁREIÐANLEIKIVIRÐING
SKÖPUNARGLEÐI
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2020.
Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar í Alfreð ráðningarkerfi. Athygli er vakin á því
að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Margrét Hauksdóttir, forstjóri, netfang mh@skra.is.
Þjóðskrá Íslands hefur tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Reykjavík. Starfið getur verið staðsett á báðum stöðum.
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R