Fréttablaðið - 19.09.2020, Side 64
Kryddaðu síkólnandi tilveruna með
heitum og krydduðum vínum.
Í sífellt lengra skammdegi og yfirgangandi haustlægðum er tilvalið að koma smá hita í
kroppinn með því að sötra góm-
sætt, kryddað vín, í ullarsokkum
undir mjúku flókateppi. Það
skemmir svo alls ekki fyrir að það
flökti kertaljós í seilingarfjarlægð
og að eitthvað skemmtilegt sé í
viðtækinu.
1 flaska rauðvín (750-ml)
1 appelsína skorin í sneiðar
6 negulnaglar heilir
3 kanilstangir
3 stjörnuanís
3 og ½ matskeiðar hunang
1 dl brandí
Þrúgur eins og malbec, merlot
eða cabernet sauvignon virka til
dæmis vel. Blandið saman öllum
innihaldsefnum í miðlungs pott
og náið upp suðu. Lækkið hitann
og látið malla á lágum hita í um tíu
mínútur. Ef ekki er til brandí er vel
hægt að skipta því út fyrir viskí-
lögg eða einfaldlega sleppa því.
Fallegt er að bera drykkinn fram í
glermáli með haldi eða í dökkum
leirbolla. Þá er tilvalið að skreyta
drykkinn með appelsínusneið og
broti af kanilstöng.
Kryddaðar
haustlægðir
8 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNJÓTUM Í VETUR
Líttu upp í næturhiminninn í vetur og fræðstu um himintumglin. MYND/GETTY
Geimurinn er óravíður og himintunglin eru óteljandi og frá Jörðu má sjá með
berum augum um 5.000 hnetti.
Veturinn á Íslandi er í lengra lagi,
miðað við aðra staði á jörðinni. Í
stað þess að örvænta er um að gera
að fagna því með því að kynna
sér stjörnurnar og stjörnumerkin.
Þegar himinninn er heiður er fátt
skemmtilegra en að taka smá rúnt
á stað þar sem borgarljósin trufla
ekki um of og horfa til himins.
Ýmis áhugaverð stjörnukort fást
fyrir snjallsíma sem sýna nöfn
stjarnanna og stjörnumerkin sem
þau mynda. Þar má nefna Star
Chart, Star Walk 2 og Star Lite. Þá
er tilvalið að fylgjast með Stjörnu-
fræðivefnum á Facebook til að fá
nýjustu geimfréttir. Sumt má sjá
frá Jörðu eins og loftsteinadrífuna
Geminíta sem á sér stað ár hvert á
milli 7. desember og 17. desember.
Þegar best lætur sjást oft um eitt
til tvö stjörnuhröp á mínútu.
Horfðu til himins í allan vetur
Haustið er yndislegt og ljóðrænt.
Á svölum haustdögum er notalegt að hafa gott eyrna-konfekt tiltækt, hvort sem
ekið er um þjóðveginn, rölt um
skógarstíga eða bara kósí við
kertaljós. Hér er listi yfir 10 bestu
haustlögin að mati Billboard:
n Autumn in New York með Ellu
Fitzgerald og Louis Armstrong
sendir hlustendur í rómantíska
síðdegisgöngu í haustlitum
Central Park.
n Wake me up when September
ends með Green Day felur í sér í
sér þrá eftir að september komi
og fari f ljótt.
n Pale September með Fionu
Apple er um haustdaga sem falla
að eins og mjúk bómull.
n Autumn Sweater með Yo La
Tengo kallar á kósí dag í uppá-
halds haustpeysunni.
n Gone till November með Wyclef
Jean á við allt árið en er skyldu-
hlustun í nóvember.
n Autumn Almanac með The
Kinks er um allt sem haustunn-
endur hlakka til: góðan mat,
góða vini og fótbolta.
n Harvest Moon með Neil Young
þykir hið fullkomna lag um
skær a uppskerumána haustsins.
n Leaves that are green með Simon
& Garfunkel er um græn lauf
sem verða brún.
n Dead leaves and the dirty
ground með The White Stripes
fjallar um að sparka í dauð lauf
undir fótum sér.
n November Rain með Guns N‘
Roses sem þorðu að syngja ekki
um bara haustlauf heldur regn.
Bestu haustlögin
Fljótandi laugar
í fallegri
austfirskri náttúru
vok-baths.is
KOMDU Í HELGARFERÐ AUSTUR
MEÐ MAKANUM, VINUNUM EÐA STARFSHÓPNUM
Vök baths
býður einnig upp á
frábæran veitingastað
og fundaraðstöðu.