Hvöt - 01.02.1939, Side 6
4
HVöT
þjóðanna að nákvæm rannsókn
hefði farið fram og sannað
ágæti tóbaksneyzlunnar áður en
tttbreiðsla, hennar varð svo al-
menn. En það er nú síður en svo.
Hið gagnstæða hefir átt sér
stað. Vísindalegar staðteyndir
eru fyrir því að tóbakið er sterkt
eitur, sem hefir skaðleg áhrif á
allt líf.
Áhrif tóbaksnautncir.
Meðan karlar voru einir um
tóbaksnotkun, og svo var um
langt skeið, þá, gat nokkuð orkað
tvímælis um skaðleg áhrif henn-
ar. Ekki sízt vegna þess, að
fæstir byrjuðu á henni fyrr en
þeir voru orðnir fullþroska
menn. En síðan að tóbaksnotk-
unin varð svo algeng, sem nú,
eru hinar skaðlegu afleiðingar
hennar orðnar svo áberandi, að
ekki er viðunandi að við svo bú-
ið sé látið standa. Þessvegna
verður að krefja vísindin um
rétt svar við því, hvort áhrif
tóbaksnotkunarinnar á menn
séu vaxandi þroski eða hrörnun
og úrkynjun. Eftirfarandi
spurningar eru því eðlilegar og
tímabærar:
Bætir tóbaksnotkur. heilsu
manna eða spillir það henni?
Hefir tóbakið unnið sannri
menningu gagn eða ógagn? Er
nautn tóbaksins saklaus
skemmtun? Hver eru áhrif tó-
baksnotkunar á heilsufar, sið-
ferði og efnahag?
Veitir tóbaksnautn taugakerfi
manna þá hvíld, þann styrk
og rósemi, sem menn telja að
hún veiti? Lengir tóbaksnautnin
líf manna?
Ekkert væri eðlilegra en að
vísindalega rétt svör væri feng-
in við þessum eða líkum spurn-
íngum áður en ótakmörkuð notk-
un tóbaksins væri leyfð. Ekki
sízt á síðustu tímum þar sem
svo margt er bannað, sem áður
var frjálst.
Til þess að fá svör við ofan-
rituðum spurnngum verður
fyrst og fremst að kynna sár
umsagnir læknavísindanna til
þess að fá vitneskju um áhrif
tóbaksins. I annan stað verður
að kynna sér reynslu ýmsra sér-
frrð'riga, svo sem uppeldis-
fræðinga og hagfræðinga um á-
hrif tóbaksins á þjóðina, andlega
og efnalega.
Svar læknisfrœðinnar:
Kennslubækur læknisfræðinn-
ar kenna að nikotínið, sem er
hið lokkandi lyf tóbaksjurtar-
innar, sé eitt hið skæðasta eitur-
lyf, sem þekkist. Af hreinu niko-
tini er örlítili skammtur ban-
vænn. Er talið að ekki þurfi
nema 2 dropa til þess að drepa
fullorðinn mann. Nikotinið er
banvænt öllu lífi. Það hefir líka