Hvöt - 01.02.1939, Blaðsíða 40

Hvöt - 01.02.1939, Blaðsíða 40
38 HVöT það ekki getur notið lífsins, án eiturlyfja«. »Æ, blessaðir, farið þið nú ekki út í neinar heimspekilegar viðræður hérna núna«, sagði Sig- rún, sem þekkti hve gjarna þess- ir vinir deildu um allt milli him- ins og jarðar. »Við skulum heldur f’ara að da.nsa«, sagði hún aftur, »hljóm- sveitin er að spila uppáhalds- valsinn minn. Klukkan er bráð- um tólf. Við verðum að kveðja árið og heilsa því næista, með dansi. Dolli, við dönsum, og svo erum við sátt, enginn dansar þó betur en. þú«. Um leið og Dúdú sagði þetta, lagði hún mjall- hvíta, litla hönd á arm Adolfs og leit til hans bresandi, en í augunum, brann glóð ódulinnar ástar. Adolf stóð upp. Pau svifu hvort í annars örmum á bylgj- um tónanna, sem vögguðu þeim, mjúkir og töfrandi, inn í al- gleyming unaðar og drauma. Laginu var lokið. Þegar þau biðu eftir næsta lagi, hvíslaði Adolf: »Dúdú, er það satt, sem þú sagð'r áðan, finnst þér, að ég sé leiðinlegur og gamaldags?« »Nei«, barst af vörum henn- ar um leið og þau sveigðu af stað í tango, »en mér leiðist, að lvnir strákarnir álíta þig sér- vitring, sem alltaf verðir að vera öðru vísi en allir hinir. Þú veizt ekki, hve oft það hefir kvalið mig, þegar þú skerst úr leik í vinahópi og vilt ekki fylgj- ast, með, þú hlýtur að álíta okk- ur hin, já, mig líka, einhvers- konar dýr, eins og þú talar st;undum«. Hún bjóst við svari, en hann sagði ekki neitt, heldur þrýsti henni örlítið fastar að s,ér. Tón- arn'r streymdu yfir þau, þessir tónar, sem oft hafa. bundið ó- rjúfandi bönidum, og hnýtt hnút a, sem aðeims verða, höggn- ir, aldrei leystir. Vísar klukkunnar voru á tólf. Allt í einu hættu allir að dansa. Dulmagnaðir, kunnir tónar lags- ins: Nú árið er liðið, fylltu sal- inn og sálirnar hátíðleik, næs,t- um helgi, Árið var horfið yfir þröskuld eilífðarinnar. Það varð aldrei framar, — aðeins, minn- ing — minning. Einn dans, inni- legur, heitur, ljúfur í rauðu rökkri. Svo var sezt að borðum aft.ur. Skenkt var á glösin og þau tæmd. Sigrún ,sat við hlið Adolfs. Fallegu, rauðu varirn- ar hennar voru votar af »guða- veigum«. Ilmur dáinna blóma barst að vitum þeirra, vínilmur. »Nú drekkum við skál minn- inganna og öndum að okkur ilmi þeirra«, sagði Bjarni glaðlega. »Skorað er á cand. jur. Bjarna tæifsison að drekka með«, bætti hann við. Sigrún dreypti á glasi sínu, lagði svo handlegginn um háls

x

Hvöt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.