Hvöt - 01.02.1939, Blaðsíða 30

Hvöt - 01.02.1939, Blaðsíða 30
28 HVÖT I barna, og ennfremur að drykkjus'kapur foreldra á að miklu leyti beinan þátt í afbrot- um barna og unglinga. Sé orðrómurinn um öndvegi vor Is'endinga í sölum Bakkus- ar á rökum reistur er þess ekki að vænta, að hliðstæðar rann- sóknir hér á landi leiddu annað í ljós, en að hlutfallslega ætti ofdrykkja meiri sök afbrota hér en, annarsstaðar. jÉg gæti nefnt lesiendum Hvat- ar mörg dæmi um, hvernig of- drykkja foreldra hefir beinlínis valdið afbrotum barna og ungl- inga. Eg sleppi því — fyrst og fremst vegna þess, að þau dæmi eru svo algeng, að flestir þekkja þau. Hver þekkir ekki sögu um mann, sem hefir eyðilagt alla atvinnumöguleika vegna of- drykkju, og setið alls'aus og iðr- andi með hóp svangra ög klæð- líti'la barna á fátæklegu heim- ili? Það heimilislíf, sem skapast af slíkum aðstæðum er ekki lík- legt til að geta veitt börnum nauðsynlegan styrk til að standa gegn fre'stingunum. Enda þótt ég viti, rð skýrslur og tölur eru lítt vinsælar í blaðagreinum get ég ekki stillt. mig um að birta hér kafla úr yfirliti um hjálpar- beiðni til lögreglunnar í Reykja- vík árin 1931—1937. Yfirlit þetta sýnir hvern. þátt ölvun á í hjálparbeiðnum til lögreglunn- ar frá heimahúsum. Heimahús ölvun Annað 1931 171 395 1932 196 453 1933 199 463 1934 238 581 1935 483 791 1936 488 1024 1937 581 1019 Samt. 2356 4726 Við lestur þessara talna ber að minnast eftirfarandi stað- reyna: Þar sem ölvun er talin, orsök hjálparbeiðnanna er átt við, að á þeirri stund, sem kall- að er á hjálp lcgreglunnar er of- nautn áfengis. aðalorsökin. í mörgum tilfellum er vitað, að frumorsök til hjálparbeiðninnar er áfengisnautn — t. d. í deilum milli hjóna — þó að það sé í yf- irliti þes,su ekki fært á reikn- ing ofdrykkjunnar, og er þátt- ur Bakkusar því í raun og veru g ldari, en yfirlit þetta bendir tik Eólk biður venjulega ekki um vernd lögreglunnar, gegn drykkjuskap í heimahúsum, nema um þverbak keyri. Oft tekst lögreglunni að stilla til friðar, án þess að flytja þurfi hið ölvaða, fólk í fangelsi, en stundum verður lögreglan að taka heimilisföðurinn og fly-tja hann með valdi í fangelsi, aö ósk konu hans,, til að,tryggt sé, að konur og börn verði ekki lim- lest af völdum hins óða manns. Nærri má, geta, hvernig börn-

x

Hvöt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.