Hvöt - 01.02.1939, Page 9

Hvöt - 01.02.1939, Page 9
HVöT 7 nautnin dregur úr þoli hjartans flestum eiturtegundum fremur. Það er því villandi þegar um þessa sjúkdóma er að ræða, að geta ekki um hinar meðverkandi orsakir tóbaksins, sem dánaror- sakar. Flestir miklir tóbaks- menn hafa meir og minna bilað hjarta. Meiri eða mmni tóbaksnautn. Flestir sem byrja á tóbaks- nautn munu gera það með þeim ásetningi, að nota það í hófi sem kallað er. En menn venjast eit- urverkunum tóbaksins, og að sama skapi verða menn sólgnir í það. Svo fer að lokum að menn treysta sér ekki til þess að losna við tóbaksnotkunina. Menn verða ánauðugir þrælar hennar. Leikurinn endar með því, að það eru ekki mennirnir sem taka tó- bakið. Pað er túbakið, sem hef- ir tekið mennina, og lamað vilja þeirra og þrek. Pað er sagt um fjandann, að hann taki alla hendina ef honum er réttur litli fingur. Þannig er það um flestar aðrar eiturnautnir. Drykkju- maðurinn verður sólginn í alko- nol, morphinistinn 1 morphin eða cocain. Pessi eitur eru ein fjöliskylda með svipuðum svæf- andi og deyfandi verkunum. Umsögn uppeldisfræðinga um tóbakið. Farið til uppeldisfræðinganna og spyrjið þá um áhrif vindl- ingareykingar á börn og ungl- um. Dómur þeirra mun áreiðan- lega, verða á einn veg, sem sé sá, að tóbaksnautn spillir æsk- unni. Hún spillir siðferði og heilsu æskulýðsins, gerir hana tómláta og hirðulausa um góða og heillnæma siði, tefur fyrir námi og vekur hjá henni hneigð til óknytta, jafnframt því sem heilsufari hrakar, og því meir sem unglingar byrja fyrr á því að reykja. Þeir unglingar, sem byrja snemma á vindlingareyk- ingum, ná fæstir áætluðu marki í liífinu. Vanalega fer það svo, að tóbaksnautnin og löngunin í það, gerir kröfu til annara hressingarlyfja, svo sem alkó- hols. Menn segja, að tóbakseld- urinn kyndi undir ííöngunina í vínið. Pegar þessar tvær eitur- nautnir taka höndum saman, er hæpið að þeir vesalingar, sem lenda í neti þeirra, verði nyt.- samir þegnar í þjóðfélagi sínu. Peir eru og verða vonarpening- ur. Dómur uppeldisfræðinga er því ekki tóbakinu og nautn þess í vil. Hvað segja rannsóknardóm- arar í sakamállum? Erlendis í stórborgum er reynsla þessara manna sú, að þau börn og ungi- ingar, sem kom;st hafa út á braut óknytta og afbrota hafi því nær undantekningarlaust

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.