Hvöt - 01.02.1939, Side 23
HVÖT
21
þá verður þjóðin að læra af
reynslu iiðinna ára og uppræta
mist Iteininn: áfengið, áður en
það kemst í morðaðstöðuna, við
Baldur, frelsi þjóðarinnar og
fullveldi.
Eg beini athygli allra að orð-
um Mat.ti Heleniusar er hann
seg'r: »Það er chugsanlegt, að
mannkynið eigi bjarta og far-
sæla framtíð í vandum, nema
öruggum lokum verði skotið fyr-
ir alla áfengisnautn«.
Eg beini athygli allra að fram-
tíð Islands og bið menn að draga
upp í huganum framtíðarmynd
þjóðarinnar með áfengi og án
þess. — önnur myndin lýsir heil-
brigðri, frjálsri og framsækj-
andi þjóð. Hin dregur upp
skuggahliðar jarðlífsins, sjúk-
dóma, fátækt, glæpi og dauða;.
Frjáls og andlega heilbrigðnr
maður veit hvora myndina
hann kýs að framkallist í þjóð-
lífi Islendinga — og hann legg-
ur hönd á plógmn og berst fyrir
hugsjón sinni.
Þannig varð S. B. S. til, og
þannig mun baráttu þess halda
áfram, meðan til er á íslenzkri
fold, frjálshuga og heilbrigður
æsíkulýður,, sem veit, hvað hann
vill, cg hverju hann hafnar —
æskulýður, sem sér framtíðina
byggjast á: frelsi, heilbrigði og
bindindi!
Guðmundur Sveinsson.
Molar.
100 þús. manna þjóð sem
berst fyrir efnahagslegu og
stjórnarfarsiegu frelsi sínu, má
ekki viði því að eyða árlega á
fjórðu milljón króna í cifengi!
Einn þeirra stjórnmálamanna,
sem rnikið hefur verið um rætt
á síðustu tímum, Dr. Eduard
Benes, er bindindismaður bæði
á tóbak og áfengi. Hitler og
Mússolini eru báðir bindindis-
menn. Hinn þekkti vísindamað-
ur, Einstein, er bindindismaður
og lifir mjög óbrotnu lífi.
Þjóðverjar eyða 3—4 milljörð-
um marka í áfengi árlega. Um
þetta segir Hitler: »Væri þessari
fjárhæð árlega varið til bygg-
inga íbúðarhúsa, yrði það ekki
aðeinpi t;l þess að binda enda á
húsnæðisskortinn, heldur færði
það þýzku þjóðinni gleði og
gæfu sem væri að minnsta
kosti æðri og einlægari og þjóð-
inni heillavænlegri en sú »gleði
rg gæfa«, er það áfengi veitir,
sem keypt er fyrir þessa upp-
hæð«.
Enginn sá, sem vill gcefu og
gengi þjóðar sinnar, getur ósk-
að þess, að henni sé byrlað eit-
ur áfengisins.