Hvöt - 01.02.1939, Page 28

Hvöt - 01.02.1939, Page 28
26 HVÖT vegna þess, að þeir eru svo ung- ir. Þar fá nemendur yfirleitt kennslu í líkamsrækt í einhverju formi á hverjum degi. En það ber ekki eing'ingu að ásaka skólana fyrir vanrækslu í þess- um efnum, nemendur eru mjög sofandi um allt sem snertir í- þróttir. Hugsum okkur tvo pilta, annar byrjar að stunda líkam- lega vinnu en hinn, sezt á skóla- bekkinn. Hvaða jafnvægi verður á líkamsmennt; þessara tveggja pilta? Ekkert. Skólapilturinn öðlast ekki naga líkamsmennt á þeim tíma, sem hann stundar nám, en pilturinn, sem stundar líkamlega vinnu, stendur miklu betur að Vígi. En. það má koma jafnvægi á, þetta með því, að skólapiltarnir herði líkama smn með íþróttum, og hann hefur jafnvel meira tækifæri, því að íþróttirnar einar geta veitt, öll- um líkamanum jafnan þroska ramfara snarleik cg þrótt, sem: aldrei hefst upp úr nelnni hvers- dagsvinnu, En líkamsrækt- er námsmanninum einnig nauðsyn- leg vegna hinnar miklu andlegu áreynslu. Það er sannað mál, að dugleysi unglinga við nám á mjcg oft rót sína að rekja til bkamlegrar veiklunar, miklu oftar en, haldið er. Ef vandlega væri að þessu gætt, mundi það oft, sinnis koma í ljós, að skiln- ingsleysi og hugsunarleysi eru ekki vottur um, leti, heldur af- leiðing af einskonar líkamlegri deyfð, sem unglingurinn getur ekki gert sér grein fyrir. Þetta leiðir þess vegna af sér, að gagnsemi íþróttanna, er kersýni- lega miklu víðtækari en almennt er ætlað. Þegar gætt er að þe,s,s- um gagnlegu áhrifum íþrótt- anna á öll líffæri líkamans og starfsemi þeirra, þá er auðséð, að þær bæta stórum úr þeim skaðsemdum, sem hversdagslíf- ið jafnan hefur í för með sér að meiru eða minna leyti. Það sem einna mest hefur lamað íþrótta- starfsemi í skólum er, hversu nemendur eru óreglusamir. Það er blátt áfram grátlegt að ungur menntamaður sikuli, vegna hugsunarleysis, eyðileggja líkama sinn með neyzlu tóbaks og áfeng's. Það er ef til vill fyr- irgefanlegt, að ekki sé beinlínis lögð rækt við líkamann., en að hann sé rifinn niður vegna of- nautna, er ófyrirgefanlegt. Sum- ir halda fram þeirri hættulegu skoðun, að ekki sé nauðsynlegt að vera, bindindismaður, ef mað- ur ætlar að stunda íþróttir. Þessir menn færa máli sínu til stuðnings, að and-bindindismenn beri oft sigur af hclmi í keppni við bindindismenn, en til þess liggja aðrar ást rður, t. d. að líkamlegt atgervi and-bindindis- mannsins frá náttúrunrar hendi sé meira en hins eða þá að hann hafi meiri þjálfun. Ábyggilegt

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.