Hvöt - 01.02.1939, Page 37

Hvöt - 01.02.1939, Page 37
Gamalt og iiýtt. Gekk hanu að heiman svo glaður og fríður geislaði úr augunum kraftur og þor, svipurinn hreini var bjartur og blíður og benti’ á hið sólhlýja, eilífa vor. Kvaddi hann foreldra, frændur og vini, framtíð var hulin á ókunnri strönd. Hvað mátti granda þeim hávaxna hlyni, sem hetjunnar ímynd hann fór út í lönd. •Gættu þín, sonur minn« mælti hans móðir, myndirnar fögru þær reynast oft tál, ávalt þig varðveiti englarnir góðir aldrei að saurgist þín flekklausa sál. Hætturnar margoft þær liggja í leyni við ládauðan, sléttan og brimlausan sjá, haltu þér þaðan sem hált er á steini, er hafmærin sleikir og öldurnar ná. Þú mátt ekki hika þótt hörð reynist gangan þótt hnúarnir hvítni, og bJæði’ undan nögl, og rispi þig nokkuð og roðnir um vangann er réttir þér norðri sín ísköldu högl. Láttu ekki vínguðsins bölvaða bikar hyrla þér eitur og deyfa þinn þrótt. — Kvalarans leikfang er hver sá er hikar — hans koma er lævís á degi og nótt.

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.