Hvöt - 01.02.1939, Qupperneq 38
36
HVÖT
Er árið var liðið, vér lítum þau undur
hann lá undir húsvegg í skaírenningsbyl.
I veitingakránni var kramið í sundur
það kærasta og bezta, sem átti hann til.
Hann lá þarna klæðlítill, hrakinn og hrjáður,
og horfnir þeir vinir er sugu hans blóð.
í fjötrum var alt, sem var fögnuður áður
hans fegurð og þrek var sem útkulnuð glóð.
I Guðs nafni reisið hinn fallna á fætur
þú framsýna, hugdjarfa bindindissveit.
Mannkynið ráðvilt í myrkrinu grætur.
Meinin að græða nú strengið þið heit.
Standið þið saman í stálviljans mætti
styrkleika brynjuð, er ársólin rís,
íylkið þið liði, þá óguin hver ætti
engu að granda. Og sigur er vís.
»Hugrún.«
Bindindismálaráð.
Á síðast liðnu ári var gengið
frá stofnun »Bindindismálaráðs
íslands« fyrir forgöngu áfengis-
málaráðunautst, Friðriks Brekk-
an. Ráð þetta er sett eftir
norskri fyrirmynd. 1 ráðinu eiga,
sæti 5 menn. Framkvæmda-
nefnd Stórstúku fslands tilnefn-
ir 2 menn, stjórn S. B. S. 1,
Stjórn SambandiS Ungmenna-
félaga fslands 1, en ráðunautur
ríkisstjórnarinnar í áfengismál-
am skal ve: a 5. maður og odd-
viti ráðsins.
Starf ráðs'ns er fyrst og
fremst að aðstoða áfengismála-
ráðunaut, gefa ráð og vinna að
samstarfi, bindindissamtakanna
og hafa eftirlit með áfengisvarn-
arnefndum cg fræðslu í bind-
indis- og áfengismálum.
Ef vel er á haldið, má mikils
vænta af ráði þessu. Stjórn S.
B. S. lýsir ánægju sinni yfir
stofnun þess, en hvetur það
jafnframt til starfa, því að verk-
efni þess eru maxgþætt °g
merkilegt.
Colerigde lávarður kvað upp
það dómsorð úr æðsta dómara-
sæti á, Englandi árið 1881, að
ef takast; mætti að gera, Eng-
lendinga að bindindismönnum
og útrýma áfenginu þaðan, þá
myndi mega loka níu fangahús-
um af hverjum tíu.