Hvöt - 01.02.1939, Síða 41

Hvöt - 01.02.1939, Síða 41
HVöT 39 Adolfs, hélt glasinu að vörum hans og hvíslaði: »Vegna minn- inganna um mig, því árin iíða. Nú erum við ung, enn þá erum við ung«. »Já, vegna þín, Dúdú, minn- ingarnar um þig mega aldrei fölna«. Hann drakk glasið í botn. Fyrsta glasið. »Kysstu mig«, sagði hún, »þú ert sá bezti. Hann laut að henni. Koss'nn brann á vörum beggja. Þegar þau litu upp, voru allir fainir ,að dan,s,a. S ila, unaður. Og árin líða.-------- Kirkjuklukkurnar ómuðu saknaðartóna yfir Reykjavík, borgina ungu, sem kveður enn eitt ár æ,sku sinnar. Það var aft- ur gamlaárskvöld. Á heimili Adolfs Leifssonar sat, frá S'grún kona hans út við gluggann í frekar fátæklegri s'ofu og horfði út á, strætið. Fólkinu á götunni fækkaði óð- um. Allir á heimleiö, eða komn- ir heim til að kveðja árið hjá ástvinum sínum. »Ætli hann fari ekki að koma heim«, andvarpaði hún með sjálfri ,sér. »Ég vona, að hann komi þó bráðum — núna«. Dyrabjöllunni var hringt. Sig- rún gekk fram í flýti. — — Að- eins semdisveinn frá íshúsinu. Aftur hringt. Nú var það pósturinn með nokkur bréf. Frú Sigrún gekk til barnanna, litlu, systkinanna þriggja, sem léku sér í næsta herbergi. Þau voru þar ein og ,stóra. systir, sem var átta ára, sagði yngri systkinun- um sínum sögur og söng á víxi. Hún þóttist vera leikkona. Uss, liklega mátti hún ekki trufla þau strax. Stúlkan hennar hafði fengið leyfi til að vera heirna hjá sér í kvöld. Frú Sigrún sett- ist því ein í gamlan hægindastól, sem faðir hennar hafði átt, slökkti ljósið og beið. Maturinn var t'lbú’nn á borðinu. Ekkert vantaði, nema Adolf. Það hafði komið nokkuð oft fyrir nú síð- ustu árin, að hann hafði vantað við kvöldborðið, en í kvöld var kvöld minninganna, það gat ekki verið, að hann léti sig þá vanta. Sigrún gat ekki að því gert, að hvarfla huganum til þess, hve hamingja þeirra hafði dvín- að smátt og smátt, eftir því, sem drykkjubræður hans höfðu náö fastari tökum á honum. Stundum hafði hann hreytt úr sér illyrðum til hennar, og al- veg var það hryllilegt, hve mjög þessi fallegi, sterkbyggði mað- ar gat breyzt í veiklulegan, nærri ógeðslegan aumingja. En í kvöld átti þetta allt að breytast aftur. Hún ætlaði að beita öllum sínum yndisleik, öll- um sínum gáfum og lipurð, til þess að f á hann, til þess að vinna þess heit, að hætta við vínnautm ina. Og hann skyldi skilja við

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.