Hvöt - 01.02.1939, Side 45

Hvöt - 01.02.1939, Side 45
HVÖT 43 Formaður Félags ungra Fram- sóknamanna telur stefnu síns íélags í bindindismálum, mark- aða með svohljóðandi samþykkt- um, sem sambandsþing ungra Framsóknarmanna að Lauga- vatni gerði s. 1. vor. Sambandsþing skorar á Al- þingi að láta fara fram í sam- bandi við næetu alþingiskosning- ar atkva ðagreiðslu um það, hvort leyfa, skuli innflutning og sölu áfengis, og hvetur alla flokksmenn til drengilegrar bar- áttu fyrir útrýmingu áfengis úr landinu. Sambandsþingið brýnir félög ungra Framsóknarmanna um að vanda gem bezt til skemmtana sinna, og fyrirbyggja að ölvun eigi sér þar stað. Ennfremur hvetur þingið alla unga Framaóknarmenn til að vera fyrirmynd annarra um bindindi og almenna reglusemi. Formaður Heimdallar, félags u-ngra Sjálfstæðismanna hér í Reykjavík, segir að í stefnuskrá félagsins sé ekki sérstaklega vik- ið að bindindismálum, en þar fyrir hafi ráðamenn félagsins lagt kapp á að útiloka ölvun af skemmtunum og samkomum fé- lagsins, og mætti í því sambandi benda á hinar fjölmennu úti- samkomur félagsins að Eiði, sen) verið hafi t:l fyrirmyndar, hvað reglusemi snerti. Formaðurinn gat þess að framvegis myndi Heimdallur beita sér ákveðnar en áður fyrir framgangi bind- indismálsins, cg væri þar fús til samstarfs við önnur bindindis- eða menn'ngarfélog. Formaður Æskulýosfylkingar- innar, félags ungra sósíalista, segir að í stefnuskrá Landssam- bands æskulýðsfylkingarinnar sé ákveð:ð svo um bindindismál: Sambandið vill vinna eftir mætti gegn áfengisneyzlunni og skírskotar til þess þjóðarböls, sem leiðir af áfengisnautn æsku- lýðsins. Telur sambandið að í þessu máli beri að stefna að al- gerðu aðflutningsbanni á áfengi. Um þessi mál vill Æskulýðs- fylkingin hafa sem nánasta sam- vinnu við Goodtemlpararegluna, Ungmennafélögin og Samband bindindisfélaga í skólum, og önn- ur þau félög, gem útrýming á- fengis hafa á stefnuskrá sinni. Pað vantar sterkan menning- arfélagsskap meðal fólksirs, sem byggir upp bæinn, sem barist geti við hlið Ungmennafélag- anna og Sambands bindindisfé- laga í skólum. Það vill Æsku- lýðsfylkingin vera. Hvöt telur yfirlýsingar þessar binar merkilegustu en vill jafn- framt benda á þá staðreynd, að kenningar stjórnmálaílokkanna eru ekki æfinlega samkvæmar framkværndum þeirra.

x

Hvöt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.