Hvöt - 16.03.1948, Síða 9
H V ö T
1
ungu skáldin í skólunum kraftmik-
il hvatningarljóð.
Um 1. febrúar kvað eitt:
Þú ert fyrsti febrúar
fyrirboði nýrra tíma,
hvatning fó'lksins hér og þar,
heilli þjóð til farsældar.
Allt, sem fagurt er og var,
á að vaxa, — hitt aS rýma.
Og annað orti til æskunnar:
Hver á aS liöggva fjötra forna,
frelsa gæfu sérhvers manns?
ÞaS er æskan aSalborna,
æska þessa kalda lands.
Þannig fór þessi hreyfing á stað,
sem nú hefur náð fimmtán ára aldri.
— Og nú vildi gamall liðsmaður
mega beina nokkrum spurningum
til vkkar, sem nám stundið í skólum
landsins í dag:
Hvers virði eru þessi samtök ykk-
ur? Hafið þið orðið vör við vorhoð-
ana, sern Helgi Scheving talaði um?
Ilafið þið fundið þytinn? Hafið þið
fundið nýjan andblæ? Hafið þið
fundið nýjan sannleika? Hafið þið
fundið í samtökum þessum trú og
von stofnendanna að gera menn
betri, heilbrigðari og reglusamari?
Hver og einn svari þar sjálfum
sér.
Sjálfur lenti ég í storminum fyrsta
og liroifst með. Sjálfum fannst mér
ég fá mikið, nærri heilagt hlutverk
að vinna, þegar ég gerðist fyrst með-
limur þessara samtaka. Sjálfur
ti'úði ég á gengi þessa félags, og mér
fannst eittlivað af hamingju og
gæfu æskunnar, sjálfs min og ann-
ara, vera undir gengi þess komið.
En fimmtán ár eru langur tími, og
margt getur og hefur In'eytzt á þeim
tíma.
Margir inyndu segja, að samtölc-
unum liefði hrakað, hinn fyrri eld-
móður væri nú horfinn eða mjög
svo dvínaður, —• Sambandið milli
félaganna væri ekki svo náið nú
sem það hefði áður verið og starfið
því óákveðnara og minna.
Má vera, að eitthvað af þessu sé
satt. Hitt er þá ekki síður staðreynd.
að aldrei hefur verið meiri þörf
fyrir boðskapinn um bindindið en
einmitt nú. Það er jafn satt í dag
og það var árið 1931, að við þurfum
að leggja óvitaskapinn, fávísina.
óheilbrigðina, sjúkleikana og enda
fjársóunina i dróina. Þar undir er
framtíðarlieill þjóðarinnar komin.
Og hvort man nú enginn orð Stef-
áns G. Stefánssonar:
Þar kýs ég lándnám,
sem langflestir stranda,
ef leiðbeint ég gæti, það kysi ég helzt.
Iiafi einhverjir, já ef til vill marg-
ir strandað, þá á fimmtán ára af-
mælið að verða okkur hvöt til nýrr-
ar sóknar. Hamingja fslands krefst
þess, að hafið sé nýtt landnám í hug-
sjónum og vonum hindindissamtak-
anna i skólunum. Ilamingja íslands
krefst þess, að hafin sé herferð gegn
sléni, sofandahætti og vanafestu.
Hamingja fslands krefst þess, að
skeinmtanir unga fólksins verði
svipmeiri og fegurri en nú er víðast
hvar.
Mig langar að lokum að minna á
gömlu þjóðsöguna með selshausinn