Hvöt - 16.03.1948, Qupperneq 33
H V ö T
„snaps“, hæðist fyrst að lionum og
sýnir honum svo fram á með föður-
legri umhyggju, hve honum sé þetta
bráðnauðsynlegt. Þetta þurfí allir
sjómenn að gera. Þessi seinni var
hófdrykkjumaður. Þega.r pilturinn
liafði lokið frásögninni, spurði liann
okkur þessarar spurningar: „Hvor
var hættulegri, ofdrykkjumaðurinn
eða hófdrykkj umaðurinn ?“ Svari
svo hver eftir sinni sannfæringu.
Hugsum okkur, að ríkissjóður væri
sviptur þeim tekjum, sem hann fær
fyrir áfengi. Fengi liann ekkert í
staðinn? ,Tú, það fengi hann vissu-
lega. Hvað ætli að það yrðu margir
þegnar þjóðarinnar,. sem nú ervi
meiri eða minni ómagar á henni,
færari til að draga björg í bú? Hvað
skyldi verða mörgum sjúkdómstil-
fellum og sjúkrahúsvistum færra?
Hvað skyldi löggæzlan verða mikið
umfangsminni og kostnaðarminni,
og síðast, en ckki sízt, livað skyldu
margar fjölskyldur verða hamingju-
samari, margar konur áhyggjuminni
og mörg börn fá betra uppeldi?
Þessu er erfitt að svara a. m. k. í
tölum, en ætli að það fari ekki að
verða áhalt 'um, hvort verður þyngra
á mctunum. Öðrum megin cr áfeng-
ið, mcð öllum sínum afleiðingum.
Hinum megin heill og hamingja
þjóðarinnar.
Af þessum, og ótal mörgum öðr-
um ástæðum getur enginn, sem á
annað borð nennir að hugsa um
þessí mál, mælt áfenginu bót. Þeir,
sem það gera, hafa vísindin, reynsl-
una og yfirleitt öll skynsamleg rök
á móti sér, en með sér aðeins áfeng-
ið, „sem glóir i bikarnum og renn-
31
ur ljúflega niður, en hítur að sí’ð-
ustu sem höggormur og spýtir eitri
sem naðra", eins og stendur i Orðs-
kviðunum.
Það er vissulega ólieilhrigt, cf af-
koma okkar unga lýðveldis þarf að
byggjast á eitursölu til þjóðarinnar.
Við, sem viljum vinna að bind-
indismálum, skulum muna, að
„höndin má lítið ein og ein“. Leggj-
um því öll saman og heitum kröft-
um okkar í þágu góðra málefna, en
eyðum þeim ekki i fánýtt dægur-
þras.
STAKA.
Hverfur tími, takmörk nást,
trúin lmeikir glæður.
Biturt hatur, ofurást
öllu lífi ræður.
Hörður Þorleifsson,
r
Stjórn S.B.S.■
Forseti: Tngótfur A. Þorkelsson,
Kennaraskólanum.
Bitari: Björn Guðmundsson,
Iðnskólanum.
Féhirðir: Jón Norðdahl,
Gagnfræðask. í Rvik.
Meðstjórn.: Kristin Nanna Aralín,
Kvennaskólanum.
Jón BöSvarsson,
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga.
Ritnefnd Hvatar:
Björn Guðmundsson,
Jðnskólanum.
Auðunn Br. Sveinsson,
Kennaraskólanum.
Björn Sigurbjörnsson,
Menntaskólanum.