Fréttablaðið - 21.10.2020, Blaðsíða 22
Samkvæmt þessu
hafa því tekjur
Landsnets verið um 11,4
milljörðum króna hærri á
árunum 2011-2018 vegna
hærri bókfærðs eignastofns,
sem leiðir til hærri reiknaðs
arðs og hærri afskrifta.
Úr minnisblaði Summu um arðsemi
Landsnets
Þórður
Gunnarsson
thg@frettabladid.is
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
TRYLLTIR
TAKE AWAY
TILBOÐSPAKKAR
TILBOÐSPAKKI – FYRIR TVO
Önd & Vaa – Hægeldað andalæri, karamelluseruð epli,
belgísk vaa, maltsósa
Íslenskt landslag – Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur
rjómaostur, graslauks-mayo, ediksnjór
Tígrisrækjusalat – Tígrisrækjur, epli, romain salat, parmesan-
kex, dillfroða, piparrótarkrem
Lax – Kolagrillaður lax, beykisveppir, reykt soð
Kolagrilluð nautalund – Sellerírótar-purée, reyktir sveppir,
karamelluseraður laukur, bernaisesósa
6.990 kr.
3.495 kr. á mann
Bættu við ljúengum eftirrétti á 890 kr.
AFMÆLISPAKKI
Panta þarf afmælispakka fyrir kl. 16 samdægurs
og hann er eingöngu í boði fyrir tvo eða fleiri
Bleikja á vöu – Grafin bleikja með reyktum rjómaosti
Önd á vöu – Andaconfit rillet, karamelluseruð epli, maltsósa
Tígrisrækjusalat – Tígrisrækjur, epli, romain salat, parmesan-
kex, dillfroða, piparrótarkrem
Íslenskt landslag – Lambatartar, sýrður rauðlaukur, reyktur
rjómaostur, dillolía, ediksnjór
Kolagrilluð nautalund – Sellerírótar-purée, reyktir sveppir,
karamelluseraður laukur, bernaisesósa
Súkkulaði afmæliskaka í eftirrétt ( 6-8 manna)
Kakan er með súkkulaðimús og hindberjum
og hjúpuð súkkulaðiganache
4.990 kr. á mann
Tekið er við pöntunum í síma 551 0011
og með góðum fyrirvara á apotek@apotekrestaurant.is
Yfirfærsla á eigna stofni Landsnets yfir í Bandaríkjadali úr krónum árið 2011, hefur gert það að verkum að eignagrunnur tekju
marka fyrirtækisins mælt í dölum
nærri tvöfaldaðist og þar af leiðandi
reiknaður arður, en reiknaður arður
ákvarðar tekjumörk fyrirtækisins,
þar sem áætlaður, veginn fjár
magnskostnaður er margfaldaður
með eignastofni Landsnets. Skipti
gengið sem notað var miðaðist við
gengi krónunnar gagnvart dalnum
um mitt ár 2007. Þetta leiddi svo til
þess að arðsemi eigin fjár Landsnets
á árunum 2011 til 2018 var yfir 20
prósent, sem er verulega yfir þeirri
hámarksávöxtun sem Orkustofnun
leyfir, samkvæmt líkani stofnunar
innar um tekjumörk Landsnets.
Þetta kemur fram í minnisblaði
Summu rekstrarfélags um tekju
mörk Landsnets sem útbúið var fyrir
Landsvirkjun í mars á þessu ári.
Nokkuð hefur verið ritað og rætt
að undanförnu um 90 milljarða
króna fjárfestingaráætlun Lands
nets á næstu tíu árum og hugsanleg
áhrif hennar á gjaldskrá fyrirtæk
isins. Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, sagði þann
24. september síðastliðinn að áætl
un Landsnets myndi orsaka að efna
hagsreikningur fyrirtækisins myndi
stækka töluvert við fjárfestingarnar
á næstu árum og þar af leiðandi
hækka flutningskostnað raforku á
Íslandi, þar sem gjaldskrá Landsnets
tekur mið af eignastofni fyrirtækis
ins. Þar sem stórnotendur rafmagns
á Íslandi væru þegar við sársauka
mörk ætti að draga saman seglin í
stórfjárfestingum í f lutningskerfi,
til að halda aftur af verðhækkunum.
Hörður Arnarson, forstjóri Lands
virkjunar, sagði af sama tilefni að
Landsnet gæti ráðist í sínar áætluðu
fjárfestingar án hækkana á gjald
skrám, enda væru tekjumörk Lands
nets metin of hátt. Landsnet hefur
svarað því til að fjárfestingaráætlun
fyrirtækisins snúi að nauðsynlegum
úrbótum á flutningskerfi raforku í
landinu. Þar að auki sé verðskrá
fyrirtækisins undir öðrum komin,
eða Orkustofnun.
Í minnisblaði Summu er farið í
saumana á því hvers vegna eigna
stofn Landsnets er of hátt metinn.
Það er einkum vegna þess gengis
sem notað var við yfirfærslu á efna
hagsreikningi Landsnets í Banda
ríkjadal í byrjun árs 2011. Þar var
miðað við gengi krónunnar gagn
vart dalnum þann 31. júlí 2007, sem
stóð þá í 61 krónu, en sú dagsetning
var fest í breytingu á raforkulögum
á árinu 2011.
Iðnaðarnefnd Alþingis rökstuddi
notkun á þessari dagsetningu með
því að þá hefði Landsnet fært gjald
skrá sína yfir í Bandaríkjadali. Hins
vegar rökstuddi Landsnet notkun
dagsetningarinnar með því að hún
endurspeglaði virði eigna fyrir
tækisins þegar til þeirra var stofnað.
„Það virðist því vera misræmi í því
sem annars vegar Landsnet segir í
kynningu, að þessi dagsetning
endurspegli verðmæti í dölum þegar
til eignanna var stofnað og þess sem
iðnaðarnefnd fjallar um, að dag
setningin sé valin út frá gjaldskrár
breytingu Landsnets úr krónum yfir
í dali,“ segir í minnisblaði Summu.
Afleiðing þess að velja þessa dag
setningu, sem er á þeim tíma sem
krónan var sögulega sterk gagnvart
öðrum gjaldmiðlum, er sú að tekju
mörk Landsnets og þar með gjald
skrá fyrirtækisins verður hærri en
ella. Í minnisblaðinu segir að eðli
legra hefði verið að miða við meðal
gengi krónunnar gagnvart dalnum
yfir lengi tíma, til að mynda frá byrj
un árs 2000 og fram að júlílokum
2007. Meðalgengi krónu gagnvart
dalnum á því tímabili var ríflega 77
krónur.
„Samkvæmt þessu hafa því tekjur
LN verið um 11,4 milljörðum króna
hærri á árunum 20112018 vegna
hærri bókfærðs eignastofns, sem
leiðir til hærri reiknaðs arðs og
hærri afskrifta […] Eignastofninn
hefur veruleg áhrif á þann arð sem
taka má út úr fyrirtækinu á hverju
ári. Hár eignastofn í USD byggður á
lágu gengi þann 31.7.2007 er augljós
lega til þess fallinn að auka afskriftir
og þann arð sem félagið hefur leyfi
til að taka frá árinu 2011 samkvæmt
tekjumörkum,“ segir í umfjöllun
Summu.
Ásamt eignastofni er veginn
fjármagnskostnaður Landsnets
mikilvægur áhrifaþáttur tekju
marka Landsnets. Sérstök nefnd
á vegum Orkustofnunar áætlar
þennan vegna fjármagnskostnað,
en bent hefur verið á að notkun tíu
ára hlaupandi meðaltals af skulda
tryggingaálagi Íslands við útreikn
ing fjármagnskostnaðar Landsnets,
gefi skakka mynd af raunverulegum
vaxtakostnaði Landsnets, enda
var skuldatryggingarálag Íslands í
hæstu hæðum í mörg ár eftir hrun
fjármálamarkaða 2008.
„Í stað þess að nota áætlaða
vexti og vaxtaálag, byggt á vegnum
meðaltölum aftur í tímann, við upp
gjör tekjumarka, mætti nota raun
verulegan vaxtakostnað Landsnets.
Hinir raunverulegu greiddu vextir
eru besti mælikvarðinn á vaxta
kostnað Landsnets,“ segir í grein
ingu Summu.
Arðsemi sögð vera yfir
löglegum mörkum
Yfirfærsla eignastofns Landsnets úr krónum í Bandaríkjadali miðaðist við
gengi krónunnar um mitt ár 2007. Samkvæmt minnisblaði sem unnið var
fyrir Landsvirkjun fyrr á þessu ári orsakar það verulegt ofmat á eignum.
Samkvæmt skýrslu um arðsemi Landsnets er eignastofn fyrirtækisins sagður ofmetinn, vegna þess að miðað var
við gengi krónunnar um mitt ár 2007, þegar fyrirtækið færði reikningshald sítt yfir í Bandaríkjadali.
2 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN