Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Page 16
MSC ísland hefur haldíð uppi öflugu félagslífi ítuttugu ár.
Hér sjást félagar fskemmu við Markarfljót í ágúst 1989.
'V.
b T y I j ■toumooi
I 'u' **" ■
UR GRASROT A GRIÐASTAÐ
Ef homminn er skilgetið afkvæmi kvenréttindakonunnar voru fyrstu almenn samtök samkynhneigðra á eigin forsendum afsprengi
hippabyltingarinnar. Leysingin f þjóðfélagsmálumaustan hafsogvestan um ogupp úr1970 barsttil íslands með nokkurri seinkun
eins og önnur erlend menningaráhrif og um miðjan áratuginn þótti hommum í Reykjavík kominn tími til að hrista af sér slenið og
gera eitthvað íeigin málum.
Árið 1976 mynduðu hommar í Reykjavík með sér félagsskap
sem nú mundu vtst kallast grasrótarsamtök samkynhneigðra.
Tveimur árum síöar voru Samtökin '78 stofnuð á þeim grunni
og næstum áratug síðar kom beint framhald: MSC ísland.
Tíðarandinn var sá að fólk ætti að fá að ráða sér sjálft
og allt gamla kerfið þótti ónýtt og að engu hafandi. Því
þótti réttast að byrja á aö fá menn saman til að orða óskir
sínar og skoöanir og vita hvað menn vildu gera. Um hverja
helgi hittist hópur homma á Hótel Borg og brunaði í partf
eftir ball og þessum hópi var einfaldlega stefnt saman á
sunnudagseftirmiðdegi til skrafs og ráðagerða og upp úr
því voru stofnuð samtök sem störfuðu í næstum tvö ár.
I skjalasafni hafa varðveist nokkur blöð frá þessum
árum, þar á meðal fréttatilkynning með gullnum bréfhaus frá vori eða
sumri 1976 sem send vartil allra dagblaða í Reykjavík og hljóðar svo:
„Fyrir nokkru voru stofnuð í Reykjavík samtök er nefnast lceland Hospitality.
Að samtökunum standa um 30 manns, flestir milli tvftugs og þrítugs, sem
telja svonefnda “kynvillu” hvorki sjúkdóm né siðspillt athæfi heldur einn þátt
mannlegs eðlis, sem hvorki sé gerlegt né endilega æskilegt að bæla niður.
Megintilgangur samtakanna er að efla samskipti þeirra, sem eru
sama sinnis og vinna gegn fordómum og fáfræði um þessi mál.
Utanáskrift samtakanna er: lceland Hospitality, pósthólf 4166, Reykjavík.”
//Leiðframhjá útskúfun
Ekkert dagblað birti stafkrók um þetta framtak fyrr en 5. desember 1977.
Þá kom stríðsfyrirsögn á forsíðu Mánudagsblaðsins: - „lceland Hospitality”
starfar af fullum krafti: Margdæmdir öfuguggar ganga lausir og leggjast á