Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 63
I makavalinu lá líka við að hver tæki
við af öðrum þegar upp úr slitnaði.
Smæð hópsins styttir náttúrulega
endurvinnsluhringrásina, óháð því
hvort um er að ræða karla eða konur.
Böllin urðu því einnig vettvangur
alls konar persónulegra uppgjöra
og drama-tíkur, eins og þau líkast
til eru enn í dag. Að ógleymdum
laumuhommunum og lesbíunum sem
komu auövitað ekki fyrr en eftir myrkur
Og þá vel drukkin. En svo þróuðust
þessar samkomur smátt og smátt.
Þegar líða fer á 10. áratuginn er komii
annað hljóð í strokkinn varðandi
mikilvægi ballanna. Að minnsta kosti
af hálfu forystu félagsins. Margrét
Pála Ólafsdóttir fyrrum formaður
Samtakanna ertil frásagnar:
Viö mátum það einfaldlega svo að
tímunum hefði fleygt það mikið
fram að þetta væri ekki lengur
meginverkefni Samtakanna.
Skemmtanalíf samkynhneigðra væri komið út á hinn almenna vettvang
þar sem það ætti heima. Við ákváðum nú samt sem áður að bjóða áfram
upp á þessi klassísku fjölskyldumót sem Samtakaböllin óneitanlega eru.
Böllin halda því áfram að flakka um bæinn næstu árin og
koma meðal annars við í Iðnó, Iðusölum, Kaffi Reykjavík, Lídó,
Þjóðleikhúskjallaranum, Organ og að sjálfsögðu Hótel Borg. Og
eitthvað hafa þau við sig. Vió lok fyrsta áratugar nýrrar aldar staðfesta
aðsóknartölur nefnilega að böllin þrífast sem aldrei fyrr og ganga sífellt
í endurnýjun lífdaganna með góöri aðsókn unga fólksins. Aldís segir frá:
Böllin fara líka stækkandi, verða sífellt skemmtilegri og það besta við
þau er að þangað kíkja margir sem mæta annars aldrei á djammið.
lokum upp á Hlemm á næturklúbbinn Abracadabra og síðar
Moulin Roge. Fólk vill geta skipt um umhverfi eftir því sem líður
á kvöldið og stemmingin kallar á annað og þarna skapaðist því
þessi eðlilegi rúntur sem finna má í öllum borgum erlendis.
//Sveitaböll, risaböll ogfleiri böll
En með breyttum áherslum í starfi Samtakanna á fyrri hluta 10.
áratugarins minnkar vægi félagsmiðstöðvarinnar sem skemmtistaðar.
Á þessum tíma er þó einnig fyrst farið að móta Gay Pride hátíöir
og göngur hér á landi og reyna Samtökin að bjóða upp á ýmislegt
skemmtanahald í tengslum viö þær uppákomur. Samkvæmt
Möggu Pálu næst þó ekki upp nein stemmning í Reykjavík:
Að kvöldi Gay Pride 1994 var því bara haldið sveitaball, liðinu
smalað upp í rútu og haldið í gamalt félagsheimili í Höfnum. Svo
var sungið og drukkið af pela og dansað við gargandi diskó fram
á morgun. Þau urðu svo fleiri en eitt, voru hörkuskemmtanir og
stundum var opnað út og dansað í íslensku sumarnóttinni.
Um aldamót fer fólk svo að hrökkva í gírinn. Samtökin og
Hinsegin dagar standa fyrir miklu dansleikjahaldi í kringum
Gay Pride helgarnar sem fara vaxandi ár frá ári. Hefð tekur að
skapast fyrir stráka- og stelpuböllum að lokinni opnunarhátíð á
föstudagskveldi og auðvitað eru hátíöardansleikir á sínum stað
að lokinni göngu og hátíðardagskrá á sjálfu Gay Pride kvöldinu.
Á því kvöldi er nú fátt sem minnir á sveitastemminguna í Höfnun forðum
daga, því nú býður hefðin að haldið sé á risaball á NÖSU við Austurvöll
undir styrkri stjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar. Kristín Eysteins segirfrá:
Þetta er náttúrulega hvorki meira né minna en skemmtilegasta
ball ársins. Þarna upplifir maður fjöldann, samkenndina
og svo þessa svakalega brjáluðu frelsistilfinningu.
Eftir því sem fleiri einkareknir skemmtistaðir koma að málum verður
svo úr meiru að velja. Dreifingin batnar og þeim sem ekki hugnast
risaböllin geta leitað á annan vettvang. Og ekki veitir af þegar þúsundir
skemmtanaþyrstra og góðglaðra hátíðargesta streyma um göturnar.
Snorrabær,
laugardagskvöld:
Hýrleg
skemmtun
Hommar og lesblur halda sam-
eíghUegan dansleik í Snorrabæ
annafl kvöld. Lif og fjör, hýr og
hress.
SAMTAKABALL
Örlítil tiíkynningum næsta ball
ÍDVl6.september1983.
Jens tekur jafnvel dýpra í árinni:
Mér hefur fundist langskemmtilegast á böllunum
í gegnum tíðina. Þangað koma flestir og þar ríkir
almennt meiri stemming en á skemmtistöðunum.
//Mannfögnuðir í Brautarholti og á Lindargötu
Fyrir utan sjálf böllin hafa Samtökin einnig staðið fyrir
uppá-komum í miðstöövum félagsins í gegnum árin.
í óhrjálegu umhverfi Brautarholtsins eru til dæmis
haldin mörg fjörleg kvenna- og karlakvöld á fyrri hluta 9.
áratugarins og eftir flutninga á Lindargötuna árið 1987
er þráðurinn tekinn upp á ný. Félagið Konur með konum
heldur kvennakvöld, strákarnir halda herrakvöld og MSC
stendur einnig fyrir uppákomum. Veturliði segir frá:
Þarna er loksins hægt að tala um nokkuð frambærilegt
samkvæmislíf samkynhneigðra á íslandi. Kvöldið
byrjaði þá í Samtökunum, svo var fariö á 22, og að
ÞJOHATÍÐ í RISINIÍ —
Ingi Rafn Hauksson, i h’lutvef.ki„Fjallkarlsins", fer með
ræðu í bundnu máli. Finsogá alvöru Þjó(ð)bátíð
standa skátarnir heiðursvörð ogskýla drotthingunum
fyrir úrhelli dagsins. Hérer Bir na TómasdfiSir í hlutverki
hinsávallt viðbúnaskátj|
i