Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 77

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 77
tilfinningar vakna einmitt þegar köid kveðjustundin er óumflýjanleg: Mig langar til að hátta hann aftur í þögn. En hann stendur kyrr. Þá vík ég frá honum og hann brosir og ég til hans. Jafn skjótt er hann farinn. Þá segi ég við mig í huganum: Ástin er skítur, vinur minn, hún er alger skítur. Þá verður einnig að nefna smásagnasafn Guðbergs, Hinsegin sögur, sem kom út 1984 og var einhver róttækasta tilraun til hinsegin bókmennta sem þá hafði sést ð íslandi. Fyrsta sagan, „Hanaslagur hommanna" lýsir tveimur ungum og bráðmyndarlegum hommum sem eru einstaklega karlmannlegir og vekja aðdáun beggja kynja. En þeir eru þeim undrum gæddir aö vera báðir „tvítóla", og bæði tólin eru staðsett „uppi á brjóstinu á hommunum.“ Þetta hefur m.a. það í för með sér að þegar hommarnir gera það á almenningsfæri heldur fólk að þar séu„einhverjir karlmenn með bera bringu að berja saman brjóstkössum fullum af hreysti og heljarmennsku," þ.e.a.s. tveir karlar í hanaslag. Allar sögurnar fjalla um furðuhluti ð borð við þessa, og undirstrika hver á sinn hátt það sjónarhorn höfundarins að í frávikinu, afbrígðileikanum, því sem heimurinn sér sem vansköpun, er fólginn sjálfur lífskrafturinn. //Nýjustu skáldverkin Á undanförnum árum hefur hægt og sígandi bæst í hóp hinsegin bókmennta á íslandi. Ljóðabók Ingunnar Snædal, Guðlausir menn kom út 2006 og hlaut frábærar viðtökur. Þð hefur nokkuð verið um aó íslensk leikrit taki á samkynhneigð með einhverjum hætti. Leikrít Kristínar Ómarsdóttur, Ástarsaga 3, var sýnt í Borgarleikhúsinu 1997. í stuttu máli fjallar það um tvo karla sem æfa leikrit um tvo samkynhneigða karlmenn sem eru í lautarferó í Öskjuhlíðinni. Þriðji karlmaðurinn í verkinu er síðan sögumaður sem bregður sér í hin ýmsu hlutverk, og má segja að hann sé holdtekja viðtekinna hugmynda um samkynhneigða og um leið eins konar tengiliður milli paranna tveggja og milli ðhorfenda og leikverksins. Leikrit Hðvars Sigurjónssonar, Pabbastrákur, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 2003 ogvakti sömuleiðis nokkrar umræðurí þjóðfélaginu, Persónur leikritsins eru hjón, samkynhneigður sonur þeirra og kærasti hans. Faðirinn hefur bundið miklar vonir við einkasoninn en þegar hann segist vera samkynhneigður verður pabbinn fyrir miklu áfalli. Vió tekur örvæntingarfull leit föðurins að sjálfum sér og tilraunir til að nálgast soninn aftur. Bæði þessi leikverk urðu hvatinn að miklum umræðum í þjóðfélaginu, voru sýnd fyrir skólahópa og bryddað var upp á þeirri nýjung að hafa umræður í lok sýningar þar sem áhorfendur gátu látið í Ijós skoöun sína og tekist á við fordómana ef einhverjir voru. Það segir mikið um breytta tíma að þau skáldverk sem komið hafa út síðustu ár og fjallað um samkynhneigð hafa öll fengið góðar viðtökur og verið tilnefnd til verðlauna. Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma, Dyrnar þröngu og Z: Ástarsaga voru allar tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna, og Ingunn Snædal hlaut hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2006 fyrir Ijóðabók sína. Ástarsaga 3 var tilnefnd til Norrænu leíklistarverðlaunanna 1998 og Hávar Sigurjónsson var tilnefndur til Grímunnar 2004 sem leikskáld ársins fyrir Pabbastrák. Allt sýnir þetta hversu mikið hefur miðað fram á við síðustu tvo áratugi. Samkynhneigóir eiga ekki bara eina rödd heldur margar, sem lýsa upplifun þeirra, skoðunum og lífsreynslu á margbreytilegan og litríkan hátt. Þögnin hefur verið rofin, og þar átti penninn stóran hlut aö máli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.