Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 19
Auövitað er lýðræði ekki skilvirkasta
stjórnarform sem til er en i því felst þó
frjómagn og sköpunarkraftur
sem önnur form hafa síður.
Skilvirkasta stjórnarform sem
um getur er hins vegar upplýst
einræði og það ríkti óhindrað í
Samtökunum '78 í mörg ár. Starfið
fólst aðallega í að skrifa fræðigreinar
í blöð um sjúkdóminn hómófóbíu
og halda umræðufundi, gjarna í
safnaðarheimilum þjóðkirkjunnar;
að sögn til að „kortleggja
andstöðuna” en kannski vildu menn bara
ekki fá óupplýstan hommaskríl inn á sig.
//Hneykslaðirá Samtökunum'78
Eftir 1980 fór að rofa til í íslensku samfélagi
og smám saman fóru landflótta hommar að
ttnast aftur heim. Þannig vildi til að þeir sem
höfðu haft hvað mestan áhuga á starfi lceland
Hospitality fluttust flestir aftur heim um sama
leyti haustið 1981. Þá varð Ijóst að fylgi
Samtakanna '78 hafði rýrnað niður í nánast
ekki neitt og þau voru varla mikið meira en
blöð f skrifborðsskúffu. í næstum fjögur ár frá
stofnun þeirra hafði ekki verið haldin ein einasta
samkoma eða skemmtun þar sem menn gætu
hist og talað saman án þess að sitja undir
einstrengingslegum fundarsköpum. Reyndar
hefur lagahyggjan og fundarskapaástríðan
loðað við Samtökin '78 fram á þennan dag.
Menn sem höfðu búið og tekið þátt í gaylífinu
í borgum á borð við Kaupmannahöfn,
Amsterdam, London og San Francisco voru
einfaldlega hneykslaðir á Samtökunum;
á sofandahætti félaganna og durtshætti
forsvarsmanna þeirra við gay almenning. Eftir
miklar viðræður og fundahöld fékkst þó loks
leyfi stjórnarinnar til að efla til skemmtunar í
nafni Samtakanna og fyrsta gay ballið á ísland
var haldið milli jóla og nýárs 1981. Það var
glæsilegt og vel sótt og menn skemmtu sér
hiö besta. Upp úr sauð þó þegar tímarit birti
grein um gay hreyfinguna á íslandi og ballið og
birti myndir með. Enginn þeirra sem sáust á
myndunum kvartaði þó einu orði og greinin var
hin vinsamlegasta í alla staði en forystumenn
Samtakanna ærðust. Þeir höfðu lagt hart
að sér við að ávinna sér traust og virðingu
málsmetandi gagnkynhneigðs fólks og koma
því í skilning um að hommar og lesbíur væru
kúgaður minnihlutahópur, vansæl olnbogabörn
Úrmatarboði hjáMSCseint
á níunda áratugnum
þjóðfélagsins, sem ættu
sér engan málsvara
nema Samtökin. Frá
þeirra sjónarmiði gekk það
drottinsvikum næst að þessir
aumingjar héldu skemmtun
á eigin forsendum og leyfðu sér síðan
blygðunarlaust að segja frá því opinberlega
//MSC ísland
Upp úr þessu hófst
áralangt þras
en hægt og
rólega færðist dálítið
líf í Samtökin og í stjórnina
völdust nýir menn sem höfðu meiri
skilning á félagsþörf og félagsþrá fólks. Þegar
leið á níunda áratuginn kom líka upp óþekktur
sjúkdómur og menn höfðu um nóg annað að
hugsa en þrætur og þras um innanfélagsmál.
Eftir sem áður var þó alltaf greinileg togstreita
milli hópa þangað til þeir sem stóðu á sínum
tíma fyrir lceland Hospitality tóku sig til í
maí 1985 og stofnuðu sitt eigið félag á jafn
lýðræðislegum forsendum og það var.
Stofnendurnir voru sammála um að
skemmtilegustu gay staðirnir sem þeir
þekktu væru leðurbarirnir og það vantaði
algjörlega þann þátt gayltfsins á íslandi.
Þvl skyldum við ekki hafa leðurklúbb
hér? Jafnframt mætti öllum þá vera Ijóst
að nýja félagið væri ekki klofningur úr
Samtökunum og ekki I neinni samkeppni
við þau sem forsvari samkynhneigðra. Hins
vegar fengist þá loksins vettvangur til að
halda uppi siðmenntuðu samkvæmislífi á
gay forsendum. Þetta reyndist heillaráð;
félagar I MSC hafa verið og eru langflestir
líka félagar I Samtökunum og samvinna
félaganna er með mestu ágætum.
MSC ísland hefur haldið uppi félagslffi fyrir
gay karlmenn I rúma tvo áratugi
og er virkur þátttakandi I alþjóðasamstarfi
sams konar klúbba I tveimur bandalögum,
Evrópusambandi og Noröurlandasambandi. I
tíu ár hefur klúbburinn haft eigin samkomustað
þar sem allt starf er unnið I sjálfþoðavinnu.
Tengslin við gömlu grasrótarsamtökin,
lceland Hospitality, hafa alltaf verið augljós
en þó varð sumum dálítið um kaflafyrirsögn
I grein skeleggs blaðamanns I Grapevine I
fyrrasumar þar sem fjallað var um gay lífið
I Reykjavík. Blaðið er gefið út á ensku og
fyrirsögnin sem hann valdi fyrir umfjöllunina
um MSC ísland var: A Refuge for Former
Sexual-political Refugees eða Griðastaóur
fyrir fyrrverandi sexúal-pólitlska flóttamenn.
þÓRÓLFOR. OCc SlGcURJPALL.
VöK-0 A H«MKASKYTTFR.U ÓSK.TOHL’ÍB
fE&AR MStLÍM TflKO ÓVÆ.NTA StEFMO.---
19