Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 31
Einungis sex manns tóku þátt í þessari fyrstu mótmælastöðu, a!ft karlmenn.
Hér má þekkja þá Þorvald Kristinsson sem er íforgrunni myndarinnar, bak við
hann er Ólafur Guðbrandsson. Lengst til hægri er Guðni Baldursson.
til skelfingar herlögreglumenn sem höfðu þá þegar gert upptæk öll
hommaklámblöðin í prestsbústaðnum. Honum var varpað í fangaklefa
á Vellinum og ekki sleppt þaðan aftur fyrr en hann hafði nafngreint
tugi hermanna sem hann hafði átt vingott við meðan hann dvaldi á
Keflavíkurflugvelli. Þeim var öllum vísað úr hernum með skömm. Þetta
sagði hann mér og sambýlismanni mínum í bréfi sem hann skrifaði okkur
og tók þá sérstaklega fram að hans örlög hefðu þó verið betri. Hann var
fluttur í nýja sókn á Havaí þar sem hann hélt áfram að þjóna sinni kirkju
og þá væntanlega einnig með sínu lagi.“
//Guðni og Helgi íkröfugöngu
Árið 1982 var viðburðaríkt hjá hinu unga félagi. Áformað var að taka þátt
í kröfugöngunni 1. maí en tiltækinu var ekki vel tekið af skipuleggjendum
göngunnar. Ekki var þó amast við því að félagar Samtakanna ‘78 væru
með þótt þeir fengju ekki formlega aðild að hátíðarhöldunum þennan dag.
Þegar til átti að taka mættu þó aðeins tveir til að taka þátt. Það voru þeir
Guðni Baldursson og Helgi Viðar Magnússon eiginmaður hans. Þeirgengu
fyrir framan lúðrasveitina Svan með tæplega þriggja metra langan boröa,
hvítan með tveimur bleikum þríhyrningum, sem á var letraö Atvinnuöryggi
fyrir homma og lesbíur. Eftir á að hyggja segir Guðni Baldursson að þessi
tveggja manna kröfuganga hafi verið, „skemmtilegasta aðgerð sem hann
hafi tekið þátt í."
Þá var þetta sama ár haldið í fyrsta sinn upp á frelsisdag homma
og lesbía 27. júní með því að dreifa flugriti á Ingólfstorgi. Einungis
sex félagar tóku þátt í þeirri aðgerð, þar af tveir Svíar sem voru hér
gestkomandi. Það vildi þó félaginu til happs að þennan sama dag var
útisamkoma á torginu í tilefni af því að nokkrir hjólreiðagarpar voru að
leggja af stað í hringferð um landið og var því talsverður fjöldi fólks þar
samankominn.
Á fullveldisdaginn, fyrsta desember, árið 1982 stilltu sex félagar í
Samtökunum sér upp á Austurvelli gegnt Alþingi og mótmæltu banni
Ríkisútvarpsins á auglýsingum sem var beint til lesbía og homma og
sinnuleysi stjórnvalda um það misréttí sem hommar og lesbíur þyrftu að
búa við. Þótt aðgerðin væri ekki fjölmenn var mikill hugur í þátttakendum.
Einn huldi andlit sitt framan af en eftir aó leið á mótmælaaðgerðina
féll gríman. Atburðurinn vakti mikla fjölmiðlaathygli og kom málstað
samkynhneigöra á kortið. Þá sýndi sjónvarpið frá þessum mótmælum en
það hafði ekki gerst áður nema þegar Jón Ragnarsson, Nonni, fór í viðtal
haustið 1975. Þá rak fréttakona sjónvarpsins upp í hann hljóðnema og
spurði ábúðarmikil: „Eruð þér kynvilltur Jón.“