Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Qupperneq 42

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Qupperneq 42
í þingheimi en frumvarpi þess efnis sem fyrst var flutt af Ólafi Erni Haraldssyni þingmanni Framsóknarflokks hafði í tvfgang verió hafnað, fyrst árið 1996 og aftur ári sfðar. Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti ásamt fleiri þingmönnum úr öllum flokkum fyrir þingsályktunartillögu árið 2003 um skipan nefndartil að kanna réttarstöðu samkynhneigðra og gera tillögur til úrbóta. Fulltrúi Samtakanna ‘78 í þeirri nefnd var Þorvaldur Kristinsson en Anni Haugen, einn reyndasti félagi Samtakanna ’78, varfulltrúi Féiagsmálaráðuneytisins. Nefndin var sammála um að banna ætti að mismuna samkynhneigðum á vinnumarkaði, þeirgætu skráð sig f sambúð líkt og gagnkynhneigðir og hún var sammála um að hvetja þjóðkirkjuna til að breyta afstöðu sinni hvað varðaði kirkjulega vígslu. Hún klofnaði hinsvegar þegar kom að því hvort lesbíur ættu að öölast rétt til tæknifrjóvgana og hvort samkynhneigðir mættu ættleiða börn frá útlöndum. Fulltrúar Samtakanna skiluðu ásamt fulltrúa Menntamálaráðuneytisins öflugu áliti og lögðu til að þetta yrði leyft. Hinn helmingur nefndarinnar var því mótfallinn. f stað þess að rfkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar færi þá leið að semja frumvarp sem tæki mið af því sem allir urðu sammála um var lagt fram frumvarp árið 2006 sem var nánast samhljóða áliti Þorvaldar, Anniar og fulltrúa Menntamálaráðuneytisins. Lokasigrinum var fagnað þegar lögin tóku gildi á frelsisdegi homma og lesbfa árið 2006. Samkynhneigðir geta nú skráð sig í sambúð án þess að staðfesta samvist sína og hafa um eitthundrað pör notfært sér það. Lesbíur fengu ennfremur heimild til að fara í tæknifrjóvgun á opinberum sjúkrastofnunum og samkynhneigð pör fengu að ættleiða börn. Kirkjan stóð sem fyrr f vegi fyrir því að hægt væri að lögfesta kirkjulega vígslu svo lögin tóku eingöngu til borgaralegra athafna. Á síðasta Kirkjuþingi var ákveðið að prestar mættu vígja sambönd samkynhneigðra ef þeir svo kysu en þeim bæri ekki skylda til þess. Bent hefur verið á að slík afstaða kirkjunnar sé tvíbent í meira lagi og gæti verið skref afturábak þar sem einstakir prestar hafi nú fengið grænt Ijós á að mismuna sóknarbörnum sfnum eftir geðþótta. Guðni Baldursson segir að fullum réttindum sé nú náð og kirkjan geti bara átt sig. „Það er í raun tímaskekkja að kirkjan sé að blanda sér í veraldlegar athafnir af þessum toga og umsvif hennar fara minnkandi á því sviói sem betur fer." NU MA E& \J€RA (kOtttikí T (ce65StriOK V°wt>A, VönJpA ‘STELPA....
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.