Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 44
//Kirkjan hjálpaði til
Hrafnhildur Gunnarsdóttir var formaður ð tfmabilinu og fékk það verkefni
í arf að passa uppá að ekki færi allt í háaloft í samfélaginu meðan
lögin færu í gegn. Hún þakkar kirkjunni að lögin um tæknifrjóvgun
og ættleiðingar gengu jafn greiðlega fyrir sig á Alþingi og raun bar
vitni. „Kirkjan þyrlaði upp moldviðri þegar fjölmiðlar gengu á presta
vegna þessara vígslumála. Það varð til þess að andstaða við önnur
og mikilvægari mðl fyrir okkur, svo sem tæknifrjóvgun og ættleiðingar
kafnaði í fæðingu. Við vorum guðslifandi fegin að rífast við svartstakka
Þjóðkirkjunnar um kirkjulegar athafnir meðan þetta sigldi allt
áreynslulaust í gegn."
En Hrafnhildur fékk einnig annað veigamikið hlutverk sem formaður. Hún
kom því til leiðar að transgender fólk fékk formlega inni í félaginu með
því að barátta fyrir réttindum þeirra er nú hluti af markmiði félagsins. Að
sama skapi fengu tvíkynhneigðir líka sitt pláss, þrettán árum eftir lætin
ðrið 1994. Hrafnhildur segir að Susan Stryker sem flutti fyrirlestur um
reynslu sína sem transgender einstaklingur á Hinsegin bíódögum árið
2006, hafi opnað augu margra sem áður höfðu átt erfitt með að skilja
sameiginlegan reynsluheim homma, lesbía og transgender fólks. „Égvar
alveg ákveðin í að breyta þessu þegar ég tók við sem formaöur en ég
vildi fara þá leið að fræða fólk til að forðast sársaukafullar deilur. Það
hafa alltaf verið margír innan Samtakanna sem hafa verið uppteknir af
þessu „streit lúkki.““
//Fjölbreytt þjónustustofnun ídag
Um fimmhundruð manns eru félagar í Samtökunum ‘78 en fjöldinn
hefur fimmfaldast frá árinu 1990 en þá þótti það mikill áfangi að hafa
náð eitthundrað félagsmönnum. Þeir víðburðir sem félagið stendur fyrir
eru einn helsti félagslegi vettvangur hinsegin fólks. Enn þarf að standa
skýran vörð um réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender
fólks og hafa hugfast að fordómar eru enn til staðar í samfélaginu
og nýir geta hæglega skotið rótum. Samtökin hafa tekið breytingum
frá sínum sokkabandsárum og hafa nú borgaralegra yfirbragð en áður.
„Samtökin hafa hægt og bítandi verið að breytast úr grasrótarsamtökum
í þjónustustofnun en slík breyting var óhjákvæmileg," segir Hrafnhildur
Gunnarsdóttir. „Það erfjöldi verkefna sem bíður Samtakanna ‘78,
ekki síst hvað varðar þjónustu
við homma og lesbíur," segir
Þorvaldur Kristinsson. „Við eigum
að þjónusta fólk frá vöggu til
grafar. Svona samtök þurfajafnt
að eiga kistufána í regnbogalitum
og geta leíöbeint lesbtum sem
vilja fara í tæknifrjóvgun. Það er
heldur ekki óhugsandi að menn
vilji til að mynda reisa elliheimili
fyrir þennan hóp í framtíðinni. Við
þekkjum dæmi um það frá öörum
löndum að það er full þörf á.“
„Samtökin verða að halda áfram
að afla málstaðnum fylgis,"
segir Guðni Baldursson. „Það er
margt ógert. Til dæmis þarf að
skrifa söguna. Og fyrir hvern og
einn er það mikilvægt að hafa
stökkpall út í lífið þótt ekki sé nema í stuttan tíma. Þetta hefði allt verið
auðveldara í gamla daga ef það hefði veriö til svona félag."
Hinn gamli arfur baráttunnar lifir hinsvegar áfram í Hinsegin dögum
sem hafa allt frá árinu 2000 veríð fjöldasamkoma og á allra sfðustu
árum hefur aðsóknin nær slegið sjálfum sautjánda júní við enda fáir
sem standast hommum og lesbíum snúning þegar kemur að því að
skipuleggja fslenskt Karnival. Sextíu og sex manns tóku þátt í fyrstu
gleðigöngunni árið 1993 sem Samtökin ‘78 stóðu fyrir og Sandra Björk
Rúdólfsdóttir skipulagði með glæsibrag. Árið 1994 var aftur gengiö
og mættu þá litlu fleiri. Það var árið 1999 sem fyrst voru haldnir
útitónleikar undir merkjum Gay Pride hreyfingarinnar. Þá mættu fimmtán
hundruð. Árið eftir fór aðsóknin fram úr öllum vonum en fimmtán þúsund
voru við hátíðarhöldin í miðborginni. f fyrra er talið að um sjötíu til áttatíu
þúsund manns hafi verið í miðborginni vegna Gay Pride hátíðarhaldanna.
Þaó er ólíklegt að þátttakendur í fyrstu gleðigöngunum hafi órað fyrir
því að þessi fyrsti vísir af gleðigöngu samkynhneigðra á íslandi yrði sú
sigurganga sem á hverju ári liðast stolt og óbuguð niður Laugaveginn.