Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Síða 54
1960-1970
1970-1980
//Borg í viðreisn og hommar á Hábæ
Laugavegur 11 er sóttur af hommunum meira og minna allan 6.
áratuginn, eða allt þangað til aörir staðir taka við. Samkvæmt lögmálinu.
Sjöundi áratugurinn verður svo áratugur Viðreisnarstjórnar í landsmálum
og samkvæmt Þóri upplifir Hótel Borg líka sína eigin viðreisn:
Já, vinsældir hennar hafa farið upp og niður, en hádegisbarinn, sem
var frá tólf til hálf þrjú á laugardögum, var alltaf sérstaklega öflugur.
Annar hommi kastar frekara Ijósi á ástandið:
Við vorum töluvert á Borginni á árunum ‘62-'64 og sumir gengust
jafnvel við samkynhneigðinni væru þeir spuröir. Málið var bara að það
spuröi enginn. Fólk hélt, vissi og hvíslaði en enginn talaði um þetta.
Enda voru menn kannski ekkert komnir þarna eingöngu til að kjafta.
Mönnum ber saman um að á þessum árum hafi barinn á Naustinu
einnig verið töluvert vinsæll viðkomustaður. Þórir nefnir Itka Glaumbæ:
Já, hann var alltaf dálítið gay. Þar var alltaf eitthvað
að gerast, eða allt til að hann brann 1971.
í apríl 1962 opnar svo veitingastaðurinn Hábær efst á Skólavörðu-
holtinu, þar sem nú er Hótel Leifur Eiríksson. Staðurinn er lítill og
k dálítið úr ieið og
veitir kærkomið
skjól frá skarkala
miðbæjarins. Á
m neðri hæðinni er
bar og matstofa
sem seiur kínverskan mat. Á þeirri efri er annar bar og
setustofa og þangað fara hommar og listamenn að venja
komur sínar upp úr 1964. Einn gestanna lýsir staðnum:
Þetta var góður veitingastaður, en heldur dýr. Þarna var mikið
um að vera, sérstaklega á föstudagskvöldum og geysimikið um
homma. Stundum upp undir 20-30 manns á barnum, sem líklega
rúmaði um 40 manns. Andrúmsloftið var virkilega notalegt og
bauö upp á mikið sull, sukk og kjaftagang. Starfsfólkið vissi
allt um okkur hommana og það var bara hið besta mál.
Þórir bætir við:
Dagurinn hófst oft á Borginni í hádeginu, svo var
heimapartý og að lokum farið á Hábæ um kvöldiö.
Seinna er garðurinn við húsiö opnaður og kallaöur „Garður
hins himneska friðar". Borðum og bekkjum er slegið upp,
boðið upp á tónlist og vinsældirnar aukast. Gestum af öóru
sauðahúsi fer fjölgandi, en eftir því sem stemmingin breytist
tínast hommarnir hljóðlega á brott, einn af öðrum.
U*m'nr nýtt veitinga
ndLkcl hús í R.vík
f GJER opnaði nýtt og sérstætt | val arkitekt teiknaði og sá um
veitlnga- eða veizluhús hér í smíöi þess á vegum Húsbúnaðar
Revklavík. Ilefur haff hlotiff I h.f. Vekia sum húsKÖgnin atíiygli
//Bömpað á Sesari og troðið upp í Stúdentakjallaranum
Þegar síðustu hommarnir yfirgefa Hábæ um miðjan 8. áratuginn
hefur enn á ný færst fjör í Borgina. Haukur Morthens, Óli Gaukur
og Svan-hildur halda uppi stuðinu og hommarnir stíga jafnvel
nokkur varfærnisleg spor saman. Mest þó í gríni. Á þessum árum
fer líka að verða ákveöin gerjun í skemmtanalffinu. Diskóið fer
að ryðja sér til rúms og upp spretta nýstárlegir skemmtistaðir.
Veturliði Guðnason lýsir Sesari sem opnar f Ármúlanum 1975:
Sesar var svona upplýstur diskóstaður með Ijósum í gólfinu og
veggjunum og allir að dansa bömp og voða skrítið. Þangað fjölmenntu
hommarnir og voru bara við dansgólfið. Það var ekkert sem heitir!
Og sama ár og hommarnir fara að bömpa á Sesari opnar
Stúdentakjallarinn. Hann er af allt öðrum meiði og verður á næstu
árum griðastaður margra lesbía. Lára Marteinsdóttir er ein þeirra:
Það var alltaf gott að sækja kjallarann heim. Þarna var
sambland af stúdentum, listamönnum og leikurum og mikið
um tónleika og uppákomur. Jafnvel kom fyrir aö lesbíur
tróðu upp. Gestirnir voru líka það opnir og frjálslyndir að
þeir tóku okkur afar vel og við urðum hluti af hópnum.
BÖMPAÐÁBARNUM
Þjónarnir á Sesari brosa sínu breiðasta og hel
tvöföldum vodka í appelsín íjanúar1976.
198^^990
//Óðal varðanna, kynvillturKlúbburogséreignarrétturáSafarí
Þegar nær dregur árinu 1980 verður sviptivindasamt. Sesar
leggur til dæmis upp laupana og er leystur af hólmi af stjörnum
prýddri Hollywood. Borgin er enn á ný í góðri sveiflu og samkvæmt
Láru ríkir þar nú dálítið vinstrisinnað andrúmsloft:
Já, þarna blönduðum við geði við hugsjónafólk úr pólitík og
listum. Stemmingin var þvf oft mjög róttæk og umræður líflegar.
Diskódrottningarnar fóru hins vegar bara í Hollywood.
Og ekki má gleyma Óóali. Sá staður opnar 1971, öólast vinsældir
meóal hinsegin fólks í lok áratugarins og er farinn að skáka Borginni
árið 1982. Fimmtudagskvöldin verða vinsæl og hefjast þá oft með
viðkomu í Samtökunum ‘78 á Skólavörðustfg áður en haldið er á Óöal.
En það er ekki bara fjör á Óðali. Hommarnir lenda í endurteknum