Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 56
Gestur opnar um miðjan mars 1985. Úr Mogganum 16. apríl sama ár.
ílr salakynnum Café Gests. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Café Gestur,
nýtt veitingahús
Sestur. Eöa allt þangað til að þeir síðustu standa upp árið 1986.
Og þótt skammvinnri og skrautlega tilveru sé nú lokið hefur
Gestur markað djúp spor í vitund þeirra sem halda nú á braut.
Árið 1985 opnar skemmtistaðurinn Uppi og niðri við
Hlemmtorg. Líkt og með Gest gerir hinsegin fólk staðinn
fljótlega að sínum og samkvæmt Láru á hann eftir að koma
töluvert við sögu næstu árin.! ýmsum myndum:
Já, þarna var fínt að vera plötusnúður. Stemmingin gat orðið alveg
ótrúlega góð, gestirnir yfirleitt skemmtilegir. Stundum rákust líka
inn kunnugleg andlit á borð við Björk Guðmundsdóttur og félaga.
Fljótiega nær reksturinn þó botninum og staðurinn lognast út
af. I júní 1987 skríður hins vegar lítill fugl upp úr rústunum og
í þetta sinn er enginn Fönix á ferð, heldur veitingastaðurinn
BRABRA HEFUR FLUGIÐ
Auglýsingum nýjanstað ÍMorgunblaðinu 24.júní1987.
NÝR SKEMMTISTAÐUR NÝR SKEMMTISTAÐUR NÝR SKEMMTISTAÐUR NÝR SKEMMTISTAÐUR
Abracadabra, eða bara Brabra. Staðurinn býóur alla velkomna,
lofargóðri stemmingu og áminnir gesti um snyrtilegan klæðnað.
Hinsegin fólk mætir í stórum stíl og þar á meðal er Ingi Rafn:
Abracadabra varð bara aöalstaóurinn. Gestahópurinn var fjölbreyttur
og þarna vorum við vel liöin. Vió sóttum í músíkina, dönsuöum
bara og drukkum vatn og vorum því ekkert sérstaklega vinsælir
á barnum. Ég man líka eftir mörgum ungum stelpum þarna sem
dýrkuðu okkur. Þeim fannst svo gaman að dansa við okkur.
En svo fatast Brabra
flugið. Árið 1989 hefur
stemmingin súrnað í
sígarettureyk og
áfengisbrælu og
snyrtilegum klæðnaði
verið skipt út fyrir
grófari leðurflíkur.
Hommar og lesbíur eru
enn á stangli, en hafa
að mestu vikið fyrir
smákrimmum og smápíum,
sem ásamt svampþyrstum
örlagabyttunum kneyfa
ölið stíft í skúmaskotum
undirheimanna.
//Byltingin í
rauða húsinu
Á meðan síðustu andvörp
Brabra berast upp úr
undirdjúpum Hlemmtorgs
er eitthvað á seyði í rauða
húsinu við Laugaveg 22.
Fréttabréf Samtakanna
‘78 lýsir því sem byltingu
og segir hinsegin fólk
ekki lengur þurfa að flýja
land tíl að upplifa alvöru
hýran skemmtistað. Ingi
Rafn stýrir staðnum:
22 ævintýrið var bara
geggjað. Gay liðið fer
strax að sækja staðinn
þegar hann opnar á
einni hæð vorið 1988,
en haustið 1989 er efri
hæðin keypt og þá opnum
við staðinn undir nafninu
Gayklúbburinn Vefur.
Ýmis nýmæli fylgja
staðnum. Þar á meðal
eru lítil VIP plastkort
með íslenska fánanum,
bleikum þríhymingi og
áletruninni Gay 22 sem er
ætlað að veita hinsegin
viðskiptavinum forgang.
Hundrað kort eru gefin
út og seljast nær öll.
Og það er fleira nýtt:
Já, rúsínan var svo sett
í pylsuendann með
skiltinu „Gay 22“ fyrir
ofan innganginn. Það
var algjört breikþrú.
DÝFURNAR RÚLLAUPPLEIKSIGRUNUM
Hér má sjá þá Inga Rafn Hauksson ogÁrna „Glóbó"
Kristjánsson á senunni á 22 um 1990.’
56