Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 65
HEIMASAMKWMir
//„ H var er partý í kvöld?"
Það væru hreinlega svik við söguna að gera grein fyrir skemmtanalífi
hinsegin fólks án þess að minnast á heimapartýin. Eins og með svo
margt annað á þessum vettvangi er upphaf þeirra þó heldur óljóst.
Heimildir vitna um partý á svipuöum tíma og Elías Mar og félagar sitja á
Laugavegi 11, en hugsanlega má rekja þau afturfyrir heimsstyrjöld. Hver
veit? Eitt er þó víst. Hlutverk þeirra í sögu hinsegin fólks er veigamikiö.
Á 7. og 8. áratugnum er hinsegin fólk enn í dimmum skápnum.
Hætti það sér hins vegar út á djammið þarf þaö að vera
mætt fyrir 23.30 til að komast inn. Gildir svo einu hvort
föstudagsstemmningin er súr eöa sæt, lýðurinn skal heim
að sofa klukkan 1. Á laugardagskvöldum eru varðhundar
ríkisforsjárinnar örlítið rausnarlegri og leyfa útivist til klukkan tvö.
Séu þessar breytur lagðar saman við áðurnefnda fordóma á skemmti-
stöðunum þarf engan snilling til að sjá hversu mikilvæg heimapartýin eru
þeim sem ekki eru hreinlega flúnir af landi brott. Veturliði hefur orðió:
Þetta var raunverulega þannig á þessum árum að síðdegis á föstudegi
fóru símarnir aó glóa: „Hvar er partý í kvöld og hvað er að gerast
um helginal?" Þá var ekki að spyrja að því að allt kerfiö fór í gang,
hringt um allar trissur, komist að því hverjir skulduðu heimboð og
svo framvegis og innan skamms voru menn þannig komnir með
áætlun helgarinnar í hendurnar. Og þessi samkvæmi voru svo
mikilvæg að þau urðu hreinlega að stofnunum í skemmtanalífinu.
Lýsingar Inga Rafns eru svipaðar:
Já, og eflaust má segja að þau hafi svaraö þessari stöðugu eftirspurn
eftir stöðum og tíma til að skemmta sér á. En svo var það líka öryggiö
sem þau veittu. Þau voru nefnilega alltaf miklu frjálslegri en skemmti-
staðirnir og þar gat fólk dansaö og kysst án þess að vera rekiö út.
Þórir tekur undir þessi sjónarmið, en segir samkvæmin
líkajafn misjöfn og þau eru mörg:
Sum voru dannaöri en önnur og viö héldum stundum
tilkomumikil heimboð með borðskreytingum og tilheyrandi.
Fyrir vikiö klíndu gárungarnir á okkur nöfnum eins og
Postulínsgengið. Þá voru einnig haldin þemapartý, þar sem
til dæmis allir mættu í dragi eða grímubúningum.
Og samkvæmt Veturliða eru partýin haldin bæði fyrir og eftir böii:
Já, og á 22 tímabilinu náði þróunin svo hámarki í þessu séríslenska
fyrirbæri „fyrir utan ball“, að standa eöa sitja á tröppum og gangstéttum
fyrir utan staðina eftir lokun. Þar var svo veitt og valið inn í eftirpartýin.
Við félagarnir rannsökuðum þetta og skiptum þessu í fimm þætti:
Sá fyrsti var partýiö fyrir ball. Annar þáttur geröist svo á barnum og
gólfinu uppi. Sá þriöji fór fram á neðri hæðinni fyrir lokun og sá fjórði
í þvögunni fyrir utan. Sá fimmti var svo í eftirpartýinu. Og það var að
sjálfsögðu fyrst í fimmta þætti sem eitthvað fjör fór að færast í leikinn.
Eins og áður hefur komið fram helst partýmenningin í hendur við
framboð á skemmtistöðum og opnunartíma. í júlí 1979 verður bylting
í þessum efnum og fólki leyft að skemmta sér til klukkan 1 á virkum
dögum og 3 um helgar. Nítján árum síðar, eða í júlí 1998 tekur
lögreglusamþykkt Reykjavíkur svo breytingum og í mars 1999 er
samþykkt ný og endurskoðuö regiugerð um áfengissölu. Breytingarnar
gera veitinga-mönnum nánast kleyft að hafa opið allan sólarhringinn
um helgar og Ingi Rafn segir heimasamkvæmin líða fyrir það:
Ég man eftir mörgum skrautlegum heimapartýum um 1990, þegar
einungis var opið til þrjú. Þá kom fyrir að menn djömmuðu alla
nóttina og allan daginn og fóru svo ekki úr partýinu fyrr en aftur
um kvöldið. Til aö fara aftur út að djamma. Það má svo eiginlega
segja að partýin hafi dáið með breyttum opnunartfma.
Hið breytta partýlandslag er líka eitthvað sem Aldís
og hennar kynslóð upplifa áratug síðar:
Við vinkonurnar höldum partý fyrir flest böll. Þaó er alltaf
gott að hita upp saman og skella sér svo á gott ball eða bara
út á djammið. Ég verð hins vegar minna vör við eftirpartý
enda tollir maður vanalega niðri í bæ fram eftir morgni.
ÞRÓUNSKEMKTANAMENNINGAR
OG^Á^KY^AR
//Af streiturum, hanastélshommum og viskílesbíum
Þegar svo er komið út á djammið rekst hinsegin fólk oft á tíöum á
gagnkynhneigða fólkið, eða hina svokölluöu streitara. Um muninn
á skemmtanahegðun þessarra hópa tveggja segir Veturliði:
Þaö er svo merkilegt að í skemmtanalífi okkar sér maður streitlífið í
dálitlum spegli. Auðvitað með svolítið öðrum formerkjum, karlmenn að
hitta karlmenn og allt það, en samt eru svo mörg lögmál sem eiga alveg
vió. Streit skemmtanalffið er náttúrulega miklu stærra og þaó eru bara
fáar borgir sem geta státað af slíkri stærð í gaylífinu. En þegar maöur
skoðar þessa smækkuðu mynd, þá skilur maður stundum streit lífið
betur. Svona vísindalega. Og hvort sem fólk er gay eða streit heldur
það alltaf að þetta snúist um að þjóna einhverjum kynferðislegum
tilgangi. Undirliggjandi er það náttúrulega það sem heldur mannlífinu
áfram og gangandi, það er auðvitað satt. En ég hef tekið eftir þvf að
gay staðir, sérstaklega þeir sem eru nú svona virkilega vel sóttir og
fínir, eru erfiðustu staðirnirtil að ná sér í einhvern til að sofa hjá.
65