Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 72
BLESSAÐ BARNALAN
Þegar pörin tvö, hommarnir og lesbíurnar, sögðu vinum og ættingjum að
þau ættu von á barni saman voru viðbrögð fólks með ýmsu móti. Margir
óskuðu þeim innilega til hamingju og litu greinilega svo á að full ástæða
væri til að fagna litlu barni, hvernig sem það væri til komiö. Afar og
ömmur voru alsæl með aö bæta við barnabarnahópinn. Aðrir hófu miklar
varnaðarræöur, bentu á að líffræðilegi faðirinn Þorsteinn Magni gæti
lenti í alls konar vandræðum með forræðið, Orri Þór maki hans yrði
settur til hliðar og ætti engan rétt, líffræðílega móðirin Steinunn Inga
yrði að kljást við ótrúlegar flækjur vegna skipan mála og Kolbrún Edda
maki hennar yrði réttlaus með öilu, nema þær færu þá leiðina að
Kolbrún Edda stjúpættleiddi barnið. Sem Þorsteinn Magni tók ekki í mál,
enda hafði hann ekki hugsað sér að feðra barn án þess að vera skráður
faðir þess og hafa forræði með móöurinni. Fjórmenningarnir leystu
málin sín á milli, hvað sem ölium vangaveltum og úrtöluröddum vina og
ættingja leiö.
„Við vorum á tímabili með lögfræðing í starfi við að ganga frá öllum
pappírum. Lögfræðingurinn, Valborg Þ. Snævarr, hafði nú ekki fengió
mörg mál af þessum toga til sín,“ segja þau. „Við reyndum að sjá fyrir
allar þær aðstæóur sem gætu komið upp. Hvernig fer með forræðið ef
Steinunn fellur frá? Hvaða rétt á Orri ef þeir skilja? Við vildum skrá þetta
allt saman niður, en grunnforsenda þess að við eignuðumst barn saman
er vinátta okkar og gagnkvæm viröing. Hagmunir sonar okkar ráða
algjörlega. í raun er þetta fyrirkomulag ekkert frábrugðið því þegar karl
og kona eignast barn og skilja svo. Þá þarf að semja um alla hluti, með
hagsmuni barnsins að leiöarljósi. Við þurfum hins vegar ekki að buröast
með særðartilfinningar eða reiði, sem fylgir oft skilnaði."
//Vildu að barnið þekkti uppruna sinn
Reynir Björn Þorsteinsson er fimm mánaða snáði, sem býr svo vel
að eiga tvær mömmur ogtvo pabba. Hann á heima hjá mömmunum,
Steinunni Ingu Björnsdóttur og Kolbrúnu Eddu Sigurhansdóttur, sem
hafa verið saman í hálft fimmta ár og í staöfestri samvist í tæp tvö ár.
Stundum fer hann til pabbanna, Þorsteins Magna Björnssonar og Orra
Þórs Bogasonar, sem hafa verið í staðfestri samvist í svipaðan tíma.
Reynir Björn er enn svo lítill að hann er ekki lengi í einu í „pöbbun", en
um leiö og hann eldíst aðeins er líklegt aö hann eyði drjúgum tíma hjá
pöbbum sínum, rétt eins og mömmum. Þegar hann byrjar í skóla þurfa
foreldrarnir fjórir að taka afstöðu til þess hvort þeir ætli að búa í sama
hverfi, til að auðvelda guttanum að rölta á milli heimila.
En hvers vegna fóru þau þessa leið? Steinunn og Kolbrún hefðu getað
farið í tæknifrjóvgun með gjafasæði. Fyrir nokkrum árum hefðu þær að
vísu þurft að leita útfyrir landsteinana, til dæmis tii Danmerkur, þangað
sem fjölmargar íslenskar lesbíur hafa farið á undanförnum árum. Núna
hefðu þær ekki einu sinni þurft að skreppa til Danmerkur, því íslenskar
lesbíur eiga kost á tæknifrjóvgun hér á landi. „Við kusum að fara þessa
leið, af því að við vildum að barniö ætti kost á að þekkja uppruna sinn,“
segir Steinunn. „Við veltum vissulega fyrir okkur að fara hina leióina, en
sú regla gildir bæði hér á landi og í Danmörku að sæðisgjöfum er tryggð
nafnleynd. Við erum alls ekki að dæma um hvort er betra, það verður
hver að ákveða fyrir sig. Okkar niðurstaða var að leita til vina okkar, en
önnur leið hentar áreiðanlega öðrum betur.“
Aðrar lesbíur sem eiga börn spurðu þær gjarnan hvernig f ósköpunum
þær tímdu að deila barni sínu með öðru pari, þeim Þorsteini og Orra.
„Okkur fannst hins vegar felast styrkur í þessu, þeir myndu hjálpa okkur
við uppeldið og fá tækifæri sem hefði ekki boóist þeim annars. Við litum
aldrei á það sem vandamál að barnið okkar ætti fleiri foreldra en okkur
tvær. Börn verða aldrei of elskuð."
Kolbrún var sú forsjála. Hún varfarin að velta fyrir sér barneignum áður
en hún kynntist Steinunni, enda ákveðin frá unglingsaldri að verða
mamma. „Ég fékk þessa hugmynd í byrjun árs 2003, að tala viö Þorstein
og Orra og spyrja þá hvort þeir væru til í þetta eftir nokkur ár. Ég þekkti
tvær stelpur sem bjuggu saman og höfðu eignast barn með vini sínum.
m