Fréttablaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 18
Ég er ekki sammála
þeirri umræðu að
það sé komið að einhverjum
kaflaskilum.
Arnar Gunnlaugsson
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Þjálfarateymi kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu tilkynnti
í gær hvaða 23 leikmenn væru í
hópnum fyrir leikina gegn Slóvakíu
og Ungverjalandi í undankeppni
EM. Tvær breytingar eru í hópnum,
Dagný Brynjarsdóttir og Rakel
Hönnudóttir, tvær af reynslumeiri
leikmönnum liðsins, koma aftur inn
í stað Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur
og Hólmfríðar Magnúsardóttur.
Stelpurnar okkar mæta Ung-
verjum og Slóvökum undir lok
mánaðar, þar sem líklegt er að tveir
sigrar tryggi kvennalandsliðinu
þátttökurétt í lokakeppni Evrópu-
mótsins, sem fer fram sumarið 2022.
Það yrði í fjórða skiptið í röð sem
Ísland kæmist í lokakeppnina.
Íslenska liðið fékk undanþágu til
að æfa saman í aðdraganda leikj-
anna í sérstakri vinnusóttkví og
mun æfa saman út næstu viku áður
en haldið er út.
„Við fengum undanþágu til að
æfa og höfum æft með tilliti til
sóttvarnaaðgerða undanfarna
daga, svipað og Valskonur sem hafa
fengið að æfa í vinnustaðarsóttkví.“
Jón Þór segir þessa aðferð ekki
æskilega en enga afsökun.
„Við vonumst auðvitað til þess
að þetta skili sér inn á völlinn.
Þetta hafa verið fínar æfingar og
stelpurnar tekið vel á því, bæði
hjá okkur og þegar þær voru upp
á eigin spýtur. Ástandið á liðinu er
þokkalegt en þetta er auðvitað ekki
eins og að keppa leiki. Við munum
finna fyrir því að hluti hópsins
hafi ekki spilað í tæpa tvo mánuði
þegar kemur í leikina, en það þýðir
ekkert að væla yfir því. “
Líklegt er að sex stig í næstu
tveimur leikjum skili kvenna-
landsliðinu á Evrópumótið, en það
kemst ekki á hreint fyrr en riðla-
keppninni lýkur í febrúar.
„Það var lagt upp með það fyrir
keppnina að vinna alla leikina
fyrir utan leikina gegn Svíum og
reyna að fá að minnsta kosti eitt-
hvað út úr öðrum leiknum gegn
þeim. Uppskeran úr því myndi lík-
legast duga okkur í annað sætið.
Við erum á góðri leið með það og
að koma okkur í góða stöðu til að
komast beint inn á EM, sem eitt af
þremur stigahæstu liðunum í öðru
sæti.“ – kpt
Með tveimur sigrum förum við langleiðina á EM
Kvennalandsliðið hefur æft á undanþágu síðustu vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Eftir að komandi leikjum
í Þjóðadeildinni lýkur, rennur
samningur Eriks Hamrén og Freys
Alexanderssonar, þjálfara íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu,
út og spurning er hvert framhaldið
verður hvað þjálfaramálin varðar.
Freyr hefur nú þegar samið við Al
Arabi í Katar um að gerast aðstoðar-
maður Heimis Hallgrímssonar.
Þegar sá samningur var tilkynntur
var greint frá því að Freyr myndi
klára verkefni þessa árs með lands-
liðinu, en ekkert um framhaldið.
Engar fregnir hafa borist um við-
ræður um framlengingu á samningi
Hamréns, enda eðlilegt að aðilar
hafi einsett sér að klára þessa leiki
áður en viðræður hæfust.
Fréttablaðið fékk Arnar Berg-
mann Gunnlaugsson, þjálfara
karla liðs Víkings í knattspyrnu og
fyrrverandi landsliðsmann, til að
rýna í stöðuna.
„Mér finnst Hamrén og Freyr hafa
staðið sig vel í starfi og ef ég væri í
forsvari fyrir KSÍ myndi ég bjóða
Hamrén áframhaldandi samning.
Ég er ekki sammála þeirri umræðu
að það sé komið að einhverjum
kaflaskilum og þörf sé á einhverri
drastískri breytingu hjá þessu liði.
Við vorum fimm mínútum frá því
að tryggja okkur sæti á EM og mér
fannst leikurinn við Ungverja vel
upp settur og ekkert sem þjálfara-
teymið hefði getað gert betur,“ segir
Arnar um vangaveltur, um hvort
kominn sé tími á þjálfaraskipti.
„Að mínu mati er eðlilegt að
treysta áfram á þá leikmenn sem
hafa komið okkur á þann stað sem
við erum á í dag, þrátt fyrir að þeir
séu ekki í sínu besta leikformi. Það
sást fyrsta hálftímann að þessi sam-
setning virkar best og við vorum
fínir fyrsta klukkutímann. Svo fer
leikformið vissulega að láta á sjá
hjá nokkrum leikmönnum og það
er áhyggjuefni hversu illa við ráðum
við að missa lykilleikmenn eins
og Jóhann Berg [Guðmundsson]
og svo Aron Einar [Gunnarsson]
af velli. Þetta er hins vegar ekkert
nýtt vandamál og ekki eitthvað sem
hægt er að skella skuldinni á Ham-
rén fyrir, finnst mér,“ segir hann enn
fremur.
„Nú þegar þessari undankeppni
er lokið er eðlilegt að spyrja sig
hvert framhaldið verður hjá leik-
mönnum á borð við Hannes Þór
[Halldórsson] og Kára [Árnason].
Að mínu mati er hins vegar erfitt
að fara í einhver kynslóðaskipti
á meðan Hannes Þór og Kári eru
að spila jafn vel og raun ber vitni.
Þeir voru báðir frábærir í leiknum
í fyrradag en svo kemur auðvitað
að því að líkaminn getur ekki meir.
Mér finnst sá tímapunktur hins
vegar ekki vera til staðar núna.
Það er svo allt annað mál hvort
það sé vilji sambandsins að fara
í einhverja stefnubreytingu með
leikstílinn eða fórna úrslitum í ein-
hvern tíma, til þess að koma nýjum
leikmönnum inn í hlutverk þeirra
sem fyrir eru,“ segir landsliðs-
maðurinn fyrrverandi, aðspurður
hvort þörf sé á miklum breytingum
á liðinu.
„Mögulega mætti segja að leik-
menn á borð við Albert [Guðmunds-
son] ættu að fá meira og skýrara
hlutverk hjá liðinu í næstu undan-
keppni. Svo hefur Rúnar Alex [Rún-
arsson] kosti sem Hannes Þór hefur
ekki og öfugt. Það er bara spurning
um hvort þú metur, þegar kemur að
valinu á hver verður í markinu.
Þá sýnir það sig kannski í leikn-
um gegn Ungverjum að leikmenn
þurfi að huga að því betur að vera
hjá liðum þar sem þeir spila reglu-
lega. Kannski þurfa einhverjir að
færa sig eitt skref aftur til þess að fá
f leiri mínútur inni á vellinum. Það
má svo ekki gleyma hversu mikil-
vægur Kolbeinn [Sigþórsson] er sem
uppspilspunktur, í þeirri taktík sem
við höfum spilað undanfarin ár.
Við sáum það bersýnilega síðasta
hálftímann í gær að við söknuðum
eiginleika hans þegar við vorum
komnir í mikla lágpressu.
Alfreð [Finnbogason] stóð sig
frábærlega í leiknum, en hans hæfi-
leikar skína betur þegar liðið er ofar
á vellinum í pressu og er að sækja á
f leiri mönnum eins og það gerði í
fyrri hálfleik,“ segir Arnar.
„Þeir leikmenn sem ég myndi
vilja sjá fá aukið hlutverk úr yngra
landsliðinu eru Ísak Bergmann
[Jóhannesson] og Willum Þór [Will-
umsson]. Ísak Bergmann ætti þá að
nota í sinni náttúrulegu stöðu inni
á miðsvæðinu. Hann er með gríðar-
lega hlaupagetu og getur hlaupið
völlinn teig frá teig. Willum Þór
gæti síðan hentað vel þegar þarf að
halda boltanum innan okkar raða
ofarlega á vellinum og byggja upp
spil í kringum hann. Það er líkam-
lega öf lugur leikmaður með gott
auga fyrir spili.
Svo eigum við spennandi leik-
menn í yngri landsliðunum þannig
að við þurfum ekki að örvænta þó
við séum langt niðri þessa stundina
út af þessu tapi.“ hjorvaro@frettabla-
did.is
Tapið ekki tilefni til byltingar
Íslenskir knattspyrnuáhugamenn eru enn að sleikja sárin eftir grátlegt tap Íslands í úrslitaleik um laust
sæti í lokakeppni Evrópumótsins. Þar með varð ljóst að gullkynslóðin fer ekki á sitt þriðja stórmót í röð.
Mark Gylfa Þórs virtist ætla að duga, áður en Ungverjar skoruðu tvö á lokamínútum leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
FÓTBOLTI Egypska knattspyrnu-
sambandið greindi frá því í gær
að Mohamed Salah hefði greinst
jákvæður af kórónaveirunni. Salah
sem er einkennalaus er kominn í
einangrun og verður því ekki með
liðsfélögum sínum gegn Tógó í dag.
Salah er fimmti leikmaður Liver-
pool sem greinist með kórónaveir-
una á þessu tímabili. Áður höfðu
Sadio Mane, Thiago, Xherdan Shaq-
iri og Konstantinos Tsimikas greinst
með veiruna og eru allir búnir að ná
sér til fulls. Þá er Roberto Firmino
líklegast á leiðinni í sóttkví eftir
að smit kom upp innan brasilíska
landsliðsins.
Ólíklegt er að Salah geti gefið
kost á sér í toppslag Liverpool gegn
Leicester eftir átta daga. Egyptinn
hefur byrjað tímabilið vel og skorað
átta mörk í átta leikjum fyrir Liver-
pool í ensku úrvalsdeildinni. – kpt
Salah kominn
með COVID-19
HANDBOLTI Evrópska handbolta-
sambandið, EHF, tilkynnti í gær
að leikjum kvennalandsliðsins í
undankeppni HM 2021 yrði frestað
til næsta árs. Ísland átti að ferðast til
Makedóníu og leika þar þrjá leiki í
upphafi desember, en áætlað er að
leikirnir fari fram í mars.
Í tilkynningunni sem barst til HSÍ
kom fram að áhrif kórónaveirufar-
aldursins gerðu það að verkum að
ákveðið var að fresta. Það sé mikil
áhætta að fá stóran hóp fólks víðs
vegar að úr Evrópu á einn stað og
hætta á að smit komi upp á leikstað
sem leiði til frestana.
Stelpurnar okkar eru í riðli með
Norður-Makedóníu, Litháen og
Grikklandi og er vonast til þess að
leikirnir geti farið fram um miðjan
mars næstkomandi. – kpt
Undankeppni
HM frestað til
marsmánaðar
FÓTBOLTI Strákarnir okkar í karla-
landsliðinu í knattspyrnu mæta
Dönum í næstsíðasta leik liðsins í
Þjóðadeildinni annað kvöld. Þetta
er 25. viðureign liðanna eftir 0-3
tap gegn Dönum á Laugardalsvelli í
haust og kemur þremur dögum eftir
viðureign Íslands og Ungverjalands.
Þjálfarateymi danska landsliðs-
ins fékk jákvæðar fréttir á dögunum
þegar ensk stjórnvöld samþykktu
að gefa leikmönnum landsliða
Íslands og Danmerkur undanþágu
frá ferðabanni á milli Englands og
Danmerkur. Með því fengu sjö leik-
menn að koma til móts við danska
liðið, sem leika á Englandi.
Ísland bíður enn eftir fyrsta sigr-
inum gegn Dönum í karlaf lokki.
Danska liðið er það lið sem Ísland
hefur mætt hvað oftast án þess
vinna leik. – kpt
Geta gert út um
Danagrýluna
Klopp ætti að geta knúsað Salah
áhyggjulaus í vetur. MYND/EPA