Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 24

Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 24
Óskar ólst upp í Sand-gerði en sem ungur d r e n g u r v a r ð i hann sumrunum í s veit i n n i hjá ömmu í Bjarnar- firði. „Maður var byrjaður að keyra dráttarvélar aðeins níu eða tíu ára gamall og farinn að keyra úti á þjóð- vegum mjög ungur.“ Þegar Óskar var 16 ára flutti hann austur á Stöðvarfjörð til eldri systur sinnar, þar sem hann fékk starf í frystihúsinu. Hann segir þorps- búa hafa verið sátta við harðdug- legan aðkomumanninn, eða allt þar til hann fékk bílpróf. „Þá var ég alveg klikkaður. Mér var sama um allt, slædandi úti um allt þorp og í spyrnu. Það var verið að spyrna frá Stöðvarfirði yfir á Breiðdalsvík þar sem eru háar skriður og mikil hætta.“ Áhyggjufullir þorpsbúar áttu það til að hringja á lögregluna sem var með aðsetur í næsta firði. „Svo þegar löggan kom yfir var auð- vitað lítið hægt að gera annað en að skamma mann.“ Fannst hann ódauðlegur Þegar Óskar var rúmlega 18 ára sagði systir hans, sem þá var að hans sögn hálfgerð mamma hans, honum að annaðhvort þyrfti hann að hægja á sér eða að fara. „Það er bara um tvennt að velja, annaðhvort slakar þú á eða ferð héðan. Hún sagðist ekki geta tekið við þessu lengur. Það kvörtuðu allir í henni en ekki mér, enda hlustaði ég ekki á neinn.“ Foreldrar í þorpinu höfðu áhyggj- ur af börnum sínum, en Óskar svar- aði þeim áhyggjum þannig til að börnin væru á ábyrgð foreldranna en ekki hans. „Eins og ég segi, maður var bara klikkaður. Manni fannst maður ódauðlegur.“ Óskar lét ekki segjast og flutti því aftur suður eftir afarkosti systur- innar. Fín lína á milli hetju og hálfvita „Ég náði að vera í Sandgerði í mánuð áður en ég missti bílprófið. Ég var þá tekinn á 99 kílómetra hraða innan- bæjar.“ Óskar missti prófið í mánuð og upplifði það sem fangelsi en lét sér það þó ekki að kenningu verða. „Einhvern tíma fór ég í spyrnu á Reykjanesbrautinni sem þá var ein- föld. Með mér í bílnum var vinur minn og þrjár vinkonur og enn þann dag í dag tala þær um að þær skilji ekki hvernig við komumst lífs af. Ég var að taka fram úr og trailer að koma á móti á fullri ferð og svo framvegis. Hugsun mín var að ég væri aldrei að fara að tapa. Það var hver sénsinn tekinn á eftir öðrum. Mér fannst ég vera frábær bílstjóri. Sem maður er – þar til eitthvað ger- ist. Þá er mjög fín lína á milli þess að vera hetja og hálfviti.“ Vinurinn lést í bílslysi Árið 1992 varð Óskar faðir í fyrsta sinn, þá 23 ára gamall, og segist hafa róast töluvert við það. Hann hafði ekið með radarvara til að forðast lögregluna, en látið vin sinn hafa hann þegar sonurinn kom í heim- inn. Hann ætlaði að hægja á sér. „Ég hitti þennan félaga minn á sunnudegi niðri á bryggju í Sand- gerði. Hann vildi skila mér radar- varanum en ég afþakkaði svo hann hélt honum. Morguninn eftir lenti hann í slysi rétt fyrir utan Keflavík og lést. Þetta hafði mikil áhrif á mig og liggur alltaf þungt á mér. En maður hætti samt ekkert að keyra hratt. Ég hugsaði með mér að svona slys gerðust og það þyrfti ekkert að henda mig.“ Óskar kynntist Akstursíþrótta- félagi Suðurnesja. „Þá fór ég að keyra rallíbíl og sá fljótt að ég var ekki eins góður bílstjóri og ég hélt, maður velti og fór út af en þá með allan öryggis- búnað svo allt fór vel þó bílarnir hafi fengið að kenna á því.“ Óskar keppti fjórum sinnum í Íslandsmótinu í rallí og síðast árið 2007. „Þá var ég kominn á kraft- meiri bíl og endaði í fjórða sæti, einu stigi frá fyrsta sætinu. Sumarið eftir var ætlunin að gera meira en þennan vetur lendir Kiddi í slysinu.“ Kristinn Veigar Kristinn Veigar, yngsta barn Ósk- ars, var nýorðinn fjögurra ára þegar ekið var á hann fyrir utan heimili hans í Kef lavík. Óskar og barns- móðir hans, Anna Guðbjörg Krist- insdóttir, móðir Kristins og systur hans, Örnu Sóleyjar, tveimur árum eldri, voru skilin og bjuggu systk- inin hjá móður sinni Í Keflavík. Þau voru svo hjá Óskari og konu hans, Vilborgu Rós Eckard, aðra hvora helgi og í fríum. „Ég og Vilborg, sem ég á elsta son- inn með, Odd fæddan 1992, tókum aftur saman árið 2005 eftir skilnað okkar Önnu og höfum við því verið saman í 15 ár. Þetta sjálfsagt gerist ekki oft,“ segir Óskar og hlær þegar blaðamaður hváir. „Hún á svo eina dóttur, Viktoríu, fædda 1996.“ Það er ekki óalgengt að í nýju sambandi finni fólk fyrir þörf til að eignast barn saman en í þessu til- felli var það óþarft. Barnið þeirra var orðið 12 ára og segir Óskar það strax hafa legið fyrir að ekki þyrfti að bæta við. Örlagaríki dagurinn Víkjum aftur að örlagaríka deg- inum 30. nóvember árið 2007. Hann var stjarnan í hópnum Óskar Sólmundarson var sjálfur hættulegur ökumaður á sínum yngri árum og hefði getað valdið miklum skaða. Örlögin urðu aftur á móti þau að yngsta barnið hans, Kristinn Veigar, lést, þegar ekið var á hann við heimili hans. Á morgun, 15. nóvember, er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Eftir sonarmissinn vildi Óskar láta gott af sér leiða og hélt fjölmarga fyrirlestra fyrir ungt fólk sem misst hafði bílprófið og segir það hafa gefið sér mikið. Hann bað unga fólkið að hugsa til sín og Kidda litla, næst þegar það ætlaði að spyrna eða keyra yfir á rauðu ljósi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mynd tekin af Kristni Veigari, mánuði fyrir slysið. „Þegar ég skoða hana fer allt á skrið innra með mér,“ segir Óskar. VÍKURFRÉTTIR/ELLERT GRÉTARSSON Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.