Fréttablaðið - 14.11.2020, Page 30
Ásdís er lögfræðingur að mennt og er að ljúka lög g ilding u sem fasteig nasali um þessar mundir. Hún sá þar tækifæri
og er ný viðbót við fasteignasöl-
una Lind í Kópavogi. Þegar hún er
spurð út í ákvörðunina um að færa
sig yfir í fasteignasölu, segist Ásdís
vilja setja sitt lag á viðskipti með
þessa stærstu fjárfestingu sem við
gerum á ævinni. Þannig ætlar hún
að aðstoða fólk í söluhugleiðingum
með að stílisera fasteignir fyrir sölu
og fylgja verkefninu alla leið. Ásdís
og Hjörtur reka einnig fyrirtækið
heimaró.is þar sem finna má fallega
hluti til heimilisins.
Heimilið er stílhreint og fallegt
þar sem ástríða hjónanna fyrir fal-
legum hlutum skín í gegn. Eldhúsið
er í dökkum litum og fá allir hlutir
að njóta sín vel. Þörfin fyrir hús-
gögn sem þau fundu ekki á mark-
aðnum hér heima var í raun upp-
hafið að fyrirtækinu Heimaró, en
hjónin létu sérsmíða fyrir sig borð
sem þau svo settu í framleiðslu og
sölu á vefsíðu sinni.
Ásdísi langaði einnig að finna
fallegar mottur sem hún gæti nýtt
undir borðstofuborðið og á f leiri
stöðum og bætti þá gúmmímottum
við úrvalið á síðunni. Motturnar
eru einstaklega fallegar og má
skúra þær sem er einkar hentugt.
Orðaskiltin eru einnig vinsæl og
gefa ákveðinn tón inni á heimil-
um. Barnaherbergin eru jafnframt
skemmtileg, en þar geta ungarnir
notið sín í eigin heimi dýra og
hreyfingar, hver myndi ekki vilja
hafa rimla og rólu í herberginu
sínu?
Með magnað útsýni yfir Dalinn
Hjónin Ásdís Rósa Hafliðadóttir og Hjörtur Hjartarson hafa komið sér vel fyrir í fallegri íbúð í Laugardalnum
ásamt sonum sínum tveimur, en hlýlegt heimilið skartar glæsilegu útsýni yfir útivistarparadís Reykvíkinga.
Á heimasíðunni
heimaró.is
bjóða þau hjón
upp á fallega
hluti til heim-
ilisins en einnig
þægilegan
fatnað á alla
fjölskylduna
sem þau kalla
inniró. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/STEFÁN
Pampas-stráin
og vel valdir
hlutir setja fal-
legan svip á eld-
húsbekkinn.
Opið er á milli
borðstofu
og eldhúss,
sem er bæði
stílhreint og
rústik. Mottan
undir borð-
stofuborðinu
er úr plasti og
hana má skúra,
sem er sérlega
praktískt á
barnaheimili.
Litapalletta heimilisins lætur hvern hlut njóta sín vel og orðaskiltið setur punktinn yfir i-ið.
Rólan í barna-
herberginu er
frábær hug-
mynd og vel
nýtt.
Tom Dixon-ljósin njóta sín vel í stofunni.
Arnar Gauti
Sverrisson
arnargauti@sirarnargauti.is
1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð