Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 78

Fréttablaðið - 14.11.2020, Side 78
Það er tími til kominn á lokkandi kökuilm og vott af jólastemningu í húsið. Sléttir fjörutíu dagar eru til jóla og tilvalið að skella í fyrstu smákökuuppskriftina um helgina. Um 20 kökur fást úr þessari uppskrift. 115 g smjör 100 g sykur 50 g púðursykur 1 tsk. vanilludropar 1 egg 220 g hveiti 1 tsk. matarsódi ½ tsk. gróft salt 300 g dökkt súkkulaði Bræðið smjör og látið kólna aðeins. Blandið saman við sykur og púðursykur og hrærið þar til létt og ljóst. Bætið við eggi og vanillu- dropum og hrærið saman. Setjið hveiti, matarsóda og salt saman við deigið smátt og smátt í einu og hrærið stutt á milli til að forðast að deigið verði seigt, en alveg þar til myndast hefur deigkúla sem sleppir skálinni. Skerið súkkulaðið gróflega og blandið því saman við deigið, jafnvel með höndunum. Mótið jafnstórar kúlur úr deiginu og raðið með jöfnu millibili á bök- unarplötur. Bakið við 180°C í um tíu mínútur eða þar til kökurnar hafa náð gylltum lit og lyft sér vel. Kökurnar eiga að vera linar þegar þær koma úr ofninum. Látið þær kólna áður en teknar af plötunum. Heimild: gottimatinn.is Jólalegar og mjúkar súkkulaðibitakökur Næsta vika byrjar vel því dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur á mánudaginn, 14. nóvember, fæðingardegi Jónasar Hallgríms- sonar. Tilgangurinn með þessum degi er að beina athygli fólks að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu. Verðlaun Jónasar Hallgríms- sonar verða veitt, sem og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar. Dagurinn er opinber fánadagur og um að gera að draga íslenska fánann að húni í þessu tilefni. Á mánudaginn er líka alþjóða- dagur umburðarlyndis, þar sem áhersla er lögð á hvern og einn íbúa landsins og rétt hans, óháð bakgrunni. Deginum hefur verið fagnað á vettvangi Sameinuðu þjóðanna síðan 1995 að frum- kvæði Menningarmálastofnunar UNESCO. Tilvalið er að slá tvær flugur í einu höggi á mánudaginn og safna fallegum orðum sem snúast til dæmis um jákvæðni, þakklæti og umburðarlyndi. Gætum tungunnar Dagur íslenskr- ar tungu er á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Nú er líka tími til að njóta kósí stunda yfir jólamyndum heima. Netflix býr til sínar eigin jólamyndir og sýnir líka gamlar og góðar sem hæfa jóla- börnum á öllum aldri. Hér er listi yfir jólamyndir sem þegar eru komnar í sýningu og á leiðinni á skjáinn til jóla. 1. Holidate, fyrsta nýja jólamynd Netflix fyrir jólin 2020. 2. Klaus, dásamleg teiknimynd. 3. The Knight before Christmas, rómantískur riddari á ferð 4. Holiday Rush, fjölskyldumynd um hin sönnu gildi jólanna. 5. Holiday in the Wild, rómantík með Rob Lowe og Kristin Davis. 6. Dr. Seuss’ The Grinch, teikni- mynd af sígildri jólasögu. 7. The Holiday Calendar, rómantík og tilfinningaflóð. 8. Þrílógían A Christmas Prince, með tvær framhaldsmyndir með sama forliðnum: The Royal Wedding og The Royal Baby. 9. The Princess Switch, hlutverka- skipti „Hallmark style“. 10. The Christmas Chronicles, dásamlega falleg og spenn- andi jólasaga með Kurt Russel. 11. How the Grinch Stole Christ- mas, sígild jólamynd með Jim Carrey í aðalhlutverk. 12. A Very Murray Christmas, jólagamansöngleikur með Bill Murray og frægum gestum. 12 góðar Netflix jólamyndir SIR ARNAR GAUTI L Í F S T Í L S Þ Á T T U R SIR ARNAR GAUTI Lifandi og skemmtilegur lífsstílsþáttur með Arnari Gauta á Hringbraut, á fimmtudögum kl. 21:30. ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 LÍFSSTÍLSÞÁTTUR 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.