Rit Búvísindadeildar - 01.07.1992, Page 13
Á sumardaginn jyrsta árið 1930 héldu kennarar og nemendur Bænda-
skólans á Hvanneyri fund og var aðalumræðuefni hans það, hvernig
hægt væri að efla félagskap og samstatf meðal (slenskra búfrœöinga,
málshefjandi var Guðmundur Jónsson kennari; niðurstöður fundarlns
urðu þær að kanna meðal gamalla nemenda viðbrögð við þessari
hugmynd. Þá var leitað til skólanna og nemendafélaga þeirra um
viðbrögð. Niðurstöður urðu þær að yfir eitt hundrað svör bárust og öll
jákvæð.
Síðar í ávarpinu segir svo:
Málið stendur þvíþannigð að allmargir gamlir Hvanneyringar ogflestir
nemendur hinna síðustu ára hafa látið í Ijósi eindreginn vilja sinn um
það að stofnað yrði til útgáfu tímarits, sem einkum yrði málgagn
búfræðinga og búnaðarskóla. Búnaaðrskólamir eða nemendafélög
þeirravilja ekkert skipta sér afþessu með fjárframlögum a.m.k. Það er
því aðeins um tvennt að gera láta málið niður falla gegn vilja margra
yngri og eldri Hvanneyringa eða að einhverjir af kennurum Bændaskól-
ans á Hvanneyri tækju að sér útgáfuna á eigin spýtur. Við undirritaðir
höfurn nú ákveðið, samkvœmt ósk fundarins 1930, að byrja útgáfii
tímatirs á eigin kostnað og ábyrgð. En til þess að hleypa okkur ekki í
miklar skuldir hennar vegna ætlum við að hafa það fíölritað til að
byrja með.
Undir þetta ávarp rita Guðmundur Jónsson og Þórir Guðmundsson. Útgáfa
Búfræðingsins var þar með hafin. Fyrstu fjórir árgangar hans komu út fjölritaðir.
Þegar Búfræðingurinn hafði komið út í fjögur ár varð ákveðið að nemendafélög
búnaðarskólaanna Hvanneyringur og Hólamannafélagið tækju útgáfuna að sér sitt
hvort árið. Ábyrgðarmaður frá hendi Hvanneyrings var Guðmundur Jónsson en
Gunnlaugur Bjömsson sá um útgáfuna fyrir hönd Hólamannafélagsins. Eftir að
þessi breyting varð fóm að birtast í Búfræðingnum skólaskýrslur búnaðarskólanna.
Búfræðingurinn varð brátt öflugt og metnaðarfullt búnaðartímarit. í ritinu
birtust fræðigreinar og ritgerðir eftir nær alla búvísindamenn hérlendis um hin
ólíkustu efni. Margar þessara ritgerða og greina vom síðan sérprentaðar og
notaðar sem kennsluefni við bændaskólanna. Þar á meðal var ritgerð Guð-
mundar um Búfjáráburð. Auk þess að birta fræðigreinar og ritgeðir um búnaðar-
málefni birtust í Búfræðingnum margháttaður fróðleikur fréttapistlar um nýjungar
í landbúnaði erlendis og hérlendis.
Guðmundur var mikilvirkur penni fyrir Búfræðinginn, skrifaði bæði fræði-
legar ritgerðir og greinar en einnig mjög margt af öðm efni. Við lauslega eftir-
grennslan hef ég fundið efni úr hans penna tilheyrandi nær öllum sviðum búfræð-
innar á síðum Búfræðingsins alls um 110 titla, auk þess sem hann sá um skóla-
skýrslur Hvanneyrarskólans öll árin sem þær birtust í ritinu.
7