Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Blaðsíða 56
og 8-12 cm dýpi. Sýnin vom íekin um miðjan júlí 1993 Hverju sýni var skipt í
tvo hluta. í öðmm hlutanum var laust köfnunarefni greint strax. Hinn helmingur
sýnisins var settur í plastpoka og grafmn í sömu dýpt og sýnin vom tekin, sýnin
voru síðan sótt að 8 vikum liðnum og laust köfnunarefni í þeún greint.
Greining á jarðvegsbvggingu: Sex sýni vom tekin í 2 af 4 endurtekningum í
hverjum tilraunalið, á 0-5 cm og 8-12 cm dýpi. Sýnin vom tekin um miðjan julí
1993. Þrjú sýni vom notuð til mælinga á rúmþyngd. Hin þijú sýnin vom notuð
tií ákvörðunar á þrýstikúrfu (pF) sem er mælikvarði á vatnsheldni.
Jarðvegssnið vom íekin í 2 af 4 endurtekningum í hverjum tilraunalið og metin
með tiliiti til litar og byggingar.
Ánamaðkar: Tekið var 1 sýni úr hverri endurtekningu þrisvar sinnum yfir
sumarið. Hvert sýni var 0,25x0,25 cm og 30 cm djúpt. Sýnunum var skipt í
tvennt í 0-10 cm og 10-30 cm dýpt. Sýni vom tekin 1. júní, 21. júlí og 29. sept-
einber. Sýnin vom skoluð í gegnum fjögur sigti með minnkandi möskvastærð,
möskvastærð neðsta sigtisins er 1 mm. Ánamaðkar og egghylki vora aðgreind frá
öðru efni í sýnunum, fjöldi ánamaðka og egghylkja ákvarðaður, þeir greindir til
tegunda og heildar lífþyngd í hverju sýni mæld.
Gagnasöfnun er að mestu lokið, nema hvað eftir er að ljúka greiningum á vatns-
heldni, lífrænu kolefni og eðlisþyngd jarðvegs. Ekki hefur verði unnið úr niður-
stöðum ennþá en fyrirhugað er að greiningum ljúki á vormánuðum og sumaiið
1994 verði notað til úrvinnslu gagna.
Niðurstöður
Úrvinnsia gagna er það skammt á veg komin að hér verður aðeins lítillega minnst
á niðursíöður úr athugun á ánamöðkum og jarðvegssniði.
Aðeins fundust tvær tegundir ánamaðka, Dendrobaena oetaedra (Sav.) (Mosaáni)
og Dendrodrilus rubidus (Sav.) (Svarðáni). Þessar tegundir lifa báðar í efsta
jarðvegslaginu, engir ánamaðkar fundust í þeim hluta sýnanna sem tekin vom á
10-30 cm dýpi. Egghylki, ungviði og kynþroska einstaklingar beggja tegunda
fundust í öll skiptin sem sýni vom tekin. Dendrobaena octaedra fannst í öllum
sýnum, fjöldi var 32-1152 einstaklingar/m^ og 224-4896 egghylki/mÁ Fjöldi
Dendrodrilus rubidus var 0-176 einstaklingar/m^ og 0-1328 egghylki/m^.
Þéttleiki ánamaðka virðist meiri í reitum sem fengið hafa sauðatað heldur en
reitum sem eingöngu hafa fengið tilbúinn áburð. Ekki hafa verið gerðar
tölfræðilegar prófanir á gögnunum.
Munur á jarðvegssniðum var mjög lítill, sá munur sem fannst milli sniða virðist
einkum ráðast af þvf hvar á túninu þau em staðsett. Dýpra er niður á óraskað
land á miðju túninu en við skurðbakka því það er kýft. Jarðvegurinn virðist lítið
hafa rotnað frá því landið var tekið ti! ræktunar og auðvelt er að sjá skil raskaðs
og óraskaðs jarðvegs. Efsta jarðvegslagið virðist heldur þykkara (0,5-1,0 cm) og
dekkra þar sem borinn hefur verið á búfjáráburður, heldur en þar sem eingöngu
hefur verið borirm á tilbúinn áburður, þessi munur er ekki afgerandi.
49