Rit Búvísindadeildar - 15.04.1994, Page 59
MELTANLEIKATILRAUN MEÐ HROSS OG
SAUÐI
Anna Guðrun Þórhallsdóttir
Inngangur
Því hefur oft verið haldið fram að íslensku hrossin nýti betur gróffóður en erlend
hrossakyn. Engin rannsókn hefur verið gerð til að kanna réttmæti þessarar
fullyrðingar, og upplýsingar um meltanleika mismunandi fóðurs hjá íslensku
hrossunum eru mjög takmarkaðar. í samstarfi við Tryggva Eiríksson á fóðurdeild
Rala var sótt um styrk til Vísindasjóðs til að bera saman meltanleika gróffóðurs
hjá hrossum og sauðum. Veitti sjóðurinn 1.480.000 kr. til rannsóknanna vorið
1993. Markmið rannsóknanna var skilgreint "Að auka þekkingu á meltanleika
gróffóðurs hjá íslensku sauðfé og hrossum og rannsaka þann mun sem kann að
vera milli þessara búfjártegunda. Einnig að bera saman meltanleika eftir
fóðurmagni og mælingaraðferð og að fá mælikvarða á viðhaldsþarfir íslenskra
hrossa”. Framkvæmd hófst haustið 1993 með fóðrunartilraun hrossa á
Hvanneyri. Samsvarandi fóðrunartilraun með sauði hófst í byrjun árs á Rala á
Keldnaholti. Framkvæmd tilraunarinnar lýkur f maí 1994.
Framkvæmd
Framkvæmd tilraunarinnar hófst sumarið 1993 með öflun fóðurs til að nota í
tilraunina. Umsjón með þeim þætti höfðu Bjarni Guðmundsson og Guðmundur
Hallgrímsson. Sama spilda var slegin með nokkurra vikna millibili, heyið
þurrkað og bundið í bagga. Fyrsti sláttur var sleginn 20. júlí (Gæði 1), annar
sláttur 4. ágúst (Gæði 2) og síðasti sláttur 2. september, en náðist ekki inn fyrr en
16. september, þá allhrakið (Gæði 3).
Skipulag tilraunarinnar var samkvæmt 3x3 latneskum femingi (latin square, sjá
Snedecor og Cochran 1976) og var nákvæmlega sama skipulagi fylgt fyrir hross
og sauði. Hrossahluti tilraunarinnar á Hvanneyri hófst 30. október. Hrossin voru
tekin á hús 7-10 dögum áður til að aðlaga þau innifóðrun. Hrossin voru vigtuð
27.10. og þeim skipt í þrjá flokka eftir þyngd. Var síðan dregið innan hvers hóps
um hver færi í hvaða heygæðahóp. Þyngd hrossanna var eftirfarandi:
Börkur (GJ Miðfossum) 445 kg
Hersir (AGÞ Hvanneyri) 425 kg
Rauður (KK Hvanneyri) 405 kg
Tígull grár (GJ Miðfossum) 400 kg
Sleipnir brúnn (GJ Miðfossum) 390 kg
Kolbrúnn (K&S Hvanneyri) 390 kg
Orion (KK Hvanneyri) 370 kg
Mósi (GÁ Hvanneyri) 365 kg
Hrafnkell (AGÞ Hvanneyri) 360 kg
52