Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 8
5,1
milljarð er áætlað að fram-
kvæmdirnar kosti.
Opnunartímar Kirkjugarða
Reykjavíkur um jólin
Á aðventunni, um jól og áramót eru Fossvogskirkjugarður, Gufuneskirkjugarður, Kópavogskirkjugarður
og Hólavallagarður opnir allan sólarhringinn nema Fossvogskirkjugarður er lokaður fyrir allri
bílaumferð á aðfangadag milli kl. 11:00 og 14:00 vegna mikils fjölda gangandi og slysahættu.
Þeir sem ekki geta vitjað leiða ástvina sinna nema koma akandi er bent á að koma
annað hvort fyrir eða eftir tilgreindan lokunartíma.
Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Suðurhlíð og Vesturhlíð. Á Þorláksmessu
og aðfangadag er hringakstur í Gufuneskirkjugarði með aðkomu eingöngu frá Hallsvegi
og farið er út norðan megin inn á Borgaveg eins og verið hefur.
Símavarsla verður á skrifstofu Kirkjugarðanna á aðfangadag
og gamlársdag frá kl. 8:00-12:00 í síma 585 2700 fyrir þá
sem þurfa að leita upplýsinga og aðstoðar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu
leiða á vefnum www.gardur.is
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.
www.kirkjugardar.is
Hafðu samband í síma 568 8000
eða pantaðu gjafakort á borgarleikhus.is
Gefðu
tengdó
trúnó
um jólin
Umhverfisstofnun auglýsir hér með
tillögu að vatnaáætlun fyrir Ísland
2022-2027 í samræmi við lög nr.
36/2011 um stjórn vatnamála og
umhverfisskýrslu skv. lögum nr.
105/2006 um umhverfismat áætlana.
Tillögurnar eru aðgengilegar á
vefsíðu Umhverfisstofnunar
www.vatn.is og liggja frammi til
kynningar á skrifstofu Umhverfis-
stofnunar. Ábendingar og athuga-
semdir sendist á ust@ust.is merkt
„Stjórn vatnamála“ eða til
Umhverfisstofnunar,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Frestur til að senda inn ábendingar
og athugasemdir eru sex mánuðir
eða til og með 15. júní.
STJÓRNSÝSLA Stefnt er að því að fara
í nýtt útboð vegna enduruppbygg-
ingar skíðasvæðanna í Bláfjöllum
og Skálafelli í janúar. Öllum til-
boðum var hafnað í útboðinu í
nóvember og ný áætlun er nú komin
inn á borð sveitarfélaganna. Kostn-
aðurinn er nú metinn 5,1 milljarður
króna í stað 3,6 áður.
Verkefnið er afar umfangsmikið
og á sér aðdraganda allt til ársins
2007 en árið 2018 undirrituðu borg-
ar- og bæjarstjórar á höfuðborgar-
svæðinu samkomulag. Um er að
ræða fjórar skíðalyftur í Bláfjöllum
og eina í Skálafelli, snjóframleiðslu
og endurnýjun skíðaskála. Vanda-
mál með uppboðið, kæra frá Veitum
og heimsfaraldurinn hafa tafið upp-
bygginguna.
Magnús Árnason, forstöðumaður
Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins,
segir að öll tilboðin hafi verið yfir
áætlun. Því hafi hún verið endur-
skoðuð og verkefnum deilt niður
á f leiri ár. „Við erum að skoða af
hverju tilboðin voru öll hærri en
lægstu verð birgjanna,“ segir hann.
Birgjarnir eru erlend skíðalyftufyr-
irtæki. „Það er mikill áhugi á þessu
verkefni hjá þeim og við viljum fá
sem flesta til að bjóða í.“
Vegna faraldursins tafðist fyrra
útboðið um fjóra mánuði. Í fyrra
tafðist verkefnið vegna kæru Veitna
sem töldu aukna umferð um Blá-
fjallaveg þurfa að fara í umhverfis-
mat þar sem hann liggi um vatns-
verndarsvæði. Magnús segir þetta
atriði leyst með samkomulagi
Veitna og Vegagerðarinnar. Þegar
sé byrjað að gera vegaxlir öruggari.
Samkvæmt Magnúsi munu fram-
kvæmdirnar ekki skerða starfsem-
ina í fjöllunum. Þær fari allar fram á
sumrin. „Við stefnum á að geta hafið
framkvæmdir árið 2022 en um leið
og þetta fer í gang mun þetta gerast
hratt,“ segir Magnús. Fyrst verði
farið í lyfturnar og snjóframleiðslu
en skálarnir verði kláraðir eftir
2030.
„Þetta verður þvílík upplyfting
fyrir allt skíða- og brettafólk í land-
inu,“ segir Magnús. Síðan lyftan
Kóngurinn var sett upp árið 2004
hafi lítið gerst. „Búnaðinum hefur
hrakað og við þurft að taka eina
stólalyftu úr umferð. Þegar þetta
verður klárað mun fólk geta valið
sér brekku við hæfi, mannskapur-
inn dreifist og raðir styttast. Í Skála-
felli til dæmis mun lyftan fara helm-
ingi hraðar og geta tekið helmingi
f leira fólk.“
Framkvæmdirnar munu ekki
aðeins nýtast almenningi vel heldur
einnig þeim sem stunda æfingar.
Betur verður hægt að halda þeim
út af fyrir sig. Magnús segir að því
miður sé staðan sú í dag að iðk-
endur og almenningur blandist of
mikið saman.
Með snjóframleiðslunni verður
einnig hægt að lengja tímabilið.
Undanfarin ár hefur það hafist í
nóvember eða desember og staðið
fram á vor og tekist að lengja það
eitthvað með snjógirðingum. „Það
verður hægt að tryggja snjó fyrr,
sem stendur betur af sér hlákur,“
segir Magnús. „Þó að aðstæður á
Akureyri séu ekki fullkomlega sam-
bærilegar við okkar þá varð versti
veturinn með snjóframleiðslu þar
betri en sá besti án hennar.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Nýtt útboð og
matið hækkað
Kostnaðarmat við enduruppbyggingu skíðasvæð-
anna á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 1,5
milljarða. Framkvæmdir gætu hafist árið 2022.
Framkvæmdirnar á skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli verða gerðar
á sumrin og munu því ekki skerða starfsemina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Búnaðinum hefur
hrakað og við þurft
að taka eina stólalyftu úr
umferð.
Magnús Árnason,
forstöðumaður
Skíðasvæða
höfuðborgar-
svæðisins
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
COVID-19 Ísland er nú appelsínugult
á áhættukorti Evrópsku sóttvarna-
stofnunarinnar, ECDC, sem komið
var á fót í haust vegna COVID-19.
Kortið var búið til fyrir samræm-
ingu takmarkana, til dæmis hvort
fólk þurfi að fara í skimun ferðist
það á milli svæða.
Þegar kortið var búið til var
Ísland merkt grátt þar sem ekki
lágu nægilegar upplýsingar fyrir en
varð fljótt rautt, sem er efsta stigið.
Í dag er langstærstur hluti álfunnar
rauður.
Í ljósi fækkunar tilfella og fjölda
prófana er Ísland komið niður um
hættustig. Önnur appelsínugul
svæði eru Írland, Finnland utan
Helsinki, Vestur-Noregur og ein-
staka svæði í öðrum ríkjum, svo
sem Krít og Korsíka.
Einungis Norður-Noregur, Staf-
angurssvæðið og Grænland eru
grænmerkt, sem er lægsta hættu-
stigið. – khg
Ísland orðið
appelsínugult
Langstærstur hluti
Evrópu er rauður sem er
efsta hættustig.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð