Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 10

Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 10
Telur undirrituð borðleggjandi að kerfið verði boðið út í heild sinni um leið og fyrir liggur stefna sem tekur mið af Samgöngusáttmálanum. Theódóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi BF Viðreisnar í Kópavogi Breyting á Aðalskipulagi Eyja-og Miklaholtshrepps Miðhraun 2 Hreppsnefnd Eyja-og Miklaholtshrepps samþykkti á fundi þann 1. október 2020 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Eyja-og Miklaholtshrepps 2018-2038 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að lítils háttar færsla verður á mörkum landnotkun arreita í landi Miðhrauns 2 vegna fyrirhugaðrar þjónustu við ferðafólk. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 14. september 2020. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Eyja-og Miklaholtshrepps. Ragnar Már Ragnarsson Skipulagsfulltrúi Eyja-og Miklaholtshrepps Eyja og Miklaholtshrepps ORKURANNSóKNASJóÐUR Ert þú að grúska fyrir grænan heim? Eitt stærsta verkefni okkar er að skila jörðinni til komandi kynslóða í jafn góðu eða betra ástandi en við tókum við henni. Nútíminn kallar á grænar lausnir til að ná þessu takmarki, og ein stærsta græna lausnin er orkuvinnsla úr auðlindum sem endurnýja sig og valda lítilli losun á gróðurhúsalofttegundum. Rannsóknaverkefni sem tengjast orku- og umhverfismálum geta skipt sköpum í leitinni að þessum grænu lausnum og Orkurannsóknasjóður styður við slík verkefni á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Við auglýsum nú eftir umsóknum um styrki frá sjóðnum. Nánari upplýsingar, auk umsóknareyðublaðs, er að finna á vef Landsvirkjunar landsvirkjun.is Umsóknum er skilað á netfangið orkurannsoknasjodur@landsvirkjun.is Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar 2021 STJÓRNSÝSLA Theódóra S. Þor- steinsdóttir, bæjar f ulltr úi BF Viðreisnar í Kópavogi, gagnrýnir misbresti í innkaupum vegna umferðarljósaker f is á höf uð- borgarsvæðinu . Kemur þett a fram í bókun hennar í bæjarráði á fimmtudag. Í bókuninni vék hún að Betri samgöngum, nýju félagi ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu. Samkomulag þessara aðila sé að ráðist verði strax í mark- vissar aðgerðir til að nýta tækni- lausnir og bæta umferðarljósakerfi á höfuðborgarsvæðinu. „Í ljósi þess hvernig verkefnið um umferðarstýringu á höfuð- borgarsvæðinu hefur farið af stað með úrskurðum um meðal annars að ekki sé gætt að ákvæðum laga, álagningu stjórnvaldssekta og krafna um greiðslu skaðabóta þá telur undirrituð borðleggjandi að kerfið verði boðið út í heild sinni um leið og fyrir liggur stefna sem tekur mið af samgöngusáttmál- anum,“ segir í bókun Theódóru. Þarna vitnar Theódóra til nýs úrskurðar kærunefndar útboðs- mála sem lagði stjórnvaldssektir á Reykjavíkurborg og Vegagerðina fyrir að hafa samið beint við fyrir- tækið Smith & Norland um kaup á ljósastýringarbúnaði og þjónustu í stað þess að bjóða viðskiptin út. Borgin er enn fremur bótaskyld vegna útboðs sem fellt var niður. Theódóra vill að tryggt verði að meginreglur opinberra innkaupa séu virtar. „Í því felst meðal annars að tryggja jafnræði milli fyrirtækja við tilboðsgerð með það að leiðarljósi að hagkvæmni sé leitað með virkri samkeppni og til að efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opin- bera,“ segir í bókun Theódóru sem áheyrnarfulltrúinn Sigurbjörg E. Egilsdóttir úr Pírötum tók undir. „Það að kaupa miðlæga stjórn- tölvu án útboðs en ætla síðan í framhaldinu að bjóða út viðbótar- búnað sem háður er þessari stjórn- tölvu tryggir ekki jafnræði milli fyrirtækja og við höfum enga vissu um að geta þannig keypt nýjustu og bestu lausnina á hagkvæmasta verðinu,“ segir Sigurbjörg við Frétta blaðið. „Það hlýtur að vera farsælast að móta fyrst stefnu í samráði við sveitarfélögin sem eru aðilar að samgöngusáttmálanum og bjóða síðan kerfið út í heild sinni miðað við þau markmið og væntingar sem koma út úr þeirri stefnu. Lýðræðis- legra og gagnsærra ferli skilar sér í bæði aukinni skilvirkni og meiri sátt,“ bætir Sigurbjörg við. Bæjarráðið í heild beindi því til stjórnar Betri samgangna að marka skýra stefnu í ljósastýringu í sam- ráði við aðila Samgöngusáttmálans. „Mikilvægt er að í kjölfarið verði farið í útboð sem tryggir heildar- lausn sem taki mið af öllum tegund- um samgangna sem er í samræmi við markmið Samgöngusáttmál- ans,“ segir í bókun bæjarráðsins. gar@frettabladid.is Bjóði kerfið út í heild Fulltrúi BF Viðreisnar í Kópavogi segir að þar sem lögum hafi ekki verið fylgt við innkaup á umferðarljósastýringu sé ljóst að bjóða þurfi kerfið út í heild. dot.is DÓT Gæði á góðu verðiKíktu á úrvalið Sendum um land allt Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pír­ ata í Kópavogi 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.